Vera - 01.12.1986, Qupperneq 12

Vera - 01.12.1986, Qupperneq 12
GRÆNN KVENNALISTI Kosningaplakat frá Græningjunum: ,,Brotist inn í karlaheiminn" f nœstsíðustu Veru sögð- um viö frá því að þýskur kvennaflokkur hyggöist bjóða fram í þingkosning- unum, sem fram munu fara í Vestur Þýskalandi í janúar n.k. En í kosningun- um á þingið í Hamborg (borgin er eitt fylkja Sam- bandslýðveldisins) í nóvember sl gerðist þaö að Grœningjarnir stilltu upp hreinum kvennalista. Við vitum ekki hvort ein- hver tengsl eru þama á milli, hvort t.d. Grœningjar haíi meö þessu móti verið að bregðast við því sem þeir telja ógnun við sig og hafi viljað skjóta kvenna- listunum ref fyrir rass eða hvort konur í röðum Grœningja hafi einíald- lega íengið sömu hug- myndina og aðrar. Engu aö síöur er þetta forvitni- leg þróun mála. Grœn- ingjarnir fengu alls 10.4% atkvœöanna og bœttu við sig 3.6%. Jafnaðar- menn, sem einatt hafa álitið Hamborg sitt sterk- asta vígi töpuöu 10.3% miðað viö síöustu kosning- ar, íengu 41.0%, Kristilegi demókrataflokkurinn bœtti við sig 3.6%, fékk 42.2%, Frjáslyndi flokkur- inn fékk 4.6% og bœtti viö sig 2%. Mest fylgi fékk kvennalisti Grœningj- anna í þeim kjörsóknum, sem fátœkastar eru. í því hinu frœga „skemmtana- hveríi" St. Pauli fékk listinn yfir 20% atkvœða. Karlmenn em meirihluti félaga í Grœningjunum eða 65.6%. Samtökin hafa hingaö til fylgt þeirri reglu að skipta listunum ná- kvœmlega jafnt eftir kynj- um og hefur það ekki gerst áður í Þýskalandi að flokkur bjóöi fram hreinan kvennalista. (Þess má geta aö Jaínaðarflokkurinn þýski hefur kvótareglu um skiptingu kynjanna á listum, konur verða að vera minnst 30% fram- bjóðenda.) Þegar umrœð- ur stóöu sem hœst um kvennalistann meðal Grœningjanna munu konurnar hafa bent á að í elstu kvótaskiptu stofnun samfélagsins, hjónaband- inu, hafi helmingaskipta- reglan ekki reynst nein trygging gegn kúgun! Reyndar seljum við þetta ekki dýrar en við keyptum það; þýsk dagblöð og trmarit virðast ekki hafa vitað hvemig taka bœri á þessum skrýtna lista Grœningjana og allar fréttir mjög r þeim dúr sem Kvennalistakonur hér á landi þekkja svo vel úr ís- lenskum fjölmiðlum. Vera mun því brða með frekari fregnir um það, sem að baki bjó kvennalista Grœningjanna, þangað til við höfum upplýsingar frá fyrstu hendi, en þeirra tókst okkur ekki að afla í tœka tíð fyrir þetta tölu- blað Vem. Ms HEIMAR KVENNA Kvennaráðstefnur aí ýmsu tagi em nú orðnar daglegt brauð. í síðasta hefti af Kvinnovetenskap- lig tidskriít (1986 nr. 1) er sagt frá alþjóðlegum ráð- stefnum sem einhverjar kynnu að hafa áhuga á. Þœr em kallaðar VERALD- IR KVENNA (Women’s Worlds) og em fyrir fólk úr öllum frœðigreinum. Sú fyrsta var haldin í ísrael 1981 og þótti takast vel. Einn árangurinn var að komið var á fót rannsókn- arstofnun í kvennarann- sóknum við háskólann í Jerúsalem, annar að kom- ið er út úrval erinda sem haldin vom á ráðstefn- unni undir nafninu ÚR HINUM NÝJU FRÆÐUM (From the New Scholar- ship). Nœsta ráðstefna var haldin í Groningen í Hol- landi og var hún fjölsóttari en sú fyrsta. Þar var við- fangsefnið baráttuaðferð- ir til að auka völd kvenna. í júní á sumri komanda er boðað til þriðju ráð- stefnunnar í Dublin á ír- landi. Þar verður tekið fyrir HUGMYND HANDA JAFNRÉTTISRÁÐI Kvennasamtök í Minne- sota fylki í Bandaríkjunum gefa út einblöðung með allskyns fréttum sem varöa konur, svo sem um ný lög og fmmvörp, fundi, sýningar, stöðuveitingar, stöðuhœkkanir, nám- skeið, opinberar rann- sóknir, bjánalegar fyrir- sagnir, fréttir um misbeit- ingu valds og mismunun gagnvart konum, aðgerð- ir baráttuhópa og hvað eina. Einstaklingar, opin- berar stofnanir, íélaga- samtök og stjórnmála- menn, sem einhverja sjálfsvirðingu hafa, em áskriíendur að þessum fréttablöðum V œri þetta ekki verkefni sem jafnréttisráð gœti beitt sér fyrir? Það vœri sjálfsagt að taka gjald fyrir slíka þjónustu svo að hún stœöi undir sér. 12

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.