Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 13

Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 13
Finnur þú hjá þér þörf tyrir að gefa út það sem þú skrifar til að aðrir geti lesið? „Ég gerði þá skelfilegu uppgötvun í fyrra að mér er í raun sama hvort ég gef út eðaekki. Það er ekki nema ákveðinn hóp- ur sem ég hef þörf fyrir að sjái það sem ég skrifa. En auðvitað hlýtur mér að finnast ég hafa eitthvað að segja fólki, ég væri ekki að þessu annars. Rithöfundur skrifar vegna þess að hann telur sig hafa sögu, þetta byggist allt á sögunni, að manni finnst maður hafa sögu sem segi eitthvað og vísi út fyrir sjálfa sig. Sjálfsagt skiptir það mann máli að fá einhver viðbrögð, sérstaklega frá fólki sem maður metur mikils og skiptir mann máli. En ef ég fer að hugsa um lesendur þá get ég hætt að skrifa, þá stíflast ég. Að skrifa er mér ástríða og þegar mér tekst að koma einhverju broti af hugmyndum mínum, af sýn minni, á blað er þaðstórkostlegt. Það er engin tilfinning betri.“ Nú er það algengt líkingamál að bókmenntasköpun er líkt við meðgöngu barns og fæðingu, rithöfundar tala um meðgöngu- tíma verka sinna og mismunandi erfiðar fæðingar þeirra. „Fyrir mér er þetta tvennt ólíkt og ég hef aldrei skilið þessa samlíkingu. Þetta eru tveir ólíkir hlutir. Ég hef sent syni mína út í heiminn — ég hef reyndar ekki sent þá því þeir hafa farið sjálfir — og ég hef sent frá mér bækur og þetta er ekkert sam- bærilegt. Og að ganga með skáldverk. . . þetta er ekkert líkt. Þegar maður skrifar þarf maður að skapa jafnvægi milli þess heims sem maður skapar og raunveruleikans og maður verð- ur að gæta þess vel að ímyndaði heimurinn nái ekki yfirhönd- inni. En að baki þessari líkingu um barn og bók er sennilega hugmyndin um sköpunina." Hvað vilt þú segja um verk fyrirrennaranna, bókmenntahefð- ina? Lest þú mikið af bókmenntum og finnst þér þú geta lært af fyrirrennurunum? „Ég er dópisti á bækur og les allt. Ég var alin upp við að lesa og bækur voru ræddar heima. Það er reyndar eitt af því sem mér sýnist hafa breyst. Mér sýnist allt öðru vísi talað um bækur nú en áður. Það var borin meiri virðing fyrir heimi bókarinnar heldur en gert er í dag. Heimur bókarinnar var tekinn gildur. Þetta finnst mér sorglegt að sjá breytast. Nú er hamast við að telja fólki trú um að menning sé leiöinleg, aðeins popp, ísfólkið og Dallas sé skemmtilegt. Þessa kröfu sér maður svo endur- óma hjá gagnrýnendum. Einkum þeim yngri. Þeir vilja fá eitt- hvað sem er ,,nýtt“ og „skemmtilegt"! Þeir geta bara lesið (sfólkið. Það er hræðilegt að eyðileggja menninguna fyrir fólki með þessari meinloku vegna þess að góð list er alltaf með jarðsamband. Menning er ekki bara fyrir einhverja elítu, hún er sameiginleg eign okkar allra. Hvað varðar að læra af hefð- inni þá hljóta allir rithöfundar að ganga i smiðju til hefðarinnar, afneita henni síðan eða játast undir hana. Eini skólinn sem rit- höfundur getur gengið í eru sjálfar bókmenntirnar og lestur þeirra. Ég læri mikið af bókum, ekkert síður eftir karla en kon- ur. Maður gengur inn í ákveðna hefð, hjá því verður ekki kom- ist. Síðan tekur maður það úr hefðinni sem maður getur nýtt og sleppir hinu.“ Áðan töluöum við um það hvernig skáldkonum og reyndar öðrum listakonum er mætt með þegjandi þögninni og þeim bók- staflega ýtt til hliðar. „Já, umfjöllun karla, eða frekar þögn þeirra, um konur bendir til þess að karlmenn þjáist af ótta viö konur. Ég hef mikið velt fyrir mér hvernig á þessum ótta getur staðið. Þegar þú lest söguna, t.d. kirkjusöguna, ég tala nú ekki um heim- spekisöguna, þá sérð þú þennan ótta karlsins við konuna alveg frá upphafi vega. Enn sem komið er hef ég ekki fundið neitt nema þetta ófrumlega svar: Karlar hafa alltaf verið hræddir við þennan sköpunarmátt sem þeir hafa talið konur búa yfir. Konan er eins og náttúran, hún elur af sér börn, eins og náttúran endurnýjar sig. Þetta sést í öllu táknmáli. Auk þess hefur konan vald til að neita karlmanni um blíðu sína, hann getur að vísu tekið hana með valdi en hún getur engu að síður neitað. Þetta virðist vera vald í augum karlmanna, þótt þeir geti vissulega neitað líka. Enn eitt atriði er að margir karlar virðast upplifa það sem ákveðna niðurlægingu þegar þeir fá kynferðislega fullnægingu, gefast konunni. Þeim virðist finn- ast þeir gefa sig á vald konunni þegar hún tekur við sæði þeirra. Þess vegna var þaö sem kirkjan barðist svo heiftarlega fyrir því að konan yröi úrskurðuð sálarlaust hylki sem geymdi sæði karlmannsins, sem allir vissu á miðöldum að var örlítill fullskapaður karlmaður eða, ef illa tókst til, vanskapaður karl- maður, þ.e.a.s. kona.“ Mýtan um hæfileikaskort kvenna til listrænnar sköpunar teng- ist kannski einmitt þessum ótta karlsins við sköpunarmátt kon- unnar? „Auðvitað hefur alltaf verið reynt að draga úr kjarki kvenna og markvisst hefur verið unnið að því að gera þær körlum und- ircjefnar, að kenna þeim að halda andlitinu við moldina og vera ekkert að gjóa augunum til himins. En þetta hefur bara aldrei tekist. Konur hafa alltaf fengist við listræna sköpun þótt því sé haldið að þeim að þær hafi aldrei gert neitt annað en fæða börn og sjá um heimili. Þær eigi ekkert að vera að skipta sér af list, heimspeki, trúarbrögðum eða öðru slíku. Hvað sagði ekki hinn vitri Búdda við uppáhalds lærisvein sinn Ananda þegar sá síöarnefndi vildi fá samþykki meistarans fyrir því að konur fengju aðgang að reglu hans: „Skjótar til reiði, Ananda, eru konurnar. Afbrýðisamar, Ananada, eru konurnar. Öfund- sjúkar, Ananda, eru konurnar. Heimskar, Ananda, eru kon- urnar.“ 13

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.