Húsfreyjan - 01.04.1961, Side 26
HEIMILISÞÁTTUR (framhald)
10. mynd
Áklæðið er saumað í tvennu lagi, á
setuna og bakið, hvort fyrir sig. Bezt er
að losa setuna úr stólnum, sé það hægt,
áður en málið er tekið (sjá 11. mynd).
Takið mál A af hæð baksins að framan,
þar sem hún er mest. Takið sams konar
mál að aftan. Bætið 6 sm við þessi mál,
hvort um sig, fyrir saumum. Takið mál B,
þar sem bakið er breiðast, bæði að fram-
an og aftan. Bætið 4 sm við hvort um sig
fyrir saumum. Mælið lengd setunnar (C)
og bætið þar við 5 sm að framan, til að
brjóta inn undir, en 3 sm að aftan fyrir
saum. Bætið 3 sm við breiddina á set-
unni (D).
Efnisþörfina verður að reikna þannig:
Af einbreiðu efni: Lengra A-málið þre-
falt + tvisvar sinnum C.
Af tvíbreiðu efni: Tvöfalt A-málið + C.
Bætið saumum við.
Athugið að efnið sé hleypt eða hleypið
það áður en sniðið er úr því. Gerið ráð
fyrir því, þegar efnið er keypt, að það
kunni að hlaupa. Bómullarefni hlaupa
venjulega 5—10% (meira á lengd en
breidd), óbleikt bómull 10—15%.
Efnisþörf á venjulega stærð á stól:
Breidd: 60— 90 sm ......... um 4,85 m
Breidd: 100—150 sm um 2,90 m
Leiðbeiningar: Klippið stykkin á bakið
fyrst sem tvo ferninga (annan að framan
og hinn að aftan. Það er ekki gott að
koma pappirssniðum við, þar sem nauð-
synlegt er að strengja talsvert á efninu).
Bezt er að næla efnið fast á stólinn, en
klippa það síðan. Nælið fyrst framstykk-
ið mitt á miðju baksins og snúið röngunni
út. Strengið það síðan út til hliðanna og
að ofan og neðan og nælið fast. Farið síð-
an eins að með afturstykkið, strengið það
fram með hliðunum og brúninni að ofan
og nælið það fast við framstykkið. Klippið
síðan eða sníðið eftir stólnum og hafið
1,5 sm í saumfar. Takið úr títuprjónana
að neðan og á annarri hliðinni, takið
klæðið af, þræðið það síðan saman með
sterkum þræði, snúið því við og reynið
það á stólbakinu rétthverft. Saumið í vél.
Faldið áklæðið að neðan með 3 sm saum.
Ef hægt er að koma því við, er ágætt að
krækja áklæðið saman undir bakinu. Fest-
ið þá í faldinn króka og lykkjur, sitt á
hvort stykki. Annars verður að festa á-
klæðið á annan hátt, t.d. með smátittum
að aftan og sauma við fóðrið að framan.
Gætið að því að áklæðið sitji svo strengt
sem mögulegt er. Faldið brúnina sem
leggst að örmunum. Hentugt er að sauma
rennilás i aðra hliðina. Takið sauma úr
26
Húsfreyjan