Húsfreyjan - 01.04.1961, Síða 15

Húsfreyjan - 01.04.1961, Síða 15
heimta, og niðurstöðurnar bornar saman við þá orku, sem beita þarf við ýms lík- amleg störf. Niðurstöðurnar eru oft næsta furðulegar. Hver myndi trúa því, að sú orka, sem vélritunarstúlka notar til venju- legs dagsverks samsvari því, að hún lyfti ellefu tonna þunga með fingrunum? Að fenginni þessari vitnezkju má teljast óhrekjandi, að einhvern tíma dags þurfi vélritunarstúlkan að slaka á og hvílast, en þeir sem ekki hafa áhuga fyrir líkams- æfingum spyrja, hvort ekki sé nóg að gefa henni frí til þess að fá sér kaffibolla? Því svaraði sænsk skrifstofustúlka svo: ,,Ef ég fæ mér kaffi, þá lyppast ég bara ofan í stól og hugsa ekkert um, hvernig líkam- inn hvílist, en ef ég geri líkamsæfingar, þá finn ég, að ég vinn að því að halda honum hraustum“. Fyrir skömmu lét Aatvidaberg gera kvikmynd af hvíldaræfingum fyrir kyrr- setufólk og nú er sú kvikmynd sýnd í stór- fyrirtækjum viða um Evrópu. Vellíðan kyrrsetufólks er því að verða eins konar útflutningsvara frá Svíþjóð. Yfirmenn stofnana eru teknir að viður- kenna, að tíu mínútna vinnutapið, sem þessar líkamsæfingar krefjast, skapar betri afköst og starfsliðið finnur, að hin- ar daglegu æfingar vernda það fyrir hin- um algengu afleiðingum kyrrsetunnar, svo sem að bak bogni, gigt setjist í hand- leggi og mjaðmirnar þrekni óeðlilega. 1. æfing (sitjandi eða standandi). Látið armana hanga beint niður með hliðunum, lyftið öxlun- um og látið þær svo síga, en hafið arma slaka. Endurtakið í nokkur skipti. 2. æfing (sitjandi). Lútið fram til hálfs, látið armana falla slaka niður, ypptið öxlum til skipt- is nokkrum sinnum, rísið hægt upp og réttið vel úr bakinu. 3. æfing (sitjandi eða standandi). Snúið höfð- inu til vinstri, látið það falla rólega áfram, snú- ið til hægri og lyftið höfðinu þá um leið, endur- takið nokkrum sinnum fram og aftur. Tíu mínútna hléið! Húsfreyjan 15

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.