Vera - 01.12.1986, Blaðsíða 35
lesendum auðveldara fyrir að
fletta upp í bókinni. Því bók
af þessu tagi er ekki lesin í
gegn einu sinni og síðan lögð
til hliðar. Heldur væri upplagt
að hafa hana stöðugt innan
seilingar, hvort heldur sem er
til að svara einstökum spurn-
ingum eða til fróðleiks og
skemmtunar.
Það er engin leið að gera
úttekt á svona viðamikilli bók
í stuttu máli. En til að varpa
Ijósi á efnistök höfundar, til
að sýna á hve víðum grund-
velli hún leitar efnis, skal
vitnað í nokkrar millifyrirsagn-
ir: kynlíf og sjálfsmat, tvöfalt
siðgæði, typpisöfund, grasa-
lækningar, kynferðisleg hug-
nnyndafræði, feminismi, kynlíf
og málfar, einlifinu fagnað,
líkamlega fatlaðir, kynhvöt í
bernsku, brjóstagjöf, tíða-
hvörf, efri ár, skeiðarkrampi,
kynferðislegt ofbeldi, klám,
dauði ástvinar, barnsmissir,
að elska konur. . . og svo
mætti lengi telja. Umfjöllun
höfundar um kynlíf ýmissa
minnihlutahópa er svo sann-
arlega nauðsynleg og kær-
komin. Þessir hópar sem
annað hvort hafa orðið út-
undan í umræðu fólks um
kynlíf, eða hópar sem eru
ekkert nema kynlíf í huga
margra. Hér er átt við t.d.
lesbíur, fatlaða, fólk á efri ár-
um og þá sem af einhverjum
orsökum hafa ákveðið að búa
einir.
Bókinni var ekki ætlað að
sanna neina sérstaka
kenningu um kynhneigð
kvenna, heldur ætlaði
höfundur að kanna raunveru-
lega reynslu kvenna og
hvernig þær skynja hana.
Hún vitnar iðulega I raunveru-
leg dæmi og frásagnir
kvennanna sjálfra. Þær eru
ekki alltaf sammála enda ekki
tilgangur bókarinnar að
steypa allar í sama mót held-
ur varpa Ijósi á sameiginlega
reynslu. Þessi bók gerir sýni-
legan reynsluheim kvenna.
Allar konur ættu að geta
kynnst sjálfum sér betur og
karlar kynnst hugsunarhætti
kvenna við lestur þessarar
bókar.
Bókin er vel unnin og vönd-
uð af forlagsins hálfu og þýð-
endur hafa unnið vel þótt á
stöku stað gæti stofnanalegs
málfars. Aftast í bókinni eru
svo heimildaskrá, atriðisorða-
skrá og skrá yfir aðstoð og
upplýsingar þ.e. samtök og
aðila sem hafa með höndum
ráðgjöf og hjálp við ein-
staklinga. Rétt er að koma á
framfæri breytingu á þessum
lista. Kvennaráðgjöfin er flutt
í Hlaðvarpann, Vesturgötu 3
en er áfram á sama tíma með
sama síma.
EMn
TÍMAÞJÓFURINN
Steinunn Siguröar-
dóttir
útg. Iðunn
Reykjavík 1986
Þetta er ekki bók, sem
hægt er að lesa í hvelli og
skrifa svo um hana í Veru.
Þvert á móti sé ég fyrir mér
að hún verði mér dágóður
tímaþjófur því það er lengi
hægt að kreista úr henni
Er tekið eftir
þvísemþú
segír?
Þeir sem vilja tjá sig opinberlega, flytja ávarp,
ræðu eða á annan hátt taka þátt í málflutningi
þurfa að geta talað fumlaust og skipulega.
„Þú hefúr orðið“ er bók sem leiðbeinir öllum er
vilja ná betra valdi á málflutningi sínum og ræðu-
mennsku. Þar er fjallað um skipulag og uppbygg-
ingu ræðunnar, framsögn, málfar og aðra mikil-
vægaþætti.
í bókinni eru margar æfíngar, dæmi og verkefni
við allra hæfi.
„Þú heftir orðið“ er bók sem hentar hverjum sem
er, jafnt í skólum sem heima fyrir, byrjendum og
þcim sem lengra eru komnir.
MFA
MENNINGAR OG FRÆÐSLUSAMBAND ALÞÝÐU
GRENSASVEG116-108 REVKJAVlK ■ SlMI 91-84233