Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 10
r.
)
.j*
i
# w
• •
»‘V
LISTAHATIÐ KVENNA
DAGSKRÁ
' * <
»
„Þessi bókaskreytingasýning er eftilvill happa og glappa
sýning og ekki mjög vísindaleg. Þaö eru ekki til nein gögn um
bókaskreytingar, viö urðum sjálfar aö leita upplýsinga á þess-
um stutta tíma. Þaö væri svo sannarlega veröugt verkefni fyrir
listfræöing að gera úttekt á bókaskreytingum kvenna."
í Listasafni ASÍ veröur svo sýning á alþýðulist kvenna og á
mörgum stöðum veröa smærri sýningar svo sem í Gallerí
Langbrók, Skálkaskjóli tvö, Mokkaog Cafe-Gestur. í Norræna
húsinu verður svo sýning tekin saman af Carin Hartman á
póstkortum og sýnir hún hvernig karlar líta á konur og hvernig
þeir líta á sjálfa sig.
Samtímis sem Vera spjallar við Gerlu eru konur aö vinna á
Vesturgötu 3, Menningarmiðstöð kvenna, að því að koma á fót
leikhúsi kvenna fyrir hátíðina. Þar verður sett á svið leikgerð
Helgu Backman á Reykjavíkursögum, sem er byggð á smá-
sögum Ástu Sigurðardóttur. Þar að auki verða konur frá Leik-
félagi Reykjavíkur með dagskrá úr verkum Jakobinu Sigurðar-
dóttur á Kjarvalsstöðum og í Gerðubergi.
,,Og svo verður Ijóðalestur undir mismunandi þemum, þar
sem við munum reyna að sýna hvað íslenskar konur hafa gert
á því sviði gegnum tíðina og hvernig þær hafa tekið á mismun-
andi viðfangsefnum."
Á hátíðinni veröur flutt tónlist eftir íslenskar konur og þrennir
portrett tónleikar með verk eftir Jórunni Viðar, Karólínu Ein-
arsdóttur og Mist Þorkelsdóttur og auk þess verða aðrir tón-
leikar haldnir.
„í lok hátíðarinnar verður kvikmyndahátíð, við verðum að
sjálfsögöu með þær myndir sem til eru eftir íslenskar konur.
Þær eru því miður ekki margar og því verða einnig sýndar
myndir eftir erlendar konur. Þar kemur einnig góður gestur fyr-
ir milligöngu Goethe Institut, Margret von Trotha, sem mun
halda fyrirlestur og tvær mynda hennar veröa á dagskrá í
Stjörnubíói. Þar munu sýningar verða í gangi allan daginn
12.—20. október í báðum sölum.“
Það leynir sér ekki að Gerla er dálítið hreykin þegar hún
segir frá dagskrá hátíðarinnar. Hún er sjálf þræl pólitísk og
það liggur beint við að spyrja hversu kvennapólitlsk hátíðin
sé?
, ,Þær konur sem taka þátt í hátíðinni eru að fást við mismun-
andi verkefni, því er ekki hægt að segja að verk þeirra séu
kvennapólitísk í heild. En auðvitaö er það pólitík að gera þetta,
að sýna verk kvenna á þann hátt sem nú er gert.“
Hvernig hefur þessi tími verkaö á þig?
„Þetta hefur verið afskaplega skemmtileg reynsla. Og það
sem kom mér mest á óvart var hversu vel allir tóku í þetta,
hvað þessi hugmynd mætti allsstaðar velvilja og skilningi."
Hvaða vonir bindur þú við hátíðina?
„Að sýningarnar veki stolt hjá konum. Við þurfum að vera
stoltar af að vera konur. Heimur listamanna er bara endur-
speglun á þjóðfélaginu í heild og það er allsstaðar erfitt að
vera kona. Það er mikil barátta að gerast listamaður og ekki
léttist sú barátta ef maður er kona í þokkabót. Ég vona að lista-
hátíð eins og þessi sé liður í því að gefa konum kjark til að
glíma við þetta erfiða viðfangsefni."
20. september
21. september
— 6. október
22. sept.—24.okt.
28. september
— 24. október
4.—20. okt.
12,—20. okt.
Arkitektafélagið. Ásmundarsalur kl.
16.00 gengið þaðan kl. 17.00 að
Vesturgötu 3 þar sem dagskrá hefst
kl. 17.30, kórsöngur og lúörasveit.
„Hér og nú“ myndlist á Kjarvals-
stöðum
Opnun kl. 14.00.
Ásrún Kristjánsdóttir. Gallerí Lang-
brók. Opnun kl. 16.00.
Guörún Hrönn Ragnarsdóttir —
Sólveig Aðalsteinsdóttir. Sýning
Mokka
Reykjavíkursögur Ástu Sigurðar-
dóttur í leikgerð Helgu Backman,
frumsýning að Vesturgötu 3 kl.
20.30.
Bækur og bókaskreytingar í Gerðu-
bergi kl. 14.00.
Ljóðadagskrá Gerðubergi kl. 15.00.
Dagskrá úr verkum Jakobínu Sig-
urðardóttur, frá Leikfélagi Reykja-
víkur. Frumsýning í Gerðubergi kl.
20.30.
Úr hugarheimi Listasafn A.S.Í.
Ljósmyndir. Nýlistasafn Vatnsstíg
3b.
Opnun kl. 14.00.
Sigríður Guðjóns og Rúna, sýning
Café Gestur.
Ljósmyndir Ingu Straumland
Skálkaskjóli 2, opnun kl. 16.00.
Konurséðaraf karlmönnum — Karl-
menn séðir af karlmönnum, sýning
í samantekt af Carin Hartmann.
Norræna húsinu, opnun kl. 17.00.
Kvikmyndahátíö í Stjörnubíó.
*
:/
Á meðan á listahátíð stendur verða fluttir sex tónleikar þar
á meðal einir tónleikar meö verkum Jórunnar Viöar og aörir
með verkum Mist Þorkelsdóttur og Karólínu Eiríksdóttur.
Einnig verða Ijóðadagskrár. Þegar þetta er ritað eru ekki
komnar endanlegar dagsetningar, en það verður tilkynnt
síðar.
Þjóðmynjasafnið verður meö sýninguna „Með silfurbjarta
nál“ Listasafn (slands verður með sýninguna „Myndlista-
konur 1910—1970“.
Ásmundarsafn verður með sýninguna „Konur í list Ás-
mundar Sveinssonar"
Meöan á listahátíö stendur verða svo að sjálfsögðu sýning-
ar á Reykjavíkursögum Ástu Sigurðardóttur og dagskrá úr
verkum Jakobínu Sigurðardóttur.
Einnig er hægt að fá allar upplýsingar um hátíðina á Vest-
urgötu 3, garðhúsi, sími 19560 og er þar opið frá kl. 2—6
daglega. 'jfcr’i' \ * '<■.
A
*»’+
"i
. i
KB
10