Vera - 01.12.1986, Page 26

Vera - 01.12.1986, Page 26
i Annasamt hefur veriö hjá þingkonum Kvennalist- ans nú í haust. Guörún Agnarsdóttir tók sér tveggja vikna launalaust leyfi til þess að geta skilað af sér störfum í nefnd sem hún hefur setið í undanfarin 2 ár. Nefnd þessi varð til eftir að þált. Kvennalistans um rannsókn og meðferð nauðgunarmála var sam- þykkt á Alþingi vorið 1984. Nefndin hefur kannað stöðu þessara mála hér á landi og stóð til að hún skil- aði af sértillögum um úrbætur nú í haust. Málmfríður Sigurðardóttir kom inn fyrir Guðrúnu í þingbyrjun en Kristín Ástgeirsdóttir þann 11. nóvember s.l. þegar Guðrún fór á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Sigríður Dúna fór einnig í launalaust leyfi í lok október. Hún fór til Grænhöfðaeyja til þess að halda erindi á ráðstefnu um þróunarsamvinnu sem haldin var þar í október. María Jóhanna Lárusdóttir tók sæti Sigríðar Dúnu í efri deild á meðan. Þingkonur Kvennalistans hafa því verið sex tals- ins þetta haustið. Frumvarp um lágmarkslaun var flutt í annað skipti í haust, en hin frumvörpin um leyfi frá störfum vegna um- önnunar barna, lífeyrisréttindi heimavinnandi hús- mæðra og breytingu á sveitarstjórnarlögum voru öll flutt í fyrsta skipti á þessu þingi. Þrjár þingsályktunartillögur um þjóðaratkvæði, end- urmat á störfum kvenna og skipun embættismanna- nefndar til að fjalla um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum voru fluttar í fyrsta skipti nú í haust. Hinar þrjár eru um staðgreiðslu opinberra gjalda, fryst- ingu kjarnorkuvopna og fræðslu um kynferðismál. Fyrirspurnirnar þrettán eru um: kjarorkuverið í Dounreay í Skotlandi, tvær um rannsóknarlektor í sagn- fræði við heimspekideild Háskóla íslands, endurmat á störfum kennara, aukningu fjár til Byggingasjóðs verka- manna, launagreiðslur starfsfólks stjórnarráðsins, skuldabréfakaup lífeyrissjóðannaaf Húsnæðisstofnun, vísinda- og rannsóknaráð, Þróunarsamvinnustofnun íslands, afstöðu íslands til stöðvunar kjarnorkuvígbún- aðar, úrbætur í ferðaþjónustu, skort á hjúkrunarfræð- ingum og sjúkraliðum og lokun deilda á sjúkrahúsum. Á fyrstu vikum þingsins lagði Kvenna- listinn fram ein tuttugu og þrjú þingmál. Þar af fjögur frumvörp til laga, sex þings- ályktunartillögur og þrettán fyrirspurnir. RAINBOW NAVIGATION Rainbow Navigation málið svokallaða eða deila íslendinga og Bandaríkjamanna um flutninga til hers- ins, var með því fyrsta sem rætt var á Alþingi í haust. Þá var lögð fram þingsályktunartillaga um fullgild- ingu samnings milli íslands og Bandaríkjanna til að auðvelda framkvæmd varnarsamstarfs ríkjanna. Samningur þessi varð til þegar utanríkisráöherra sótti Bandaríkin heim nú í haust. Eins og nafn tillög- unnar gefur til kynna er samningurinn í beinum tengslum við hernaðarhagsmuni Bandaríkjanna hér á landi. Samkvæmt samningi þessum er íslenskum skipa- félögum tryggö 35% flutninganna til hersins það er að segja ef þau bjóða í þá. í umræðunum sagði Sigriður Dúna að það væri aumlegt og lítt sæmandi þeirri sjálfstæðu siglingaþjóð sem við viljum vera að hafa tekið við nokkurs konar kvótaúthlutun úr hendi Bandaríkjamanna. Kvennalistinn greiddi atkvæði á móti samningn- um því að kvennalistakonur eru andvígar því að vera bandaríska hersins sé nýtt í fjárhagslegu ágóða- skyni. Stefna Kvennalistans er að áhrif hersins á íslenskt efnahagslíf verði minnkuð svo að tryggt verði að afstaða til hans mótist ekki af efnahags- hagsmunum eins og kemur fram í stefnuskrá Kvennalistans. TVjTf'JGVJ,, OG í . <

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.