Vera - 01.12.1986, Síða 10
ig aö fyrstu 2 dagana var rætt í
7 hópum eftirfarandi efni: Friö-
ur og réttlæti, afvopnun, friöur
og frelsi, friður og mannrétt-
indi, friöur og mannlegar þarf-
ir, líf í friði og friöur og traust.
Margt á boðstólum
Síöari dagana var m.a. rætt
um eyðingu efnavopna, afnám
kjarnorkuvopna, þróun af-
vopnunar, baráttu gegn geim-
vopnum, kjarnorkuvopnalaus
svæði, afvopnun, öryggi og
gæslu í Evrópu, friösamlega
samninga á ófriöarsvæöum,
upplausn og brottflutning er-
lendra herja. Einnig héldu sér-
stakir áhugahópar meö sér
fundi, s.s. vísindamenn, sál-
fræðingar, læknar, grasrótar-
samtök, trúarbragöahópar,
kennarar, þingmenn, verka-
lýðsleiötogar, listamenn,
íþróttafólk auk umræöna um
samvinnu hinna ýmsu friðar-
hreyfinga.
Þá var starfræktur æsku-
lýðsklúbbur og kvennamiðstöð
meö fjölbreyttum fundahöld-
um, sýningum og öðrum
skemmtilegum uppákomum. í
sal var komið fyrir litríku
markaöstorgi og sýningarbás-
um, þar sem hinar ýmsu þjóöir
og samtök kynntu málstað
sinn, og höfðu margvíslegan
varning til sölu. Þarna var og
ýmislegt til skemmtunar, stig-
inn dans, sungið og ótal margt
fleira auk þess sem gaman var
aö rölta þarna um, rabba viö
fólk og kynnast ólíkum sjónar-
miðum. Þingiö sóttu um þrjú
þúsund manns frá 136 löndum
og eins og sjá má að framan-
sögöu var heilmargt á boöstól-
um. Skipulag og upplýsinga-
streymiö um þaö sem var aö
gerast heföi mátt vera betra.
Oft var erfitt aö henda reiður á
hvaö var hvar og hvenær, og
tímaáætlanir riðluðust.
Ég ákvaö aö velja hópinn Líf
í friöi fyrstu tvo dagana en verö
aö játa aö ég gafst upp á því.
Mér fannst lítið nýtt koma fram.
Umræðurnar snerust um að
segja frá ástandinu heima
fyrir, sem er afar eölilegt þar
sem það er víða þannig aö þaö
hlýtur aö hvíla þungt á viðkom-
andi, en um leið uröu umræöur
lítt frjóar. Raunin varð því sú að
ég hélt mig mest í kvennamið-
stöðinni. Þar var skipulagið til
fyrirmyndar og eins og þaö
gerðist best aö margra dómi.
Þar voru fundir um margvísleg
efni, skyggnimyndasýningar,
myndbandasýningar og ótal
margt fleira sem væri alltof
langt mál aö telja upp hér. Þaö
sem ef til vill bar hæst í kvenna-
miðstöðinni var fundur sem
nefndist: Eftir leiötogafundinn í
Reykjavík. Meðal frummæl-
enda þar voru Ellen Diderick
sem dvaldi í Reykjavík á meö-
an á leiðtogafundinum stóð og
Steinunn Harðardóttir formað-
ur MFÍK.
Eitt kvöldiö var boðið í
kvennahúsiö Grevindens
Danners hus. Auk kynningar á
húsinu og þeirri starfsemi sem
þar fer fram voru flutt Ijóð, lesið
upp og spjallaö saman.
40 ungmenni
ruddust inn
Á lokafundi þingsins ruddust
40 ungmenni upp á sviðið
þegar maðurfrá Nigaraguavar
í ræöustól og ruddu honum frá
og hrópuöu „Sovétmenn frá
Afganistan". Úr þessu urðu
talsverð átök og brást fólk mis-
jafnlega viö. Sumir hrópuðu og
aðrir sungu.
Þessir leiðinlegu atburðir í
upphafi og við lok þingsins virt-
ust vera það eina sem fjölmiðl-
ar höfðu áhuga á að fjalla um í
sambandi við þingið og þótt
mér það miður, því eins og
komið hefur fram gerðist ótal-
margt áhugavert þessa daga.
Erfitt er að henda reiður á
hvaða árangur er af þingi sem
þessu. En bara það að fólk frá
ólíkum þjóðum með ólík trúar-
brögð og menningu hittist og
ræði málin hlýtur að skila sér í
sterkari friðarbaráttu um heim
allan. Það er Ijóst að öllum bar
saman um að kjarnorkuvopn
eru gereyðingarvopn sem ótt-
ast er að verði nýtt í styrjöld og
muni tortima öllu lífi á jörðu.
K. Bl.
7. heU'1986
Alþingistíðindi koma út í tveimur
deildum, A deild sem eru þingskjöl
og B deild sem eru umræður. Báð-
ar deildir koma út vikulega meðan
þing stendur.
Afgreiðsla Alþingistíðinda er á skrif-
stofu Alþingis Skólabrú 2, 101
Reykjavík, sími: 11560.
psKV 164-192
10