Vera - 01.11.1990, Blaðsíða 25
17.15 17.20-20.30^
C6 i i íei
suður og Vera tók við hennar
hlutverki og hljóp yfir móa og
mela með hæla og stikur, litaði og
númeraði stikurnar og fældi
hross.
14.45 Mælingastörfum lokið
(Veru til mikillar gleði sem var
orðin rennblaut og búin að borða
yfir sig af berjum).
15.10 Selfoss, heim og farið úr
blautu fötunum.
15.30 Skrifstofan, tekið við
skilaboðum, hringt, Vera fór í
bakarí og svo var hellt uppá kaffi
og nágrannarnir komu yfir.
16.00 skannaðar myndir inn á
nýju Mac II tölvuna. Landslags-
arkitekt úr Reykjavík hringdi til
að fá ýmsar upplýsingar. Piltur
kom og bað um aðstoð við upp-
setningu landamerkja og tveir
bændur komu að kaupa afréttar-
kort. Gamall vinnufélagi sló á
þráðinn.
17.15 HH sóttur á skóladag-
heimilið sem hann byrjaði á fyrir
hálfum mánuði. Hann er hinn
ánægðasti. Þegar sumarfrí var á
dagheimilinu tók Elín hann
stundum með sér í vinnuna og í
mælingarferðir. „Eg get alls ekki
tekið frí í fimm vikur samfleytt."
17.20 Elín rétt náði í Kaup-
félagið, sem lokar hálf sex „sem er
mikill galli" og mundi hérumbil
eftir öllu.
17.45 Komið heim
18.15 Mamma hringdi
18.30 „Nágrannarnir" á Hönn
hringja því þá vantar lykla, Elín
sendi Veru með þá og í búð í leið-
/ ^ ^ pn on
inni. A meðan hringdu einir þrír
út af hinu og þessu. Elín eldaði
pastarétt og HH horfði á barna-
efnið í sjónvarpinu á meðan.
19.00 Kvöldverður. Útvarps-
fréttir í bakgrunni.
20- 20.30 Vaskað upp og tekið
til. Þvílíkur sandur á gólfinu. Vera
les fyrir HH sem er dauðþreyttur
og lætur ýmis „nýyrði" fjúka sem
hann lærði greinilega af sér eldri
börnum í dag. „Við gerum eitt-
hvað skemmtilegt saman áður en
farið er að hátta, ég les mikið fyrir
hann, stundum spilum við eða 2i oo
byggjum eða förum jafnvel í
stutta gönguferð."
21- 21.30 HH komið í rúmið og
Elín les nokkrar síður í Línu
langsokk.
21.30 Loksins tími til að setjast
og lesa blaðið og spjalla við Veru.
22.00 Sett í eina vél af syninum
og gengið frá þvotti.
23.30 Farið að hátta
RV
Myndir: Ragnhildur Vigfúsdóttir
Anna Fjóla Gísladóttir
25