Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 8

Vera - 01.09.1985, Blaðsíða 8
Hugsið ykkur að geta valið á milli þess að fara á Ijósmyndasýningu, hlusta á tón- list, hlýða á Ijóðalestur, skoða myndlistaverk, fara í kvikmyndahús og samtímis vera viss um að allsstaðar fá notið listsköpunar kvenna. Þessi draumur margra er nú að rætast með listahátíð kvenna, dagana 20. september til 24. október, þegar hátt í annað hundruð kvenna munu leggja menningarstofnanir Reykjavíkur undir sig. Hug- myndin er sprottin úr kvennahreyfingunni og eingöngu konur hafa unnið að fram- kvæmd hennar. Það verður hátíð þar sem ,,farið verður í eigin kistu og ekki hlaupið til útlanda í leit að frægu fólki" eins og Gerla, starfsmaður hátíðarinnar, orðar það. „Hátíð þar sem sköpunarkraftur margra listakvenna verður að stórgosi." f r Gerla, eða Guðrún Erla Geirsdóttir, hefur undanfarna mán- uði verið samtvinnuð hátíöinni. Hún er eini launaði starfsmað- urinn og það hefur ekki verið hægt að hitta Gerlu án þess að taskan hennar hafi veriö full af ,,hátíðargögnum“ og umræðu- efnið gefið. Síðan í maí hefur hún staðið fyrir skrifstofu í Kvennahúsinu viö Hállærisþlanið. Efst upþi á lofti stendur Listahátíð kvenna skrifað með tússi á umslag sem Gerla hefur fest á hurðina. Herbergið er lítið og skrifborðið bjó hún til sjálf, en Gerla virðist una sér vel innan um möpþur og skjöl, allt merkt Listahátíð kvenna. Hún situr eins og könguló (skúma- skoti og net hennar teygja sig í allar áttir, meira að segja langt út fyrir landsteinana. Þegar Vera lítur inn eru þrjár vikur til stefnu, gestagangur mikill og síminn stoppar varla. Kannski er aðstaöan þarna undir þakinu táknræn fyrir hátiðina sem er að verða að veruleika þó svo að ekki hafi verið til eyrir þegar hug- myndin var sett á blað á fundi á annarri hæö í þessu sama húsi. „Líklega er þetta afskaplega kvenlegt. En það hefur sýnt sig að konur ráðast í hluti sem eiginlega ætti að vera ógerningur að ráðast i. Það er alveg ótrúlegt hvað konur hafa lagt á sig til þess að ná þessu markmiði. Tugir kvenna hafa lagt á sig ómælda vinnu, og þaö í sjálfu sér hlýtur að vera gífurlegur munur á þessari hátíð og öðrurn." Gerla hefur verið með frá fæðingu hugmyndarinnar um Listahátíð kvenna og þekkir aðdragandann af eigin raun. „Upphafiö var að ég sem fulltrúi Kvennaframboösins í stjórn Kjarvalsstaða lagöi fram hugmynd okkar um sérstaka menningardaga kvenna. Þegar svo 85-nefndin, sem er sam- starfsnefnd í lok kvennaáratugar, óskaði eftir hugmyndum um aðgerðir á þessu ári var ákveðið að útvíkka þetta til heillrar hátíöar." Undirbúningsvinna byrjaði í fyrra þegar leitað var til ýmissa stofnana á Reykjavikursvæðinu. Hvernig voru viðbrögð þeirra? „Mjög jákvæð. Sem dæmi má nefna að Kjarvalsstaðir lán- uöu okkur húsiö leigulaust og veittu þar að auki 250 þúsund kr. styrk til þessa verkefnis. Eins hefur Geröuberg, Norræna- húsið, Arkitektafélagið, Sambandið og miklu fleiri stutt okkur." Varstu aldrei vör við andstöðu þar sem konur eiga í hlut? „Nei, eiginlega ekki. Kannski vegna þess að 85-nefndin tók þetta sem eitt af sínum verkefnum og þetta átti að vera einhverskonar ,,-grand final-“ á kvennaáratugnum." Hefur staða listakvenna breyst á þessu áratug? „Tvímælalaust. Margt hefur áunnist og ég held að þessi hátíð komi til með að sýna það. Þátttaka kvenna hefur aukist gífurlega og nú eru næstum fimmtíu prósent félaga í Sam- bandi íslenskra myndlistarmanna konur. Sú vakning hefur átt sér staö á þessum tíu árum aö konur geta nú leyft sér í ríkari mæli að helga sig list sinni. Það er viðurkennt að konur geta unnið við listsköpun eins og karlar. Annaö sem hefur gerst á þessum árum er að viðhorfið til þess sem kvenlegt er hefur breyst. Ég man að það þótti afskaþlega neikvætt ef gagnrýn- 8

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.