Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 27

Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 27
á röngu, þar sem bakið þynnist og gengur inn undir setuna. Setan: Leggið efnið á setuna og nælið það fyrst í miðju, strengið það vel og nælið síðan á brúnunum. Saumið úr fyrir hornunum, svo að þau fari vel. Látið áklæðið ná 5 sm inn undir brúnina að framan. Sníðið með 1,5 sm saumfari. Dragið áklæðið fram af setunni, þræðið það sterklega og reynið það rétthverft á. Saumið saman og faldið að neðan. Heppilegt er að hafa tvöfalda sauma, sé öruggt að efnið hlaupi ekki. Þá þarf ekki að kasta sauma, engin hætta á að rakni úr þeim og áklæðið situr betur. Rúmábreiða. Heppilegt er að velja létt og mjúkt bómullar- eða gerviullarefni. Mislit efni virðast oft ekki eins viðkvæm og einlit efni. Rúmstæði eða legubekkur með svona ábreiðu er hentugt sæti, sem nota má mikið. Venjuleg stærð á rúmstæði er 195 x 90 sm, hæð 55 sm. Af 90 sm breiðu efni þarf um 6.5 m, en af 140 sm breiðu þarf um 4.75 m í á- breiðu með rykktum kanti báðum megin. Sjálf ábreiðan er látin ná 25 sm niður með dýnunni til beggja enda. Sé rúm- stæðið látið standa upp við vegg, og ekki talin þörf að hafa rykktan kant nema á annarri hliðinni, er reiknað með, að á- breiðan nái 25—30 sm niður með dýn- unni þeim megin. Hafið 2 sm innanbrot á ábreiðunni á öllum hliðum. Ef auka þarf efnið saman, þá reynið að gera það svo, að sem minnst beri á því. Rykkti kantur- inn er sniðinn tvöfalt lengri en rúmstæðið er og 45 sm á breidd. Ekki er þó fallegt að hafa hann of breiðan. Hafið faldinn 1.5 sm breiðan að neðan og brjótið svo mikið inn að ofan, að hægt sé að láta um 1.5 sm standa upp af, þar sem rykking- in kemur og saumurinn. Rykkti kant- urinn á að vera jafn langur og rúmstæð- ið er, þegar búið er að rykkja hann. At- hugið, að rykkingarnar séu jafnar beggja vegna við miðju. Snyrtilegt er að útbúa 12. mynd koddaver eins og sýnt er á myndinni úr sama efni, og setja koddann í það á dag- inn. Hentugt er að loka því með rennilás, svo að auðvelt sé að smeygja koddanum úr og í. MANNELDISÞÁTTUR (framhald) að gufa komizt út. Einnig er hægt að láta deigið ofan á eins og grindverk. Smurt með mjólk eða eggi, bakað við 225° í nál. 25 mínútur. Borið fram volgt með þeyttum rjóma eða vanillusósu. Rabarbaradrykkur 1 kg rabarbari IV2 1 vatn 4 negulnaglar Rabarbarinn hreinsaður og skorinn í bita. Soðinn ásamt negulnöglunum í nál. 10 mínútur. Saftin síuð og sykrinum hrært saman við. Þegar saftin er köld er hún brögðuð til með sítrónusafa. Svalandi drykkur á heitum sumardegi. I 2. tölubl. 10. árgangs eru uppskrift- ir að aldinmauki, saft o.fl. úr rabarbara, svo að mér þykir óþarfi að endurtaka það nú. 2 dl sykur V2 sítróna H ú s f r ey j an 27

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.