Vera - 01.03.1985, Blaðsíða 36

Vera - 01.03.1985, Blaðsíða 36
Listahátíð kvenna flugfreyjanna bara veriö svona hnökra- laust. Annars eru viötölin í þessari bók mjög í hinum landsfræga helgarblaöa-stíl: ætt, uppruni, bernsku- og æskuár tíunduö allít- arlega áður en hægt er aö snúa sér aö efn- inu. Og efniðsjálft—flugfreyjustarfiðaltso — ekki ómerkara en hvur önnur störf sem skráð hafa verið á bækur. Og konurnar kjarnmiklar og án efa sjálfstæöar þó ég leyfi mér að efast um orö skrásetjara sem segir í formála: „Það er eitthvað í fari flug- freyja, sjálfstæði og dirfska, sem gerir þær frábrugðnar öðrum konum.. . Má með sanni segja að þar (þ.e. í flugfreyjustétt) sé samankominn blómi íslenskra kvenna.” Óþarfi að láta tilfinningarnar yfir- buga sig, Bryndís, þó auðvitað tendrist þær alltaf eitthvað í hita vinnunnar. Frá- gangur bókarinnar er ágætur, ég man ekki eftir nema einni prentvillu. Stafirnir eru óskaplega hávaxnir, en eflaust góðir fyrir sjóndapra. Sonja B. Jónsdóttir. Nú er unnið að því að skipuleggja Listahátíð kvenna sem verður einn lið- ur í hátíðahöldum í tilefni þess að í ár er seinasta ár þessa áratugar er Samein- uðu þjóðirnar ákváðu að helga konum. Inntak listahátíðarinnar verður að kynna það sem konur hafa best gert í listum og bókmenntum hérlendis. Fyrirhuguð er myndlistarsýning á KJARVALSSTÖÐUM dagana 21. september til 8. október 1985. Öllum myndlistarkonum í landinu er boðið að senda inn Ijósmyndir (litmyndir á pappír eða litskyggnur) af a.m.k. 5 verkum ásamt upplýsingum um nafn heimilisfang og símanúmer. Gögn þessi þurfa að hafa borist KJARVALS- STÖÐUM fyrir 15. maí 1985. Vinsam- legast merkiö innsendinguna með „LISTAHÁTÍÐ KVENNA ’85". Dómnefnd skipuð 5 konum (listakon- um og listfræðingum) mun velja verkin. Niðurstöður dómnefndar liggja fyrir í byrjun júní 1985. Það skal tekið fram að þeim listakonum, sem valdar verða til þátttöku í sýningunni, er í sjálfsvald sett hvaða verk þær sýna. Verkin á sýn- ingunni geta vel verið önnur en þau sem send eru Ijósmyndir af. Dómnefndin áskilur sér rétt til aö hafna verkum ef þau sökum stærðar eða annars slíks henta ekki á þessa sýningu. Allar upplýsingar varðandi þessa sýningu má fá hjá Guðrúnu Erlu Geirs- dóttur í síma 21500 á þriðjudögum milli 17.00 og 19.00. ATH! Nú eru síðustu forvöð að eignast Veru frá upphafi. Tilboðsverð: 1000 kr. Hringið í síma 22188 og við sendum í póstkröfu. Við prentum fyrir ykkur Solnaprant sí Kirkjusandi við Laugarnesveg - Sími 32414

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.