Vera - 01.11.1990, Blaðsíða 26
Miklar umrœður hafa farið fram um
byggingu álvers hér á landi á
undanförnum mánuðum. Það sem
hefur einkennt þá umrœðu er mikill
áróður fyrir ágœti álversuppbygg-
ingar. Þeir sem leyfa sér að koma
með mótbárur eða setja spurn-
ingarmerki við fullyrðingar ráða-
manna eru sagðir hinir mestu aftur-
haldsseggir, einstrengingslegt úr-
tölufólk, viti ekki hvað þeir eru að
segja og taldir vera á móti fram-
förum. Kvennalistinn hefur alla tíð
verið á móti byggingu álvers hér á
landi. Vera bað Kristínu Einars-
dóttur, lífeðlisfrœðing og þingkonu
Kvennalistans að benda á helstu
rök gegn byggingu álvers hér á
landi.
Um langt árabil hafa íslenskir ráðamenn
verið haldnir þeirri undarlegu þráhyggju
að það eina sem geti bjargað íslensku
efnahagslífi sé bygging nýs álvers. Þetta
hefur tekið hugi þeirra svo að varla hefur
örlað á viðleitni til að líta til annarra kosta
fyrir atvinnulífið. Fullvinnsla sjávarafla,
önnur matvælaframleiðsla og iðnaður
sem fellur að íslensku samfélagi virðist
ekki vera ofarlega á vinsældalistanum hjá
þessum herrum. Nú hefur áróðurinn haft
þau áhrif að æ fleiri eru farnir að trúa
þessari vitleysu.
FÉLAGSLEG RÖSKUN
A stöðum þar sem atvinnuuppbygging
hefur aðallega verið í formi stóriðju eins
og t.d. sums staðar í Noregi hafa skapast
mikil vandamál af því hve atvinnulíf
staðanna verður einhæft. Mörg stóriðju-
ver, þar á meðal stærstu álverin, eru
byggð á afskekktum stöðum með lélegt
vegasamband og lítið undirlendi.
Vinnumarkaðurinn er mjög takmarkaður
og iðjuverin verða oft algerlega ríkjandi. I
ýmsum byggðarlögum hafa einhliða stór-
iðjusvæði lent í verulegum ógöngum og
atvinnuhorfur eru þar víða mjög slæmar.
Höfuðeinkenni þessara hreppa er mikill
aðflutningur fólks í upphafi stóriðju-
uppbyggingar og fólksflótti síðar meir.
Stóriðja er því ekki vænlegur kostur í
fámennum byggðum og iðjuverahrepp-
arnir hafa í Noregi fengið í sinn hlut flest
vandamál stórborgarsamfélags svo sem
unglingavandamál, óstöðugleika, hávaða
og mengun af ýmsu tagi. Aftur á móti fá
þeir ekki kosti borganna í staðinn svo sem
fjölbreytt menningar- og atvinnulíf með
tækifærum til vinnu, einnig fyrir konur og
ungmenni.
ÓAÐLAÐANDI VINNUSTAÐIR
Þegar talað er um stóriðju hér á landi
þýðir það í hugum flestra stóriðju eins og
þá sem blasir við okkur í Straumsvík og á
26