Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 37

Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 37
MENNINGARMIÐSTOÐ OPIÐ MANUD.—FOSTUD. 16—22 LAUGARD. OG SUNNUD. 14—18 Verkefnisstjóri Félagsmálaráöuneytið óskar eftir að ráða starfsmann til að stjórna framkvæmd norræns verkefnis á íslandi á sviöi jafnréttismála. Fyrst í stað er gert ráð fyrir hálfri stöðu. Tek- ið skal fram að áhersla er lögð á hæfileika til að vinna sjálf- stætt. Einnig er æskilegt að væntanlegur starfsmaður geti tjáð sig munnlega og skriflega á dönsku, norsku eða sænsku. Verkefni það sem hér um ræðir er að hluta til kostað af norrænu ráöherranefndinni. Það er unnið á vegum embættismannanefndar norrænu ráðherranefndarinnar sem fjallar um jafnréttismál. Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölbreyttara náms- og starfsvali kvenna. Framkvæmd þess fer fram samtímis á öllum Norðurlöndunum og er unnið undir yfirstjórn norræns verkefnisstjóra. Skipuð verður nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem vinnur með verkefnisstjóra og ber hún ábyrgö á framkvæmd verkefnisins á íslandi. Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórar í löndunum hefji störf nú í september og er áætlað að vinna við verkefnið standi til ársloka 1988. Helstu verkefni eru m.a.: — Semja drög að áætlun um framkvæmd verkefnisins hér- lendis og sjá um framkvæmd hennar hér á landi. — Samstarf við fyrirtæki, skóla aðila vinnumarkaöarins, hlutaðeigandi sveitarstjórn og yfirstjórnir atvinnu- og menntamála. — Samskipti við fjölmiðla. — Tengsl við samnorrænan verkefnisstjóra, en í þvi felst m.a. gerð ársskýrslu um framgang verkefnisins. — Samning lokaskýrslu um framkvæmd og árangur verk- efnisins. Ákveöið er að verkefnið verði unnið á Akureyri í samvinnu við bæjarstjórn Akureyrar og hefur verkefnisstjórinn aðset- ur þar. Skriflega umsókn þar sem greini menntun og fyrri störf skal senda félagsmálaráðuneytinu, Arnarhvoli, í síðasta lagi 20. september n.k. Laun samkvæmt launakerfi opin- berra starfsmanna. Reykjavík, 29. ágúst 1985, FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ. LYFSÖLJULEYFI ER FORSETI ÍSLANDS VEITIR Lyfsöluleyfi Blönduóssumdæmis (Apótek Blönduóss) er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11.gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 varðandi húsnæði lyfjabúðar- innar og ibúð lyfsala (húseignin Urðarbraut 6). Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúöarinnar 1. janúar 1986. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa borist heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 29. september n.k. 29. ágúst 1985 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Áskriftarsími VERU 22188 Hjúkrunar- fræðingar Stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtaldar heilsugæslu- stöðvar eru lausar til umsóknar nú þegar: Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Breiðdalsvík. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Eyrarbakka. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Þórshöfn. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suður- nesja, Keflavik. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf í hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 28. ágúst 1985. L 37

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.