Vera - 01.12.1986, Side 2
VERA
6/1986 — 5. árg.
Útgefendur:
Kvennaframboðið í Reykjavík
og Samtök um Kvennalista.
Símar: 22188 og 13725
Að þessu sinni er efni VERU úr ýmsum áttum. Má þar
m.a. nefna bráðskemmtilegt og athyglisvert viðtal við
Helgu Kress auk þess sem friðarbaráttan skipar sinn
sess, enda mun það vel við hæfi þar sem jólin eru
skammt undan, sú hátíð sem gjarnan er kennd við frið
og kærleika.
Það verður að segjast eins og er að framvinda í átt til
friðar í heiminum á líðandi ári gefur ekki tilefni til mikill-
ar bjartsýni eða trú á mannlega skynsemi. Hér er þá
fyrst og fremst átt við hinn svokallaða leiðtogafund,
sem allt setti úr skorðum hér á landi á haustmánuðum.
Þar gafst okkur tækifæri til að fylgjast með úr návígi
einu helsta pólitíska sjónarspili ársins. Niðurstöður
þess fundar voru móðgun við alla mannlega skynsemi
eða kannski réttara sagt gróf móðgun við lífið sjálft. Sú
spurning hlýtur að vakna við hverju sé að búast í fram-
tíðinni þegar stór hluti einnar valdamestu þjóðar verald-
ar telur það ófrávíkjanlega nauðsyn til friðar í heiminum
að byggja upp vopn til að heyja stjörnustríð, meðan stór
hluti jarðarbúa býr við sárustu örbirgð.
En það má líka spyrja sig hvernig hægt sé að ætlast til
að þjóðir heimsins sýni skynsemi og virðingu fyrir lífi í
samskiptum sín í milli, þegar einstaklingum innan þjóð-
anna reynist það um megn. Riki sem lætur viðgangast
kúgun, ofbeldi og margvíslegt misrétti meöal þegna
sinna er ekki líklegt til að vinna stórvirki til eflingar
heimsfriðinum. Því hljótum við, jafnframt baráttunni
fyrir friðsamlegum samskiptum þjóðanna að herða
baráttuna fyrir jafnrétti og kvenfrelsi.
VERA óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og friðar á
komandi ári.
bgf
í VERU NÚNA:
3 Lesendabréf
4—5 Það birti af nýjum degi. . .
Hugleiöing um friðarmál
6—8 Hvundagstragedían
Smásaga
9—10 Flogið á friðarþing
11 Skrafskjóðan
Guörún Jónsdóttir skrafar
12—13 Héðan og þaðan
14—17 Saga kvenna
Sagt frá ráðstefnu í Amsterdam
20—24 . . . Opnar nýja sýn
Rætt viö Helgu Kress
26—29 Þingmál
30—33 Borgarmál
34—38 Um bækur
39 Jólasamkvæmi
Mynd á forsíöu
Elín Rafnsdóttir
Ritnefnd:
Guðrún Ólafsdóttir
Guðrún Kristmundsdóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Elín Garöarsdóttir
Kristin Blöndal
Magdalena Schram
Ragnhildur Eggertsdóttir
Brynhildur G. Flóvens
Starfsmaður Veru:
Kicki Borhammar
Auglýsingar og dreifing:
Ragnhildur Eggertsdóttir
Ábyrgð:
Magdalena Schram
Setning og filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Solnaprent
Ath. Greinar í Veru eru birtar
á ábyrgö höfunda sinna og eru
ekki endilega stefna útgefenda.