Vera - 01.03.1985, Síða 16
1
>
Gharb er fiað sveitahérað í Marokko þar sem mest
áhersla hefur verið lögð á aðfæra atvinnuhœtti í nú-
tímalegra horf. Síðan í byrjun aldarinnár hafa
stjórnvöld, fyrst nýlendustjórn, og síðan innlend
stjórn landsins reynt að vélvæða landbúnaðinn sem
mest og tengja hann heimsmarkaðinum. Stjórnvöld,
þróunarsérfræðingar, skipuleggjendur og aðrir sem
staðið hafa aðþróunaráætluninni eru mjög ánægð-
ir með árangurinn.
Marokkanskur félagsfræð-
ingur, kona að nafni Fatima
Mernissi, hefur komist að því
að viðhorf bændakvennanna í
héraðinu er allt annað en ofan-
nefndra stjórnenda og sér-
fræðinga, sem auðvitað eru
næstum eingöngu karlar. Kon-
urnar í þessari paradís tækni
og fjármagns eru sammála um
að líf kvennanna í dag sé mun
erfiðara en líf mæðra þeirra og
formæðra.
Bænda-
Við gefum Aicha Bent
Ahmed orðið. Hún er 35 ára
bændakona með fjögur börn.
Maður hennar á tveggja hekt-
ara landskika.
,,Áöur fyrr voru störf kvenn-
anna mikilvæg og mikils metin.
Hver bóndi átti eigin jörð og
konan vann ýmist á jörð föður
síns eða eiginmanns. Hún sá
um kúa- og fjárhjarðir sem voru
nógu stórar til að sjá fjölskyldu
hennar fyrir mjólk, smjöri og
ull. Núerujarðirnarsvolitlarað
þær nægja ekki til framfærslu.
Við verðum að leita að vinnu
meðal ókunnugra — og til að
kóróna niðurlæginguna — það
er engin heiðvirð störf að fá.
Það er einungis um að ræða
konur í Marokko
árstíðabundna, óvissa vinnu.
Ríkið á nokkur mjög stór bú, en
fáir hafa þar stöðuga vinnu, og
það eru allt karlmenn. Við er-
um aðeins ráðnar þegar þeir
þarfnast mjög mikils vinnuafls í
stuttan tíma. Að öðru leyti kom-
ast þeir mjög vel af án kvenna.
Það er engin þörf fyrir okkur.
Fjölskyldan á ekki lengur jörð
til að yrkja og fyrirtækin hafa
ekki vinnu. Konur i rikum fjöl-
skyldum vinna á jöröum eigin-
manna sinna. Þær sem hafa
menntun, hafa stöðuga vinnu
eins og karlmennirnir. Þær
þurfa ekki að betla um illa laun-
uð og lítils virt störf, eins og ég.
Aö standa fyrir framan ein-
hvern „teknókratinn" á ríkis-
búunum, skítug og þreytt og
biðja um vinnu. — Hann er vel
menntaöur, vel klæddur. Hann
kann að skrifa, kann á tölvu.
Hann talar hægt. Allt er skipu-
lagt. Það ert bara þú sem ekki
passar neins staðar. Þegar
hann hikar, finnst mér ég vera
minna en ekki neitt. Á þeirri
stundu er maður tilbúinn að
selja hvað sem er. Skilurðu
hvað ég á við?
Mæður okkar höfðu það
betra. Þær áttu að vísu ekki
jarðirnar. Þær rifust við feður
sína, bræður og eiginmenn, en
þær voru þó á eigin heimili.
Mæöur okkar þurftu ekki að
betla á meðal ókunnugra.“
S.E.
Þaðerengin fiörffyrir
okkur. Ijölskyldan á
ekki lengur jörð íii að
yrkja og fvrirtœkin hafa
ekki vinnu.
*
*