Vera - 01.09.1985, Side 19
líkamans fram í myndmálinu. Jeffereys sér t.d. ballerínuna
rammaöa af sexstrendum rúöum svo að líkami hennar virðist
eins og samansett pússluspil. í annaö skipti þegar sölumaður-
inn ber út sundurhlutaða eiginkonu sína í ferðatösku sjáum við
í sama mund höfuö og axlir ballerínunnar, þ.e. hluti hennar í
baðglugga þar sem hún greiðir sér á erótískan hátt. Sundur-
bútun kvenlíkamans, hvort sem hún kemur fram á sviði frá-
sagnar eða myndmáls er því virkur þáttur í hlutgervingu karl-
mannsins á konunni, og sálrænt vopn hans gagnvart þeirri
ógn sem konan getur staðið fyrir. Sundurbútaöur kvenlíkami
staðfestir samtímis fyrir karlmanninum hvað hann er ekki, þ.e.
kona, og hvað hann er og tryggir þá sjálfsímynd hans að hann
sé ósundurbútanleg heild.
Þar sem líta má svo á að í gluggunum á móti endurspeglist
hugarástand Jeffereys, má álykta sem svo að verknaður sölu-
mannsins raungeri duldar tilhneigingar Jeffereys. Þegar
leynilögreglumaðurinn efast um ásakanir hans á hendur sölu-
manninum, og spyr Jeffereys hvort hann eigi ekki líka
samskonar áhöld og þau sem hann hafði séð sölumanninn
meðhöndla (reipi, sög og hníf), játar Jefferey því vandræða-
lega en kveðst eiga þau á afviknari stað en í eldhússkápnum.
,,The Hitch of the Himalayas"
Þrátt fyrir ógnina sem stafar af nærveru Lisu verður hún
aldrei fyrir alvarlegri árás í myndinni. Hún lendir þó í hættu-
legri aðstöðu sem gæti leitt til morðs á henni. Þessi hættu-
staða er sjálfvalin af Lisu, kannski vegna þess að hún vissi að
það höfðaði til Jeffereys, enda verður áhorfandinn fyrst var við
virðurkenningu og aðdáun Jeffereys á henni þegar hún býðst
til að leggja upp í þessa hættuför (þ.e. leit að sönnunargögn-
um gegn sölumanninum.)
Þetta atvik boðar lausn á sambandsvandamáli þeirra
Jeffereys og Lisu sem fólst m.a. í því að hvorugt þeirra vildi
gefa eftir þann heim sem hvort þeirra um sig lifði í; Jeffereys,
ævintýraheim fréttaljósmyndarans og Lisa, tískuheim New
York. Hér sýnir Lisa á sér nýja hliö, ekki bara með því að
leggja út í hættuförina heldur líka í klæöaburði sem er orðinn
frjálslegri en áður og jafnframt eru litirnir í fötum hennar, sem
höfðu verið kaldir, orðnir hlýir en það undirstrikar breytingarn-
ar á sambandi hennar við Jeffereys.
í lokin sjáum við Lisu klædda í safari-föt (þ.e. buxur og karl-
mannaskyrtu), en þar með hefur hún öðlast karlmannleg ytri
einkenni og samræmist því loks heimi Jeffereys. Lisa hefur
verið hlutgerð á nýjan hátt sem að þessu sinni leysir vandamál
Jeffereys. Karlgerving (maskúlinisering) Lisu, forðar
Jeffereys frá þeirri ógn sem stafar af kynferði hennar þar sem
hún verður á þennan hátt framlenging á kynferði hans. Þessi
lausn undirstrikast af sæluástandi Jeffereys þar sem hann
liggur í hjólastólnum nú með báða fætur í gifsi eftir átökin við
morðingjann.
Þó að Lisa virðist hafa hafnaö sínum heimi fyrir heim
Jeffereys, þá er tilvera (discourse) hennar ekki að öllu leyti
niðurbæld. Þegar hún liggur makindalega í safarifötunum í
sófanum heima hjá Jeffereys og læst lesa ,,the Hitch of the
Himalayas" þá bíður hún færis til að draga fram tískublað.
Það gerir hún með sigur- og ánægjubrosi, þegar Jeffereys
lygnir aftur augunum í sæluástandi sínu. „Sigur" Lisu er þó
aðeins sigur gagnvart tilveru Jeffereys en ekki gagnvart
þeirri hugmyndafræði sem mótar hennar tilveru, þ.e. hug-
myndafræði karlveldisins eins og hún birtist í kapitalísku sam-
félagi. Lisa er ekki meðvituð um sína eigin hlutgervingu og sitt
gildi, sem vara innan tískuheimsins.
Oddný Sen og Kristín Ólafsdóttir
19