Vera - 01.03.1985, Side 31

Vera - 01.03.1985, Side 31
— Þessar nýju hugmyndir sem Ingibjörg talar um, eru það ekki hugmyndirnar um kvennamenninguna? Jú, og þaö er rétt sem Ingibjörg segir aö þær vöktu strax í upphafi mikla athygli og deilur, bæði meöal hægri og vinstri kvenna. Vinstri konunum fannst þarna hróflaö viö grundvallarskoðunum sínum í pólitík og þá líka kvennapólitík. Sam- kvæmt sósíalisma eru konur flokkaðar í borgaralegar konur og verkakonur. Þessir tveir hópar eiga aöeins fátt sameiginlegt. Hins vegar er margt sem skilur þá aö. Sér- staklega ólík séttarstaða sem veldur því raunar aö hóparnir eiga að vera andstæð- ingar. Rauðsokkahreyfingin hafði þessa skoðun að leiðarljósi eftir 1974 þegar hún tókuppkjörorðið, „Kvennabaráttaerstétt- abarátta og stéttabarátta er kvenna- barátta". Margar konur sem stóðu að hug- myndinni um kvennaframboð 1981 voru úr Rauðsokkahreyfingunni. Hreyfingin var þá orðin þröngur marxískur hópur en eins og þú veist, leggja harðir marxistar mikla áherslu á að útmála hversu borgaralegar konur séu vondar og heimskar. Mér finnst þeir hafa tileinkað sér hráar hugmyndir Halldórs Laxness um borgaralegar konur. Hann lýsir þeim m.a. svo í Alþýðubókinni: ,,þær kunnaekki neitt, getaekki neitt, vilja ekki neitt, vita ekki neitt, hugsa ekki neitt. . ." Mér finnst enn áberandi svipuð viðhorf hjá mörgum sósíalistum. Sjálft orð- ið kvennamenning varð líka mjög viö- kvæmt mál hjá mörgum. Svo mjög aö þaö mátti ekki heyrast í stefnuskrá Kvenna- framboðsins. Ég held að það sé ekki kom- ið þar á blaö ennþá. — Var það kannski þess vegna sem þú hcettir þátttöku í Kvennaframboðinu? Fannst þér við ekki ganga nógu langt? Ja, ég varð afar hissa á þessu öllu sam- an og það varð til þess að ég ákvað að koma ekki nálægt þessum málum í nein- um samtökum eöa hópum. Starf mitt þar myndi bara vekja deilur og það vildi ég síst af öllu. Ég var búin aö sjá nóg af ósam- komulagi og deilum í kvennahópum allt frá stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar 1970. Þess vegna dró ég mig í hlé og fór að skrifa um kvennapólitík. Tilfinning mín fyrir þessu sumri er þess vegna ekki í þá veru sem Ingibjörg talar um. Mér fannst miklu fremur að enn einu sinni hefði ég brotlent. — Hvað áttu við með því? Nokkrum árum áður fór ég aö starfa í Alþýðubandalaginu í Kópavogi og var kos- in bæjarfulltrúi vorið 1974. Það var þegar stóru karlarnir á þeim bæ litu hýru auga til Rauðsokkahreyfingarinnar og sóttu þang- að „heppilegar" konur. Ég var ein þeirra og lét tilleiðast aö fara í framboð, hélt eins og konur í stjórnmálum gera yfirleitt að þær ættu að verða til nokkurs gagns. Láta gott af sér leiða. Óðar en varði komst ég aö öðru, þó ekki fyrr en ég hafði rekist harka- lega á veldi „Stóra bróöur". Þá loksins skildi ég leikreglurnar í flokkapólitíkinni, tók sósíalismann til rækilegrar endurskoð- unar m.a. með tilliti til kvenna, sagði af mér bæjarfulltrúaembættinu 1979 og sagði mig úr flokknum. Allt var þetta meiriháttar brotlending en um leið mikil frelsun. Það var eins og Esjunni hefði verið létt af herð- um mér. — Hvencer kynntist þú hugmyndunum um kvennamenningu? Um þetta sama leyti. Haustið 1978 fór ég að starfa í kvennahópi í Norræna sum- arháskólanum og þar bar þessar hug- myndir mjög á góma. Margar konur í Skandinavíu voru þá sem óðast að endur- skoða kvennabaráttuna. Margar vinstri konur höfðu lent í svipuðum árekstrum og ég við karlana og karlveldi vinstri flokk- anna. Ég hreifst strax af þessum hug- myndum, mér fannst ég finna í þeim e.k. týndan hlekk. Veturinn 1980—'81 sökkti ég mér enn betur ofan í þessa hluti og kvennapólitík yfirleitt. Ég dvaldist þá í Sviþjóð og las kvennasögu við Háskólann í Gautaborg og starfaði í Forum för kvinno- forskning. Allt var þetta eins og heljar- mikil vítamínsprauta, mjög kærkomin eftir hina þrúgandi og þröngsýnu pólitík sem ég hafði tekið þátt í heima. — Þó hugmyndafræði kvennamenning- arinnar hafi fengið töluverðan hljómgrunn hin síðari ár þá er hún í sjálfu sér ekki ný, eða er það? Nei, þessar kvennamenningarhug- myndir eru síöur en svo nýjar af nálinni. Mér sýnist að konur á fyrra skeiði kvenna- baráttunnar hafi verið að velta fyrir sér svipuöum hlutum um 1920—30 og leng- ur. Þaö sést þegar fariö er að skrifa um þessar konur og hvað þær voru aö gera. Ein þeirra var sænska skáldkonan og kvenréttindakonan Elin Wágner. Hún lifði frá 1882 til 1949. 1941 kom út eftir hana bókin Váckarklocka sem er um mæðra- veldi og kvennamenningu. Alveg yndisleg bók, hugljúf og full af lífsvisku enda er þar skynsöm og reynd kona að útskýra fyrir öðrum yngri og óreyndari hin eilífu og ein- földu lífssannindi. Þar gegnir konan og móðirin miklu hlutverki. Elinu verður tíð- rætt um „hinn kvenlega kraft (dynamik)" og ekki að ástæðulausu. Helsti talsmaður kvennamenningar á Noröurlöndum núna mun vera félagsfræðingurinn Berit As. Hún notaði fyrst þetta orö árið 1973 og segist hafa valið þaö eftir langa umhugsun af því að það skýri best að til séu verð- mæti, lífssýn og heimsmynd sem konur eiga sameiginlega en sem körlum er ill- skiljanleg eða ósýnileg meö öllu. — Voru þessar hugmyndir um kvenna- menningu ekki mikil umskipti fyrirþig? Þú hafðir jú tekið þátt í því að ýta Rauðsokka- hreyfingunni úr vör og varst íþeim hópi sem tók þá afstöðu á Skógum árið 1974, að kvennabarátta væri stéttabarátta og stétta- barátta kvennabarátta. Jú, en eins og ég sagði áðan hafði ég verið að komast aö því smám saman, að í því sem Alþýðubandalagið og aörir vinstri hópar kalla sósíalisma er ekki allt gull sem glóir. Við konurnar þar festumst líka um sinn í gömlu byltingar „lausnunum" á vandamálum kvenna. Ég á við það að flytja sem mest af heimilisstörfunum út af heimilinu. Sameiginleg þvottahús, mötu- neyti o.s.frv. Lengra náði umræðan ekki í Rauðsokkahreyfingunni, ekki meöan ég var virk þar fram til 1976, og ég held aö hún hafi staðið í stað aö þessu leyti þar til hún lognaðist útaf 1982. Mér fannst ég komin I blindgötu og leið illa. Þar var eitt- hvað mikiö að og stundum eins og hol- hljómur í öllu saman. Ég veit að ég var ekki ein um þessa tilfinningu, þar vorum við margar ásama báti. Það var hins vegar við ramman reip að draga þar sem var Flokk- urinn. Frjáls hugsun — í kvennapólitík sem öðru — var ekki ævinlega vel séð. Hollustan við Flokkinn viröist mér hafa orðið kvennapólitíkinni yfirsterkari hjá mörgum vinstri konum. — Þú ert þó ekki þeirrar skoðunar að Rauðsokkatímabilið sé glataður tími? Nei, alls ekki og engin ástæða til aö afsakasig fyrir hann. Fyrir mig og áreiöan- lega margar aðrar konur var nauðsynlegt að fara í gegnum þetta stig í kvennapólitík og kvennabaráttu og Rauðsokkahreyfing- in var virkilegt hreyfiafl og kvennavakning sem hefur skilað miklum og góöum árangri. Nú er aftur á móti eins og þessi hreyfing sé eitthvert feimnismál. Ég tel þetta afar varhugavert. Mér viröist að enn sé verið, meövitað og ómeðvitaö, að þurrka út ákveðinn þátt í kvennasögunni. Ungum konum nú sé sagt aö þessar Rauö- sokkur hafi bara veriö hálfvitlausar kelling- ar. Best að vita ekkert af þeim. Allt annað sé uppi á teningnum í dag. Nú er allt svo nýtt og ferskt, kvennaframboö, kvenna- menning o.s.frv. Þetta héldum við líka fyrir 15 árum. Þá fannst okkur kvenréttinda- konurnar fyrr á öldinni ekkert spennandi. Viö, þaö var nú eitthvaö annað. Viö vorum svo frumlegar og skemmtilegar. Við vor- um aö koma fram meö eitthvaö glænýtt. Annars man ég að mér brá í brún á stofn- fundi Rauðsokkahreyfingarinnar í Norræna húsinu 1970 þegar Anná Sigurð- ardóttir sagði eitthvað á þessa leið: „Já, en stúlkur, af hverju komuð þiö ekki til okkar, við erum búnar að segja þetta allt áður". Ég mundi þetta alltaf síðan. Mér fannst mjög mikilvægt að konur í kvenna- baráttu viti, skilji og kunni að meta hvað hefur gerst áður því aö annars eru þær alltaf að byrja upp á nýtt. Það sem er að gerast núna, — kvennaframboð, kvenna- menning, kvennarannsóknir — er rökrétt framhald af starfi Rauösokka og annarra kvenfrelsiskvenna og samtaka. Mér sýnist að þaö megi stikla á nokkrum meginvið- burðum sem hver verður í framhaldi af þeim næstaáundan. 1970er Rauðsokka- hreyfingin stofnuð, 1975 næst, fyrir frum- kvæði þeirra, samstaða um kvennaverk- fallið eöa kvennafríið. Þaö varö mörgum konum lyftistöng og átti áreiðanlega mik- inn þátt í að við fengum Vigdísi fyrir for- seta. Það aftur hefur vafalítiö stuölaö aö því aö konur fóru aö hugsa sér til hreyfings fimm árum síðar að bjóöa fram sérstaka kvennalista. Og nú hefur það gerst. — En nú var Rauðsokkahreyfingin lögð niður á svipuðum tíma og Kvennaframboð- 31

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.