Vera - 01.03.1985, Qupperneq 21
BÖRN BÖNNUÐ
Á ALÞINGI!
Ljósmynd Einar ÓL
Fæðingarorlof á dagskrá
Yfirleitt er heldur fámennt á svölum Al-
þingis, en þó ber viö að áhuga- og hags-
munahóþarfjölmenni á þallana þegar rœdd
eru mál sem þeim tengjast, eins og t.d. líf-
fræðingar og annað áhugafólk um umhverf-
ismál og náttúruverndþegar lífríki Mývatns
og áhrif kísilvinnslu þar á var til umrœðu.
Einnig má nefna að kennarar hafa að und-
anförnu verið tíðir gestirþegar staða þeirra
og kjör hafa verið á dagskrá. Eins og vera
ber hefur þetta fólk alltaf mætt kurteislegu
viðmóti. En svo hefur því miður ekki verið
um alla gesti sem heimsótt hafa hið háa Al-
þingi.
Þegar frumvarp um lengingu fæðingarorlofs var á
dagskrá 11. des. kom á annan tug ungra mæðra til að
fylgjast með umræðunni um það mál. Mörg börn voru
þar eins og liggur í augum uppi, því ekki verða korna-
börn skilin eftir ein heima. Þótti þingmönnum sem
nokkur ókyrrð hlytist af börnunum og forseti efri deildar
gerði athugasemdir í þá veru. Sigríður Dúna benti þá á
að mæður með ungabörn hlytu að hafa sama rétt og
aörir til að fylgjast með umræöum á Alþingi og sagði
jafnframt aö umgangur þingmanna í salnum truflaði sig
meira en börnin. Mæðumar fengu heldur kaldar kveðj-
ur af hálfu þingvarða og nokkrum var meinaöur að-
gangur að húsinu. Síðan hefur spurst að börnum sé
ekki lengur heimill aðgangur að þingsvölum, sem úti-
lokar þar með stóran hóp þjóðfélagsþegna frá því að
fylgjast beint með framgangi mála, þ.e. mæður barn-
anna.
Úr þremur mánuðum í sex
Frumvarp um lengingu fæðingarorlofs var áður flutt
á síðasta löggjafarþingi en náði þá ekki fram að ganga
og var nú endurflutt óbreytt í öllum helstu atriðum. Meg-
inmarkmið þess er að koma til móts við breyttar þjóðfé-
lagsaðstæður hér á landi og tryggja velferð barna og
foreldra þeirra eftir fæðingu barns. Helstu breytingar
frá núgildandi lögum eru þær að í fyrsta lagi miðar það
að lengingu fæðingarorlofs úr þremur mánuðum í sex
fyrir allar konur. í öðru lagi að fæðingarorlofsgreiðslur
miðist við full laun foreldris þannig að foreldri verði ekki
fyrir fjárhagslegu tapi vegna fæðingar barns. [ þriðja
lagi að allar konur fái a.m.k. óskert lágmarksfæðingar-
orlof, nú 18.333 kr., án tillits til atvinnuþátttöku. í fjórða
lagi að faðir eigi þess kost að taka fæðingarorlof í tvo
mánuði með samþykki móður. í fimmta lagi að orlofið
lengist um tvo mánuði sé um tvíburafæðingu að ræða
og um allt að fjóra eignist kona fleiri en tvö börn. í sjötta
lagi miðar frumvarpið aö því að fæðingarorlof verði
aldrei skemmra en þrír mánuðir ef móðir lætur barn frá
sér vegna ættleiðingar, uppeldis eða fósturs, svo og ef
barn fæðist andvana.