Vera - 01.03.1985, Side 22

Vera - 01.03.1985, Side 22
Laun en ekki styrkir Viö umræðuna um frumvarpið tjáðu sig þrír þing- menn um efni þess. Helgi Seljan og Kolbrún Jónsdóttir voru fylgjandi frumvarpinu en drógu þó í efa réttmæti þess að foreldri héldi fullum launum í fæðingarorlofi eins og launaskiptingu í landinu væri háttað. Því svar- aði Sigríður Dúna á þann veg að lagðar væru til grund- vallar þær forsendur að ekkert starf sem foreldri hefði með höndum úti á vinnumarkaðinum beri að meta hærra til launa en það starf að annast barn fyrstu ævi- mánuði þess. Auk þess væru konur fyrirvinnur heimila rétt eins og karlar og fá heimili hafa efni á að missa ein- hvers af tekjum sínum við þessar aðstæður. Þá lagði hún áherslu á að Kvennalistinn myndi aldrei leggja til að styðja neina þá tillögu sem gerði það að verkum að konur lækkuðu í launum á einn eða annan máta, síst af öllu refsa konum með launalækkunum fyrir að eignast börn. Þær greiðslur sem konur fá í fæðingarorlofi eru laun en ekki styrkir og liggur sú hugsun einnig til grund- vallar því að heimavinnandi konur og konur í hlutastarfi njóti a.m.k. fullra fæðingarorlofsgreiðslna sem lág- marksviðurkenningu á störfum sínum. Þar með er að nokkru leyti afnumið það óréttlæti, sem viðgengst sam- kvæmt gildandi lögum, og í verki viðurkennd réttar- staða heimavinnandi móður og gildi starfa hennar fyrir þjóðfélagið í heild, þótt langur vegur sé í að þau verði að fullu metin til fjár. Árni Johnsen hafði skoðun á mál- inu og kom henni á framfæri þótt ómálefnaleg væri. Hann sakaði Kvennalistakonur m.a. um að vera með frumvarpinu „aðtryggjaeigin rétt“. Þærgetajú áttbörn konurnar í Kvennalistanum! meta heimilisstörf til starfsreynslu Pegar konur fara út á vinnumarkaöinn eftir jafnvel áratuga reynslu við heimilisstörf og barnauppeldi œtti sú reynsla að fást viðurkennd ekki síður en almenn reynsla fengin á vinnu- markaðinum. Svo hefur pó alls ekki verið og starfsreynsla við ólaunuð heimilisstörf fengist í litlu metin. Heimilisstörf eru þjóðhagslega mikilvæg og á ári hverju spara heimavinnandi ríki og sveitarfélögum mikla fjármuni. Því hlýtur að teljast eðlilegt að þessir aðilar ríði á vaðið varðandi úrbætur á þessu sviði. í því skyni hafa þingkonur Kvennalistans boriö fram þings- ályktunartillögu sem er liður í endurmati á störfum kvenna, þar sem I tillögunni er farið fram á að heimilis- störf verði metin sem störf og að þeir sem inna þau af hendi fái þau metin sem starfsreynslu ef viðkomandi ræður sig til starfa hjá hinu opinbera. Tillagan felur í sér að þeir sem hafa haft ólaunuð heimilisstörf að aðalstarfi njóti sama réttar til starfsaldurshækkana og þeir sem hafa fengið starfsreynslu sína við launuð störf hjá hinu opinbera, en ein skýring á lágum launum kvenna er fólgin í því að starfsævi þeirra úti á vinnumarkaðinum er að jafnaði styttri en karla þar sem þær eru venjulega bundnar yfir börnum og heimilishaldi einhvern hluta ævinnar. Því má segja að tillagan um að meta heimilisstörf til starfsreynslu sé tvíþætt. Annars vegar felur hún í sér að heimilisstörfin séu metin eins og hvert annað starf. Hins vegar að starfsævi þeirra sem um ræðir sé metin í heild, en ekki aðeins hluti hennar eins og nú er. Vísir að þessu fyrirkomulagi hefur verið tekið upp sumstaðar á landinu, t.d. hjá Akureyrarbæ og í Kópa- vogi. Sigríður Dúna mælti fyrir tillögunni í lok janúar og eins og svo oft áður þegar ,,kvennamál“ hafa verið til umræðu voru aðeins örfáir þingmenn viðstaddir og fylgdust með. Að þessu sinni frá einum og upp í þrjá mestan hluta umræðunnar auk þingmanna Kvenna- listans. En félagsmálaráðherra sem var einn af áheyr- endum, lýsti fyllsta stuðningi sínum við tillöguna og málflutning Sigríðar Dúnu, sem að lokum óskaði þess að afgreiðslu málsins yrði hraðað eins og kostur væri.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.