Vera - 01.12.1986, Blaðsíða 9
FLOGIÐ
ÁFRIÐARÞING
Dagana 15.—19. október
s-l- var haldiö í Kaupmanna-
höfn heimsfriöarþing í tilefni af
ffiöarári Sameinuöu þjóöanna.
Að þinginu stóöu friöarsamtök
°9 stjórnmálaflokkar í Dan-
mörku auk fjölmargra alþjóða
S3rntaka. Við vorum tíu saman
frá íslandi: Steinunn Harðar-
dóttir og Kristín Jóna Halldórs-
döttir frá Menningar og friðar-
samtökum íslenskra kvenna,
^aría Þorsteinsdóttir, Selma
“sk Kristiansen og Helgi
^östjánsson frá íslensku friö-
arnefndinni, Jóhanna Jónas-
dóttir frá Samtökum lækna
9e9n kjarnorkuvá, Gerður
Gestsdóttir og Anna Hildur
H'ldibrandsdóttir frá Æsku-
ýðsfylkingunni og Margrét
jarnadóttir og undirrituö frá
Kvennalistanum.
það snjóaöi í Keflavík þegar
viö lögðum af staö. Flugvélin
var full af erlendum frétta-
mönnum, enda fundur þeirra
Reagans og Gorbatjovs ný-
afstaöinn í Reykjavík.
í Kaupmannahöfn var sól og
sumarblíða þótt komið væri
fram á haust. Morgunin eftir
tók ég strætisvatn að Bella-
centri, þar sem þingiö var hald-
iö. Blastiþáviðmérhópurfólks
meö spjöld þar sem mótmælt
var stríðinu við Afganistan og
fleiru. Ég haföi talað viö
danska vinkonu mína kvöldið
áöur. Hún er mikill friðarsinni
og hefur m.a. tekið þátt í friðar-
göngum um víða veröld. Sagði
hún mér að miklar deilur og
óánægja hefðu verið með und-
irbúning þingsins. Sjálf sótti
hún ekki þingið þar sem hún
taldi það hræsni að þarna
mættu fulltrúar landa þar sem
mannréttindi væru að engu
höfð og blóðugir bardagar
geisuðu. Hún fullyrti að þingið
væri ekki eins ,,opið“ og að-
standendur þess vildu vera
láta. í Politiken 12. október
kemur fram að þegar spurt var
hvort kæmi fulltrúar frá pólsku
hreyfingunni Einingu á þingið,
hafi svarið verið að þeir hafi
ekki sýnt áhuga og því ekki
verið boðið. Þegar spurt var
um hreyfinguna Charta '77 og
hreyfingar frá Afganistan var
fátt um svör. Þetta og fleira olli
miklum ágreiningi og varð til
þess að sósíaldemókratar
hættu við þátttöku sem flokkur.
Sama er að segja um Græn-
ingjana, en þeir hafa haldiö því
fram, að þinginu væri stýrt frá
Moskvu. Friðarsamtökin ,,Nej
til atomvápen" tóku heldur
ekki þátt í þinginu.
Það voru því blendnar til-
finningar sem bærðust með
mér þegar ég loks komst inn á
setningu þingsins eftir að hafa
staðið í biðröð í 2 tíma, til að fá
skírteini og misst af byrjuninni.
Rétt áður höfðu þrjú ungmenni
þust upp á sviðið með borða
sem á stóð ,,KGB farið heirn".
Eftir að óróaseggirnir höfðu
verið fjarlægðir hélt setningar-
athöfnin áfram um stund. Þá
ruddist Breti nokkur upp á svið-
ið og mótmælti þvi að hinn 92
ára gamli Hermod Lannung
væri kjörinn forseti þingsins en
tilnefndi í staðinn landa sinn,
sem ég kann ekki að nefna.
Ekki fékk hann neinar undir-
tektir, og þegar búið var að ýta
honum frá gekk allt friðsam-
lega fyrir sig með ræðuhöldum
söng og Ijóðalestri.
Dagskrá þingsins var þann-
9