Húsfreyjan - 01.04.1965, Page 22
Bakað í velsmurðu, brauðmylsnustráðu
móti við 200° um 20 mínútur. Á meðan
er allt sem á að fara ofan á kökuna, soðið
augnablik saman í potti.
Aldinmaukið sett ofan á kökuna, síðan
bráðin. Kakan sett inn í ofninn á ný, þar
til hin er fallega brún að ofan. Kaka þessi
batnar við geymslu.
Haframjölskaka
100 g smjörlíki
2 eggjahvítur
2 eggjarauður
150 g sykur
3 dl haframjöl
1 msk eplamauk,
full
50 g malaðar
möndlur
IV2 tsk lyftiduft
Smjörlíkið brætt. Eggjahvíturnar stíf-
þeyttar, eggjarauðunum og sykri blandað
saman við, þeytt dálítið. Haframjöli, epla-
mauki, möndlum og lyftidufti blandað
saman við. Síðast er smjörlíkinu hrært
saman við. Bakið í lausbotna, velsmurðu
móti við 150° í 40—50 mínútur. Bráðin
soðin saman, hellt heitri yfir kökuna.
Ofan á:
50 g smjörlíki
V2 dl rjómi
1 msk sykur
V2 msk kakao
V2 tsk hveiti
Ávaxtakaka með hnetum
1 egg
3 dl sykur
3% dl mjólk
6 dl hveiti
5 tsk lyftiduft
100 g bráðið smjörliki
Ofan á:
100 g smjörlíki
1 dl sykur
1 msk hunang
50 g hnetukjarnar,
saxaðir
1 msk hveiti
1 msk vatn
3 epli
I kökuna er öllu blandað saman, hrært
um stund. Deiginu hellt í velsmurt fer-
kantað mót 30x40 cm og bakað við 175—
200° um 15 mínútur.
Ofan á: Smjörlíkið brætt, sykri, hun-
angi, hnetum, hveiti, vatni og flysjuðum,
brytjuðum eplum blandað saman við. Hit-
að þar til suðan kemur upp. Hellt yfir
hálfbakaða kökuna, sem síðan er fullbök-
uð.
Bezt nýbökuð.
Súkkulaðiterta
200 g smjörlíki
250 g hveiti
75 g sykur
2 msk kakaó
Krem:
3 egg
2 dl rjómabland
100 g smjör
2 msk vanillusykur
Búið til venjulegt hnoðað deig, sem
flatt er út í 3 kringlótta botna. Bakað
við 175° í 12 mínútur. Farið varlega með
botnana. þeir eru svo stökkir.
í kremið er rjómablandið hitað, hellt
heitu yfir sundurslegin eggin. Hellt í pott-
inn aftur, soðið þar til fer að þykkna.
Hrært vel í á meðan. Kælt, smjörinu og
vanillusykri hrært smátt og smátt saman
við. Botnarnir lagðir saman með kreminu,
kakan skreytt með þeyttum rjóma og
söxuðum hnetum.
Heilhveititerta
4 egg
3 dl sykur
4 msk mjólk
3 msk smjörlíki
3 dl heilhveiti
2 tsk lyftiduft
Eplamauk
Þeyttur rjómi
Egg og sykur þeytt vel, mjólk og
bræddu smjörlíki hrært saman við ásamt
heilhveiti og lyftidufti.
Bakað við 200° í 25 mínútur, þá er
hitinn minnkaður niður x 175° og kakan
fullbökuð um 25 mínútur. Kakan klofin í
þrennt, lögð saman með velkrydduðu epla-
mauki.
Skreytið kökuna með þeyttum rjóma
og rauðu aldinmauki eða rifnu súkkulaði.
20
HÚ8PBEYJAN