Húsfreyjan - 01.04.1961, Page 28
Margrét Jóhannsdóttir:
Meðferð ungbarna
2. Imttur
Áður en barnið fæðist, þarf móðirin að
hafa til handa því rúm — eða körfu til
bráðabirgða — og svo auðvitað fatnað.
Um fatnaðinn tala ég ekki að þessu sinni,
en rúmið skulum við aðeins taka til at-
hugunar. Rimlarúm er bezt, því það getur
barnið átt fram eftir aldri, og rimlana
notar það nokkurra mánaða gamalt til að
æfa handleggina og þroska vöðvana, án
þess þó að hætt sé við að það detti fram
úr.
Barnið má alls ekki sofa hjá foreldrum
sínum eða öðrum, því bæði getur stafað
af því smithætta og svo hafa komið fyrir
slys í því sambandi.
í barnarúminu á að vera slétt og stinn
dýna — til dæmis úr ullartróði — og lak,
en yfir miðju lakinu gúmmíklútur, og
þverlak ofan á honum. Kodda er ekki
nauðsynlegt að hafa fyrstu mánuðina, að
minsta kosti má hann hvorki vera mjúkur
eða þykkur. Lítil sæng, létt en hlý, er látin
ofan á barnið.
I rúminu er barnið haft á friðsælum
stað, þar sem bjart er og loftgott, en helst
ekki við útvegg,' heitan miðstöðvarofn,
hurð eða glugga. Hæfilegur hiti í barna-
herberginu er um 18 stig, hann ætti helst
ekki að fara niður fyrir 15 stig og ekki
upp fyrir 20, nema meðan barnið er bað-
að.
Baðið hefir mikla þýðingu fyrir vellíð-
an barnsins. Heilbrigt barn þarf að baða
á hverjum degi, og er það venjulega gert
að morgninum fyrir máltíð, nema ef barn-
ið er óvært á nóttunni, þá getur verið gott
að baða það að kvöldinu, einnig fyrir mál-
tíð.
Ungbarnið er ekki látið ofan í baðkerið
fyrr en naflinn er vel gróinn. Þangað til
er því aðeins þvegið, og skal nú farið
nokkrum orðum um þvott og bað barns-
ins.
Það þarf að vera vel hlýtt inni og glugg-
arnir lokaðir. Bezt er, að standa við svo
hátt borð, að maður þurfi sem minnst að
beygja sig, t. d. eldhúsborðið, og hafa á
því ábreiðu með laki yfir. Þar ofan á
handklæði til að þurrka með andlit og
efri kropp, og bleyju til að þurrka að neð-
an. Ennfremur tvær mjúkar rýjur eða tvo
þvottapoka, annan merktan A — andlit
— ásamt góðri sápu og talkumi eða
smyrsli, naglaskærum, bómull og hár-
bursta. Baðkerið hafið þér á tveimur
stólum við borðið, og blandið nú vatn-
inu, fyrst köldu, svo heitu, vel saman,
þannig, að það sé þægilegt fyrir olnboga
yðar. Það er sérlega áríðandi, að vatnið
sé hæfilega volgt. Ef baðhitamælir er við
hendina, á hann að sýna 36 stig á Celsius
niðri í vatninu. Og nú er barnið lagt á
borðið, afklætt, og andlitið þvegið sápu-
laust, það þurrkað — og svo er allur lík-
aminn þveginn smátt og smátt, efri búk-
urinn fyrst, síðan sá neðri. Munið, að
þurrka jafnóðum fljótt og mjög vel, en
gætilega. Að lokum er sáldrað örlitlu dufti
á húðina í hálsakoti, í olnbogabótum og
í náranum. Sé húðin rauð eða viðkvæm,
má bera á hana gott smyrsl i staðinn fyr-
ir talkum. Barnið er svo klætt í hrein,
þurr og hlý föt, en dúðið það ekki of mik-
ið.
Séuð þér ekki vanar að baða barn, þá
ættuð þér, áður en ljósmóðirin skilur við
yður, að sjá, hvernig handtök á að hafa,
eða, ef það kemur til yðar heilsuverndar-
hjúkrunarkona, og þér eruð enn ekki ör-
uggar, þá biðjið hana að leiðbeina yður.
Því betri aðbúð og umhirðu sem litla
barnið yðar hefir, því heilbrigðara og vær-
ara verður það.
28
Húsfreyjan