Vera


Vera - 01.12.1988, Qupperneq 19

Vera - 01.12.1988, Qupperneq 19
sem um er að ræða fátæka einstaklinga í iðnríkjum eða hin- ar fátæku þjóðir heims, að peningakerfinu verði breytt. Umhverfisverndarfólki hefur löngum verið sókn manna í aukinn hagvöxt þyrnir í augum. Hagvöxtur er reiknaður sem hundraðstala af þjóðarframleiðslu Þar sem þjóðar- framleiðsla eykst þá er 2,5% hagvöxtur nú margfalt meiri en 2,5% hagvöxtur fyrir nokkrum árum siðan. Ákefð í hag- vöxt stafar af því, að ef hann minnkaði þá yrði misskipting auðs á milli þeirra sem vinna og þeirra sem eiga peninga enri meiri en nú, sem aftur leiddi til félagslegra vandamála. Aukning hagvaxtar þýðir aftur á móti, að stöðugt er gengið á auðlindir jarðar og nú er svo komið að við verðum að velja á milli hagkreppu og vistkreppu. Þeir sem peninga hafa, hvort sem um er að ræða ein- staklinga eða fjölþjóðafyrirtæki, eru stöðugt að leita sér að miklum fjárfestingum, t.d. í kjarnorkuverum, stórum vatns- orkuverum og vopnaverksmiðjum. Hagfræðilega séð er skynsamleg sú hegðun Bandaríkjamanna og V-Evrópubúa að framleiða stöðugt öflugri vopn gegn Sovétmönnum ann- ars vegar og senda þeim hins vegar smjör, hveiti og tækni- þekkingu. Vopn er þaðeinasem hægt er aðframleiða í það óendanlega, mettun markaðar verður ekki svo lengi sem óvinurinn er fær um að þróa hraðvirkari og fullkomnari vopn. Gróðinn í vopnaframleiðslunni er miklu meiri heldur en gróðinn í öðrum geirum hagkerfisins. Svo lengi sem fjárfestingar þurfa að keppa við „peninga- framleiðsluna" á fjárfestingamörkuðum ganga þær fjár- festingar ekki sem eru skynsamlegar vistfræöilega séð, þ.e. eru þannig að framleiðslan/gróðinn vex upp að ein- hverju ákveðnu marki (mettun) en helst stöðug eftir það. Fjárfesting í sólarrafhlöðu sem þýddi að við gætum breytt sólarorku í raforku er vistfræðilega mjög hagkvæm en gæti verið hagfræðilega mjög óhagkvæm ef fjárfestingin gæfi e.t.v. aðeins 2% arð en sama upphæð í banka gæfi af sér 7% arð. Hvað um konur? Mjög fáar konur vinna á þeim stöðum þar sem höndlað er með peninga. Konur virðast skynja að eitthvað er rangt i peningakerfinu þótt þær viti ekki gjörla, ekki frekar en karlar, hvað er öðruvísi en það á að vera. Flestar konur þekkja það af eigin raun, að græði einhver án vinnu þá hefur einhver annar stritað fyrir því, oftast kona. Sá helmingur þjóðarinnar sem á aðeins 4% af heildarauði hennar er að langstærstum hluta konur og ranglæti núgild- andi peningakerfis bitnar fyrst og fremst á þeim. Nýtt pen- ingakerfi sem væri í raun endurbætt vöruskiptakerfi hentar konum mun betur en núgildandi kerfi og félli miklu betur að þeirra hugmyndum um vald. í fjórða kafla kvers síns rekur Margrit Kennedy nokkur lærdómsrík sögubrot máli sínu til stuðnings og í fimmta kaflanum spyr hún sig og svarar því, hvað sé hægt að gera til að koma á betra peningakerfi en nú er. Fyrsta skrefið í þá átt er að fræða fólk um áhrif vaxta og vaxtavaxta og næsta skref að koma af stað umræðu um lausn vandans og hvað fylgdi slíkum lausnum. í þeim tilgangi aö stíga þessi tvö skref hefur hér verið endursagt megininntak þessa litla kvers en ef einhverjir vilja lesa það í heild þá heitir það: INTEREST AND INFLATION FREE MONEY, How to create an exchange medium that works for everybody, útgefandi er; Permakultur Institut e.V., Ginsterweg 4—5, D-3074 Steyerberg, West Germany og kostar 12 þýsk mörk. Sigrún Helgadóttir Mjólk er matur fóstra og félagi, orkulind og heilsugjafi MJÓLKURBÚ FLÓAMANNA Stofnaö 10. febrúar 1939 Á 50 ára afmælinu bjóöum viö uppá eftirtaldar verklegar greinar á vorönn ’89. Fatasaumur, myndbandagerö, postulíns- málun, skrautskrift og leöursmíöi, bók- band og aö gera upp húsgögn. Innritun í Miðbæjarskóla eöa í símum 14106 og 12992. 19

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.