Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 8

Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 8
Sjaldgæfari, en skemmtilegar tegundir, eru eftirfarandi: Ástareldur: ber rauð blóm. Blásól: hefir undurfögur, blá blóm, er oft tvíær. Genfargras: hefir fíngerð blöð og blá blóm. Höfuðklukka: með stór, dökkblá klukku- blóm. Gullhnappur (Trollins): fleiri tegundir og afbrigði með mismunandi gul blóm. Jötunjurt: getur orðið yfir 1 m á hæð — með hvítlit blóm — blómgast lengi. Moskusrós: hefir bleiklit, stór blóm. Roðamjaðjurt: er skyld íslenzku mjað- jurtinni — en hefir rósrauð blóm. Roðafífill: ber rauðgul blóm. Risasól (valmúi): með afar stór, rauð blóm, sem því miður standa frekar stutt. Silfursóley: hefir hvít blóm, mjög falleg, og blómgast lengi. Risahvönn: getur orðið 2—3 m á hæð með feikna stórum sveipum, með hvítleit blóm. Veronika (Depla): Fleiri tegundir, mis- munandi að hæð, með blá blóm. Beztar eru langdepla og kós- akkadepla. Kóngaljós: hávaxin jurt með stórgerðum loðnum blöðum og gulum blómum. Algengast er að kóngaljós sé tviært, en oft sáir það sér sjálft. Upptalningin á ofangreindum plöntum er fyrst og fremst hugsuð sem örlítil vísbending til þeirra, sem eru stutt á veg komnir með að safna gróðri í garða sína; flestir þeir garðeigendur, sem lengra eru á veg komnir, munu eiga það, sem getið hefir verið um, og hafa þá jafnframt einhverja af fyrrgreindum bókum sér til stuðnings í áframhaldandi plöntuvali. Bezt er að gróðursetja fjölærar plönt- ur strax að vori, þegar hægt er að byrja að vinna jarðveginn í garðinum. Harð- gerðar plöntur, sem blómgast mjög snemma, t. d. mörtulykill og gemsufífill, er þó algengt að gróðursetja í byrjun ágúst. Fjölærar plöntur er bezt að gróður- setja aðeins dýpra en þær hafa staðið áður, einkum gildir þetta um plöntur, sem með árunum eiga það til að lyfta sér upp úr jarðveginum, t. d. morgun- roði og ýmsir lyklar. Ýmist er gróðursett í raðir eða óreglulega; seinni aðferðin v.irkar betur ef um stór beð er að ræða. Um vaxtarrýmið er erfitt að benda á á- kveðnar reglur. Oftast er talið að hæfi- legt vaxtarrými fyrir lágar og smávaxn- ar plöntur sé 15—35 cm á kant. Fyrir meðalháar plöntur hafa í flestum tilfell- um 35—45 cm, og fyrir hávaxnar plönt- ur 45—75 cm. Þó ber að gæta þess, að ein og sama tegund, þarf mismunandi vaxtarrými eftir vaxtarskilyrðum, sem standa henni til boða. Gróðursetn.inguna þarf að framkvæma þafmig, að plönturn- ar þeki það svæði, sem þeim er ætlað, eftir 2—3 ár frá niðursetningu. Margar fjölærar plöntur þurfa stuðn- ing þegar þær fara að teygja úr sér. Verð- ur að gæta þess að binda þær upp í tæka tíð. Uppbindingu þarf að haga þannig, að plönturnar standi eins eðlilega upp- réttar og tök eru á, og án þess að það, sem notað er til stuðnings verði of á- berandi. Einfaldasta aðferð við uppbindingu er að setja prik við hverja plöntu og sveipa basti eða seglgarni um alla sprotana. Einnig má binda hvern sprota út af fyrir sig við prikið, sem þá er komið fyrir í miðri plöntunni. Þess skal gæta að nota efnivið til uppbindingar, sem ekki er um of frábrugðinn plöntunni að lit. Mjög ein- föld og hentug uppbindingsaðferð er það að klippa smá vírbút (hænsnanet) af sömu stærð og þvermál plöntunnar, og leggja hann yfir sprotana í tæka tíð. Sprotarnir vaxa fljótt í gegn um netið. Á mjög háar plöntur er rétt að setja tvö lög af vír. Möskvavídd netsins verður að 8 Húsfreyjan

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.