Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 20

Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 20
m Hér fara á eftir nokkrar leiðbeiningar við að klæða húsgögn fyrir þá, sem vilja sér að kostnaðarlitlu búa heimilið á hent- ugan, en þó vistlegan hátt. Allar gerðirn- ar eru einfaldar og auðvelt að sauma þær, fljótlegt að taka af, þvo og strjúka og setja á aftur. Slik laus áklæði má nota bæði á heimilum og í stærri stofnunum, skólum eða vistheimilum. Hægt er að kaupa stóla án áklæðis, og má þá fá ó- dýrara áklæði með því að sauma sjálfur, og jafnvel fleiri en eina samstæðu á móti einni af föstu áklæði. Ef svo vill til, að ekki fáist efni, sem maður er ánægður með í fast áklæði, þegar húsgögnin eru keypt, má þannig fresta þeim kaupum til betri tíma og nota laust áklæði til bráðabirgða. Þá munu þessar ráðstafan- ir einnig þykja mjög hentugar á bam- mörgum heimilum. Ánægjulegt er að líta inn í svefnherbergi, þar sem snyrtilegt og fallegt rúmteppi er breitt vel yfir. Víða er svefnherbergi einnig notað sem dag- stofa, og þá eru rúmstæðin einnig notuð sem sæti. Er þá sjálfsagt að hafa ábreiðu, sem fellur vel, fer vel og er úr hentugu efni. I þessi lausu áklæði og ábreiður er heppilegt að hafa efni, sem þola vel þvott, hafa ekta lit, sem hvorki breytist í dags- ljósi né þvotti, ættu ekki að hlaupa né krypplast og vera sterk í notkun. Það þyrfti að mega þvo efnið svo oft, sem verða vill, án þess að það breytist. Bezt er að yfirborð efnisins sé slétt og jafnt og ekki með löngum flotþráðum, sem hætt er við að trosni og slitni. Nauðsynlegt er að þvo efnið og hleypa það áður en snið- ið er úr því, hafi það ekki verið gert áður (sanforizerað) eða vissa sé fyrir því að öðru leyti, að efnið hlaupi ekki. Athuga verður, að efni með stóru mynstri eða gerð eru ódrýgri í sniði, og verður að reikna það nákvæmlega út, hvernig sníðst úr því, áður en efnið er keypt. Gott er að fylgja eftirfarandi ráðum: Gáið að því að rétt liggi í öllum hlutum. Klippið snið úr bréfi og merkið rendur inn á það, svo að auðveldara sé að sníða eftir því. Merkið með títuprjónum eða krítið á efnið, áður en þér klippið, svo að þér séuð vissar um, að efnið sé nógu mikið. Athugið að sníða með saumfari, og ef þér þurfið að auka, þá gáið að því, að aukarnir falli vel saman. Bezt er að þræða saman áður en saumað er. Kastið eða ,,sikksakkið“ sauma á röngu. Einfalt stóláklæði (sjá 1. og 2. mynd). Efnið má vera bómullarefni, hörefni, hörlíki eða gerviullarefni. Sé stóllinn ekki með neinu föstu áklæði, er betra, að efnið sé þétt og beri sig vel. Áklæðið, sem sýnt er á 2. mynd, er með lausum skákanti utan yfir og fremur ætlað sem hlíf utan á öðru föstu áklæði, mætti það þá vera úr þynnra efni. Gleymið ekki að athuga, hvort efnið hleypur, og hleypið það þá, áður en sniðið er úr því. Miðað er við, að stólsetan sé 50 sm á hvern kant. Yfir- leitt er drýgra að sauma á fleiri setur í einu. 20 Húsfreyjan

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.