Vera - 01.11.1990, Qupperneq 9

Vera - 01.11.1990, Qupperneq 9
voðalega sérstakar með einstæð- an fatastíl. En gesti úr framtíðinni þætti við sennilega allar eins, rétt eins og okkur finnst allar konur hvers tímabils búningasögunnar vera eins. - ]ú, náttúrulega eru einhverj- ar línur, en það er erfitt að kort- leggja samtíðina. Þó að okkur finnist við djarfar og hafa per- sónulegan stíl er það sterkt einkenni á okkur að vilja ekki skera okkur úr. Ég var t.d. að lesa amerískar leiðbeiningar um klæðaburð fyrir konur á frama- braut. Þar stendur meðal annars að það sé mjög mikilvægt fyrir konur sem vilja ná langt, að ganga ekki í rómantískum fötum - nema þær vinni við eitthvað tengt listum eða vinni eingöngu með konum. í þessu blaði var líka langur pistill um það hvernig á að binda hálsklútinn. Hinn svokallaði Hvatarkvenna- klútur hefur orðið eitt af ytri táknum kvenna á uppleið. Mörg- um femínistum finnst kynsystur þeirra með klútinn vera orðnar að karlmönnum. Sérstaklega eru þær viðkvæmar fyrir Kvenna- listakonum með klút. Kvenna- listakonur eru bæði gagnrýndar fyrir að vera öðruvísi og fyrir að vera eins. Ein þeirra sást um dag- inn í sjónvarpinu með Hvatar- kvennaklút og ekki nóg með það heldur var hann bundinn a la Salome! Það gerði útslagið fannst konunni sem sagði mér þetta. En Þórdísi finnst Kvennalistakonur oft í upplífgandi fötum. - Ég man eftir Guðrúnu Agnarsdóttur í einhverju gulu og Kristínu Einarsdóttur í rósóttu pilsi sem stakk í stúf við dökk- bláu fötin hans Þorsteins, dökk- grá föt Steingíms og ljósgrá föt þeirra Svavars og Jóns Baldvins. Mér finnst þær hressandi innlegg í stjórnmálin. Þær hafa ekki ein- göngu öðruvísi sjónarhorn á mál- in heldur er útlitið líka öðruvísi. Mynd: Þorkell Haröarson Konurnar hafa ekki eingöngu öðruvísi sjónarhorn ó málin heldur er útlitið líka öðruvísi. Skyldu þessi föt verða til þess aö karlar geti leyft sér að sjást í peysum? Skyldu þessi föt verða til þess að karlar geti leyft sér að sjást í peysum? Hins vegar skil ég vel konur í drögtum með klúta, vegna þess að það er svo erfitt að vera öðruvísi. Ég er stundum að hugsa um hve miklum tíma Vigdís þarf að eyða í að skipta um föt. Hún þarf alltaf að vera í réttum bún- ingi, frjálsleg þegar hún hittir hóp unglinga og virðuleg þegar hún tekur á móti sendiherrum. A meðan getur karlmaðurinn alltaf verið í sömu jakkafötunum, ein- kennisbúningi sem ekki getur móðgað neinn. Ég sá einu sinni í sjónvarpinu sendinefnd frá Kyrrahafseyjum sem kom til Bandaríkjanna. Þeir voru í jakka með bindi og við þetta voru þeir í lendaskýlum og sandölum. En það var mikilvægt fyrir þá að falla inn í og vera í jakka og með bindi. Mér fannst þetta svo sniðugt að ég fór að grúska svolítið í sögu jakka- fatanna og komst að því að þau eru afsprengi frönsku bylting- arinnar. Þá fór aðallinn úr hné- buxunum og fór að ganga í síð- buxum eins og almúginn. Upp úr því þróuðust jakkafötin. Þetta þótti mér merkileg hliðarverkun byltingarinnar. Jakkaföt gefa karl- mönnum brynjutilfinningu. Þeir sýna ekkert, gefa ekki höggstað á sér, falla inn í hópinn. Jakkaföt móðga engan og enginn er lítill karl í jakkafötum. Fyrst við erum að tala um föt og byltingu. Nú var gerð útlitsbylt- ing á Vesturlöndum fyrir 20 árum. Byltingin hafði kannski aðallega áhrif á konur, sem hentu brjóstahöldum, sminki og hæla- háum skóm. Kvenréttindakonur afneituðu öllum ytri táknum kvenleikans. Þær klæddust muss- um og'flatbotna skóm. En mál- staður þeirra og kröfur vöktu athygli, að vísu mikla neikvæða athygli, en athygli engu að síður. Nú eys enginn galli yfir mussu- kerlingar lengur, en jafnframt gerist miklu minna í málefnum kvenna. Heldurðu að umbúðir kvennabaráttunnar séu orðnar of penar? Tekur enginn eftir henni lengur? - Ég held ekki að konur séu orðnar of fínar og kvenlegar, segir Þórdís. Utlitsbyltingin var þörf á sínum tíma. Þá voru öll mótmæli klædd í stóra peysur. En ég held að núna sé óþarfi að bera upp- 9

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.