Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 5

Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 5
vörturnar við og fyrirbyggja, að á þeim myndist sár. Eftir að barnið er fætt, skal gæta þess vandlega að láta sér ekki verða kalt. Góð regla er að hafa stykki, helzt ullarstykki, við brjóstin þegar farið er út. Einnig á að varast að sulla mikið í köldu vatni. Fylgj- ast ber vel með því að brjóstin séu mjúk og ósár viðkomu og það er góð regla að tæma þau einu sinni á sólarhring. Stund- um getur verið nauðsynlegt að tæma þau oftar, en varast ber mjög að handfjalla brjóstin um of. Ef þessa, sem hér er nefnt, er gætt, auk hreinlætis, koma brjósta- mein varla til greina. Óska ekki flestar mæður eftir að geta haft börn sín á brjósti? Yfirgnæfandi meirihluti óskar þess, en það fer áreiðanlega oft eftir afstöðu móð- urinnar í því máli, hvort nægileg mjólk myndast í brjóstunum. Því heyrist fleygt, að sumar konur telji það of bindandi að hafa börn á brjósti, en það er misskiln- ingur að svo þurfi að vera. Mæðurnar geta mjög ráðið því sjálfar innan vissra tak- marka, hverjir verða matmálstímar barn- anna og það er sannarlega ekki minni fyrirhöfn að blanda í pela og allt sem því fylgir, en að leggja barnið á brjóst og veita því þannig milliliðalaust þá nær- ingu, sem því er tvímælalaust hollust. Það kemur fyrir að mæður verða að beita þol- inmæði og lægni, en ég held að flestum, sem eru ákveðnar í að hafa börn sín á brjósti, takizt það. Eg veit að þér hafið lært til þess að kenna barnshafandi konum afslöppunar- æfingar. Viljið þér vera svo góð að segja mér eitthvað um þær? Höfundur þessa æfingakerfis er enskur læknir, dr. G. D. Read. Grundvöllur þess er að búa konuna á einfaldan og heilbrigð- an hátt undir það, sem í vændum er. Dr. Read segir, að versti óvinur verðandi mæðra sé óttinn og hann skapist í flestum tilfellum af þekkingarskorti. Af óttanum skapast spenna, sem síðan veldur sárs- auka. Viti konan að mestu, hvað er að ger- ast, hverfur óttinn og sé hún búin að und- irbúa sig með viðeigandi afslöppunar- og leikfimisæfingum, þá á fæðingin að verða tiltölulega sársaukalítil, ef allt er eðli- legt. Hve snemma á meðgöngutímanum ættu konur að hefja þessar æfingar? Sérfræðingar segja, að þær eigi að byrja, þegar þær séu komnar þrjá mán- uði á leið, en reynsla mín er, að ef þær byrja svo snemma, slái þær frekar slöku við framan af tímanum og ætli svo að herða sig um of síðast. Því tel ég heppilegast að þær byrji um miðjan með- göngutímann, þá endast þær til að gera æfingarnar jafnt og þétt allan tímann. Eru konur að jafnaði deyfðar hér með- an á fæðingu stendur? Það fer algerlega eftir því, hvers þær óska. Það er mjög ríkt í vitund kvenna, að erfiðasti þáttur fæðingarinnar sé koll- hríðin, en það er misskilningur. Þá er erfiðasta stiginu í flestum tilfellum lok- ið og hafi þær ekki óskað eftir deyfingu fyrr, verða þær undrandi á því hve þetta síðasta stig er létt. Þekking manna á mikilvægi þess, að vel sé búið að mæðrum og börnum fer sívaxandi, og nú er vitað að oft veldur það úrslitum um þroska manna, hvernig þau skilyrði eru, sem barnshafandi og fæðandi konum eru búin. Hver stofnun, sem upp rís og rækir vel sitt lilutverk varðandi þau mál, vinnur gott og þakklátt verk. S. Th. Vont og verst Vont er að láta leiða sig, leiða og neyða. Verra að láta veiða sig, veiða og meiða. Vont er að vera háð, verra að lifa af náð. Gott er að vera fleyg og fær, frjáls í hverju spori. sinnið verður sumarblær, sáiin full af vori. Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum H ú s f r e y j an 5

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.