Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 4

Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 4
„Kynferði og eðli þess gæti vel laðað að sér lækna og líffræðinga; en það sem ég undraðist og átti erfitt með að skýra varsú staðreyndað kynferði—Jb.e.a.s. konan — lað- ar einnig að sér meinhæga ritgerðahöfunda, mjúkhenta skáldsagnahöfunda, unga menn sem hafa tekið magisterspróf, menn sem hafa ekki tekið nein próf; menn með enga augljósa hæfileika aðra en þá að þeir eru ekki konur. Sumarþessara bóka virtust af titlunum að dæma létt- ar og gamansamar, en margar voru hins vegar alvarlegar og spámannlegar, siðbætandi og uppbyggilegar. Við það eitt að lesa titlana sá maður fyrir sér óteljandi skólameist- ara, óteljandi klerka, sem stigu í ræðustóla sína, púlt sín og prédikunarstóla og töluðu af mælsku sem náði langt út yfir klukkutímann sem að jafnaði var ætlað að duga í fyrirlestur um þetta efni. Þetta var mjög undarlegt fyrirbrigði; og greinilega — hér athugaði ég undir bókstöfunum Ka, — bundiðkarlkynieinu.Konurskrifaekkibækurumkarla. . .". (Virginia Woolf: Sérherbergi bls. 41—42). Þetta skrifaði Virginia Woolf árið 1929 um þær bókmenntir sem rak á fjörur hennar þegar hún var að viða að sér efni í fyrir- lestur um konur og bókmenntir. Nær öllum þessum bók- menntum er það sammerkt að þar er nánast litið á konur sem hluta af náttúrunni sem karlar móta eftir sínum geðþótta. Karl- ar eru gerendur en konur þolendur. Rannsóknarefnið „kon- ur“ fellur samkvæmt þessum skilningi öðru fremur undir nátt- úruvísindi. Saga mannsandans og fræði tengd honum eru saga og fræði karlmannsandans. Karlmaðurinn, gerðir hans og hugsanir er sá öxull sem allt snýst um. Hvað eru kvennarannsóknir? Þessum skilningi hafa konurfyrir löngu hafnað í sinni póli- tísku baráttu en það er ekki svo ýkja langt síðan þær fóru að setja hin hefðbundnu vísindi og fræðigreinar undir smásjána og hófu að stunda kvennarannsóknir, þ.e. tóku að rannsaka líf og störf kvenna í fortíð og samtíð. Víðast hvar erlendis gerð- ist þetta samhliöa vexti hinnar nýju kvennahreyfingar í lok sjötta áratugarins, en hér á landi voru þessar rannsóknir nær óþekktar þar til nú síðustu árin. Á þessu eru þó nokkrar undan- tekningar og má í því sambandi sérstaklega geta rannsókna Helgu Kress. Fyrsta ráðstefnan um kvennarannsóknir var einmitt haldin nú í lok ágúst í Háskóla íslands, en þar fékkst ágætur þverskurður af því helsta sem er að gerast í þessum fræðum hér á landi. Sá gífurlegi áhugi sem konur sýndu þess- ari ráðstefnu sýnir mjög vel þörf kvenna fyrir það að skýra sig og skilgreina sjálfar, og vekur jafnframt vonir um að íslenskar kvennarannsóknir muni fá aukinn byr undir vængina á næst- unni. Hugtakið kvennarannsóknir kann að vefjast fyrir fólki, hvað er t.d. „kvennasaga", „kvennalandafræði", „kvennalög- fræði“, „kvennabókmenntir" o.s.frv.? Að hvaða leyti eru þessar rannsóknir frábrugðnar hefðbundnum rannsóknum einstakra fræðigreina? Svörin við þessum spurningum liggja ekkert i augum uppi, hvorki fyrir lærða né leika. Til að byrja með er þó hægt að slá því föstu að kvennarannsóknir séu allar þær fræðiiðkanir sem hafa það að markmiði að lýsa, skilja, út- skýra og breyta lífsskilyrðum kvenna og nota við það vísinda- legar aðferðir. Notagildiö að leiðarljósi Þetta er einföld skilgreining en engan veginn fullnægjandi þar sem skiptar skoðanir eru um markmið og aðferðir í kvennarannsóknum sem og val á viöfangsefnum. Lágmarks- krafan hlýtur engu að síður að vera sú, að rannsóknir fjalli um konur. Hitt getur aftur verið álitamál hvort nauðsynlegt sé að hún sé gerð af konu og fyrir konur. Ýmsir karlar hafa gert líf og störf kvenna að viðfangsefni sínu, t.d. í sagnfræði, og má í því sambandi m.a. nefna sænska sagnfræöinginn Gunnar Qvist. Gunnar Qvist er mjög vel þekktur fyrir þær rannsóknir sem hann hefur stundaö um áratuga skeið m.a. á réttindabar- áttu kvenna og ástæöum þess að karlveldið stendur með öllu óhaggað þrátt fyrir að konur hafi í meira en hálfa öld haft form- leg réttindi á við karla. 4

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.