Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 21

Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 21
andlitið Smásaga eftir Þórunni Magneu Þaö byrjaði í rauninni allt daginn, sem ég sá andlitiö. Fyrst í staö þekkti ég þaö ekki. En þaö var eins og óskýrri endur- minningu frá Ijósum dögum bernsku minnar brygði fyrir eitt andartak, sem síðan hvarf í sorta fulloröinsáranna, allt myrkv- aöist. En andlitið hélt áfram að stara á mig, krefjandi, ásak- andi. Krefjandi hvers? Ásakandi um hvað? Ég veit það ekki, en það var eins og það krefðist bústaðar í mér, innra með mér, í huga mínum, innan í höföinu. Ég reyndi að bægja því burt, losa mig viö það á sem þægilegastan hátt, en það vildi ekki fara. Allan þann dag sveimaöi þaö fyrir hugskoti mínu eins og draugur, endurminning. Hvað vildi þetta andlit? Hvaðvildi það mér? Ég ætlaði ekki aö þora að hætta mér út næsta dag af ótta viö að andlitinu skyti aftur upp, birtist fyrir framan mig meö all- arsínarorðlausu ásakanirog kröfur. Ég hafði heldurekki farið langt þegar það birtist í einum búöarglugganum. Þetta var rétt fyrir jól og allar verslanir fullar af varningi og Ijósadýrð og ein- mitt í einum glugganum innan um gjafir handa allri fjölskyld- unni birtist það aftur. Allt í einu var það þarna. Ég hopaði frá glugganum og leit flóttalega í kring um mig til að athuga hvort nokkur hefði tekið eftir því. En enginn í mannþrönginni sýndi nokkurt merki um undrun yfir þessu andliti, sem allt í einu hafði birst innanum heimilistölvur, ryksugur, brauðristar og hina einu sönnu rakvél handa honum. Ég reyndi að telja sjálfri mér trú um aö þaö, sem ég haföi séö heföi ekki verið annað en endurspeglun frá tölvuskermi, þar sem litlir kringlóttir karlar hlupu fram og til baka milli þess, sem þeir voru etnir af ein- hverjum óskiljanlegum skrímslum. Ég smokraði mér út úr þvögunni og áður en ég vissi var ég í hörku samræðum við sjálfa mig um ímyndunarveiki, taugaveiklun, móðursýki og jólahreingerningarþreytu, allt sem gæti gefið einhverja minnstu skýringu á þessu undarlega framferði augna minna. Þegar ég kom heim kveikti ég Ijós í öllu húsinu til að vera viss um að andlitið birtist ekki allt í einu út úr einhverju myrku skoti, starandi, ásakandi og krefjandi einhvers, sem ég skildi ekki. Eitt vakti þó mesta undrun mína, en það var aldursleysi þessa andlits. Það var eins og það heföi ekkert lifað, svo ungt og ómarkað af sársauka lífsins, en um leið eins og þetta andlit hefði allt séð og allt reynt. I senn svo gamalt og svo ungt. Ég vissi innst inni að ég þekkti þetta andlit, hvern drátt, en samt þekkti ég það ekki, ég elskaði það og óttaðist. Ég dáði það og fylltist viðbjóði um leið. Ég reyndi aö lesa blöðin og drakk kókó- ið mitt, reyndi að gleyma þessu andliti, sem hafði allt í einu tek- ið upp á því aö ofsækja mig. Ég las auglýsingarnar um allt það, sem maður varð að eignast fyrir þessi jól og líka auglýsingarn- ar um allt það sem hún varð aö eignast og hann og barnið, hundurinn, kötturinn og heimilið. En allt kom fyrir ekki, hugs- unin um andlitið þrengdi sér á milli mín og allra þessara bráð- nauösynlegu hluta. „Þetta andlit“. Ég reyndi að reka það til síns heima, því einhver hlaut að eiga það, en allt kom fyrir ekki. Að lokum gafst ég upp á að fá einhvern botn í þetta og háttaöi, ég var viss um að mig myndi dreyma þetta andlit alla nóttina, en ég svaf draumlaust að minnsta kosti mundi ég ekkert þegar ég vaknaði. Mér leið vel, úthvíld og hlakkaöi til að takast á við það sem eftir var af jólahreingerningum og bakstri. Andlitinu hafði ég gleymt, því var gjörsamlega stoliö úr huga mér eins og ég hefði aldrei séð það. Ég kláraöi aö þvo og strauja gardín- urnar og byrjaði á smákökunum, gyöingakökum og hálfmán- um. Ég haföi að vísu ætlað að byrja snemma [ ár og Ijúka þessu öllu af í tíma en einhvern veginn fór það svo að ég var á síöustu stundu eins og í fyrra og hitteðfyrra og. . . já. . . þaö skiptir kannski ekki öllu máli. Þorláksmessa var ekki fyrr en á morgun og þá gæti ég lokiö viö að versla, skreyta jólatréð og pakka inn gjöfunum, skipta á rúmunum, þrifið baðið þegar allir væru búnir aö nota það, eldhúsið og ganginn. Já, þetta mundi allt ganga eins og í fyrra og hitteðfyrra. Allan daginn fyrir Þor- láksmessu hamaðist ég við hreingerningar og bakstur meö smá hléum þegar ég þurfti að gefa fjölskyldunni að boröa. Börnin horföu ásakandi á mia: Af hverju er ekki heitur matur bara smurt brauö og skyr? Eg afsakaði mig meö því að ég heföi svo mikið að gera og hélt áfram aö fægja húsið. Um kvöldið þegar allir voru háttaðir og ég var aö ganga frá í eld- húsinu tók ég eftir því aö ég hafði gleymt að fara út með rusliö. Ég greip pokann og hljóp með hann út í tunnu og þá gerðist það, þegar ég átti mér einskis ills von, um leið og ég snóri mér viö til aö fara Inn í húslö, birtist það. Allt í einu var þaö þarna á milli mín og dyranna. Skyndilega flaug sú hugsun í gegnum huga minn að ég kæmist aldrei aftur inn. Andlitið myndi varna mór inngöngu. Ég mjakaöi mér ofur hægt til hægri eins og til að reyna aö komast fram hjá andlitinu, en það virtist fylgja mór eftir eins og það væri fest við mig með ósýnilegri taug, nafla- streng. Ég fann hvernig hendur mínar byrjuöu að titra og hjart- að hamaöist í brjósti mér. Ég vissi aö ef ég fyndi ekki eitthvert ráö til aö komast inn myndi ég deyja úr hjartaslagi og hræðslu á stéttinni við öskutunnurnar. Skyndilega heyrði ég raddir. Nokkrir unglingar komu gangandi eftir götunni, raddir þeirra hljómuöu undarlega hávært í næturkyrrðinni. Ég stóð þarna og horföi á þá, ég var hálft í hvoru að hugsa um að kalla til þeirra og biðja þá um hjálp, en svo sá ég hvað það var fárán- legt. Hvað átti ég að segja við krakkana? Væri ykkur ekki sama þó að þið rækjuð þetta andlit í burt, svo ég komist inn, ég fór nefnilega út með ruslið og þegar ég ætlaði inn aftur þá var þaö allt í einu þarna. Þeir myndu halda að ég væri geöveik og kannski var ég það. Nei, ég yrði að bjarga mér út úr þessu upp á eigin spýtur. Ég setti í mig kjark og leit aftur í áttina þar sem andlitið var, en þá var það horfið. Ég hentist af stað að dyrunum, inn og skellti á eftir mér. Titrandi á beinunum, hall- aöi ég mér upp aö huröinni og reyndi að ná taumhaldi á tilfinn- ingum mínum. Svona gæti ég ekki fariö upp í rúm. Eins og ég var á mig komin mundi ég ekki bara titra, heldur rúmið og mað- urinn minn líka. Ég staulaðist inn í eldhús. Hvað var eiginlega aö gerast? Var ég að ganga af vitinu? Af hverju var ég svona hrædd viö þetta andlit? Það var í sjálfu sér ekki ógnvænlegt, ekki afskræmt, þvert á móti, þetta var slétt og frekar laglegt andlit. Hvað var þá svona viöbjóðslegt við það? Einkennilegri og óljósri endurminningu frá bernsku minni skaut upp í huga mér. Eitthvað með vor, blóm og vonir. Vonir um hvað? Fram- tíöina, lífið? Nei, það gat ekki komið andlitinu við. Andlitið til- heyröi ekki björtum dögum bernsku minnar, þegar hamingjan

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.