Vera - 01.03.1985, Side 11

Vera - 01.03.1985, Side 11
» * Hin ósýnilega veröld Það undarlega við þessa veröld — ja er það nú annars svo undarlegt? — veröld kvenna i þróunarlöndum er það, að hún hefur til skamms tíma verið ósýnileg. Fyrstu áratugina eftir síðari heimsstyrjöldina, þegar ný- lenduþjóðir Asíu og Afríku hlutu sjálfstæði, átti að byggja upp nýja fagra veröld velsæld- ar. Það var ekkert mál. Það þurfti bara að auka frelsi í við- skiptum og efla þau, gera áætl- anir, veita styrki og lán og þró- unaraðstoð, senda út vest- ræna sérfræðinga, mennta al- þýðu manna og þá myndi allt koma af sjálfu sér með tíð og tíma. Þróun var lausnarorðið og með þróun var átt við fram- þróun, öfugþróun eða afturför var í raun óhugsandi. Reyndin varö líka sú að víðast hvar urðu nokkrar framfarir mældar í hagvexti. Skýrslur sýndu að tekjur á mann jukust í flestum löndum, en skýrslurnar sýndu líka að hagvöxtur og almenn velmegun jókst mun meira á Vesturlöndum og að bilið á milli rikra þjóða og snauðra breikkaði. Þeir sem ráða ráð- um heimsins urðu að læra þá bitru lexíu, að hagvöxtur er engin trygging fyrir almennri velmegun og að aukin fæðu- framleiðsla í heiminum kemur ekki af sjálfu sér í veg fyrir hungurog næringarskort. Þeir urðu að horfast í augu viö það að hin fagra nýja veröld lætur standa á sér, eymd og hungur eru enn örlög milljóna jarðar- búa. Þótt þjóðir heims hafi flestar orðið ríkari eru fátæk- lingar sem ekki eiga fyrir brýn- ustu nauðsynjum fleiri en nokkru sinni fyrr. Þetta varð til þess að vest- rænar ríkisstjórnir og alþjóða- stofnanir með Alþjóðabank- ann í broddi fylkingar ventu sínu kvæöi í kross — nú skyldi tekin upp ný stefna — nú skyldi stefnt að því að sjá öllum jarð- arbúum fyrir undirstöðu þörf- um, fæðu, klæði, hreinu neysluvatni, húsaskjóli og öryggi. Slagorðið var Basic Needs — undirstöðuþarfir! En þá brá svo við að þessi veröld, veröld kvenna í þróun- arlöndum, kom í Ijós, þegar sjónum var beint að hinum fá- tækustu! Úr skúmaz skotinu við eldstóna Sú kona, sem mestan þátt átti í því að leiða konuna í þró- unarlöndum úr skúmaskotinu við eldstóna, þar sem hug- myndaheimur karlasamfélags- ins hafði fundið henni stað, fram á svið líðandi atburða var danski félags- og hagfræðing- urinn Ester Boserup, sem hef- ur stundað merkilegar rann- sóknir í þróunarlöndum og starfað lengi hjá Sameinuðu þjóðunum. í bók sinni Women’s Role in Economic Development (Hlutverk kvenna i efnahagsþróuninni), sem kom út 1970 og hefurver- ið þýdd á fjölda tungumála, m.a. á dönsku og sænsku (Kvinna í u-land), sýnir hún fram á að alls staðar í þróunar- löndum gegna konur veiga- miklu hlutverki í framleiðslu- störfum, þótt lítið fari fyrir þeim í opinberum skýrslum, enda eru þau oftast ólaunuð land- búnaöarstörf, sala eigin afurða eða handavinna á mörkuðum og tilfallandi störf af ýmsu tagi. Rannsókn Esterar Boserup leiddi ekki aðeins I Ijós að störf kvennanna eru mikil að vöxt- um heldur einnig að verulegur munur^er á hlutverkum kvenna í framleiðslunni eftir heimshlut- um. Hún komst að þeirri at- hyglisverðu niðurstöðu að verkaskipting milli kynjanna í landbúnaði ráðist ekki fyrst og fremst af hinum menningar- bundnu hugmyndum um hvað sé rétt og eðlilegt út frá líffræði- legum hlutverkum þeirra, held- ur skipti eignarfyrirkomulag á jörðum og samsetning vinnu- aflsins meginmáli. Þannig Verkaskipting í landbúnaði í Afríku Störf Hlutfall af heildar- vinnustundum Karlar Konur Fella tré og stika út akra 95 5 Bylta jaröveginum 70 30 Sá og setja niður græðlinga 50 50 Losa um jarðveginn og reyta illgresi 30 70 Skera upp 40 60 Flytja uppskeruna heim af örkunum 20 80 Koma uppskerunni fyrir til geymslu 20 80 Vinna úr uppskerunni 10 90 Flytja og selja umframbirgðir á markaði 40 60 Klippa og snyrta ávaxtatré og runna 90 10 Sækja vatn og eldiviö 10 90 Brynna búsmalanum og hreinsa kvíar 50 50 Veiða 90 10 Fæða oa annast börn. karla oa aldraða 5 95 Eftir: UNCA: Women of Africa, Today and Tomorrow. 1975. 11

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.