Húsfreyjan - 01.04.1961, Síða 19

Húsfreyjan - 01.04.1961, Síða 19
f heimilispáttur Klœðið húsgögnin sjálfar Á marga vegu má skapa vistlegt heim- ili og notalegt, auðvelt og þægilegt í um- gengni. Sú vefnaðarvara, eða þau efni, sem valin eru til heimilisins, setja ekki minnstan svip þar á. Auðvelt er að skipta um svip í stofunni með því að kaupa ný gluggatjöld, skipta um ábreiðu á legu- bekknum, eða hressa upp á gömul hús- gögn með nýjum áklæðum eða nota laus áklæði, sem skipta má um eftir vild og á- stæðum. Allt kostar þetta nokkuð, og sjálfsagt er því að velja af hagsýni, svo að efnin endist vel og haldi sér sem lengst, án þess að verða úrelt. Þegar keypt eru húsgögn með föstu á- klæði eða áklæði valið og síðan sett á af fagmanni, verður það yfirleitt nokkuð dýrt, og viljum við þá hlífa áklæðinu sem mest í notkun fyrir óhreinindum og sliti. Sumir velja því dökkleitt áklæði, sem ekki er mjög viðkvæmt fyrir óhreinindum, en þá er ekki lengur um það að ræða að velja létta og ljósa liti í umhverfi sitt. Þó er enn verra, þegar húsgögn bera svip af því, að ekki megi nota þau eftir þörfum, að þar sé sýnd veiði en ekki gefin. Eink- um er hætt við að svo fari á barnaheim- ilum. En þar er einmitt heppilegt að nota laust hlífðaráklæði, svo að húsgögnin geti komið að fullum notum í daglegu lífi heimilisfólksins. Væri ekki einnig heppi- legt, að hafa slík hlífðaráklæði á sveita- heimilum, t. d. yfir háannatímann um sláttinn, þegar allir ganga til útivinnu, eða á öðrum tímum eftir ástæðum, svo að heimilisfólkið geti með góðri samvizku tyllt sér niður inni í stofu eða annars staðar, þar sem vel fer um það? Það eru mörg efni í verzlunum, sem ekki eru nægi- lega sterk eða heppileg í fast áklæði, en hæfa betur í laust áklæði, svo sem ýmis gerviullarefni og litþrykkt bómullar- eða hörefni. Þannig má auka fjölbreytni lita og nota ljósa liti eftir vild, þar eð auðvelt er að taka áklæðið af og þvo eða hreinsa það. Þessi efni eru yfirleitt ódýrari en al-ullarefni sem þykja bezt í fast áklæði, og mætti því breyta oftar um áklæði eft- ir ástæðum. J H ú sf r ey j a n 19

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.