Vera - 01.11.1990, Page 13

Vera - 01.11.1990, Page 13
Sjáðu til dœmis bindishnút Steingríms Hermannssonar. Enginn maður er eins stöðugur og hann. Hann er kominn eins hátt í metorða- stiganum og hann kœrir sig um. Hans metnaði er fullnœgt. Hann staðfestir ímynd sína um stöðugleika landsföðurins með breiðum og beinum hnúti. Til eru karlmenn sem aldrei lœra þessa list en treysta í þessum efnum á konur sínar eða geyma bindið í hnútnum. Það finnst Baldri villimannslegt. Á íslandi og nágrannalöndum okkar hefur bindið öðlast fastan sess sem hluti af einkennisbún- ingi jakkafatasamfélagsins. Ráða- menn þjóðarinnar nota undan- tekningarlaust hálsbindi. Þeir tjá stöðu sína með mismunandi bindishnútum. Hnútar eru ýmist langir, niðurmjóir og breikka upp eins og kampavínsglas; eða stutt- ir og kubbslegir. Bindishnútar eru annaðhvort hafðir beinir eða skakkir. - Allt sem er beint lýsir stöðugleika, segir Baldur. Sjáðu til dæmis bindishnút Steingríms Hermannssonar. Enginn maður er eins stöðugur og hann. Hann er kominn eins hátt í metorða- stiganum og hann kærir sig um. Hans metnaði er fullnægt. Hann staðfestir ímynd sína um stöðug- leika landsföðurins með breiðum og beinum hnúti. Hann notar tvöfaldan hnút, sem er í eðli sínu lágstéttarhnútur. Steingríms- hnútur er líka þykkur að gamalli bændahefð. Baldur finnur sér skáröndótt bindi sem hann hnýtir að hætti Steingríms og setur upp lands- föðurlegan svip fyrir myndatöku. Æðstu menn þjóðarinnar nota oft skáröndótt bindi, gjarnan í áber- andi litum. Litfagurt bindi er tákn um hugrekki og sjálfsöryggi. Skárendurnar tákna festu. - Júlíus Sólnes var með óró- legt, skræpótt bindi í sjónvarpinu um daginn. Hann hnýtir ekki breiða hnúta. Bindið og hnútur- inn sýna að hann situr völtum sessi í ríkisstjórninni, segir Baldur en fer svo út í aðra sálma, nefni- lega skakka hnútinn sem stíl- bragð. - Skakki hnúturinn sýnir ákveðinn hreyfanleika, maðurinn ætlar hærra. Hann sýnir líka eitt- hvað óvænt í skapgerðinni, ákveðinn frumleika, sjálfstæði og hugrekki, segir Baldur á meðan hann hnýtir skakkan hnút, sem hann hefur langan og mjóan. Lengd hnútsins ræðst af breidd bindisins í hnútnum og henni má stjórna þar sem flest bindi víkka mjög í annan endann. Langur hnútur er aristókratískur og er yfirleitt merki um andlega sinn- aðan mann. Afgreiðslumaðurinn sem einnig er með örlítið skakkan hnút bend- ir á að hnúturinn geti hafa skekkst í dagsins önn. - Já, já og skakkir hnútar geta hreinlega verið merki þess að sá sem ber hann hefur ekki komist upp á lag með að hnýta bindið, segja þeir félagar. Til eru karlmenn sem aldrei læra þessa list en treysta í þessum efnum á konur sínar eða geyma bindið í hnútnum. Það finnst Baldri villimannslegt: - Það er eins og að viðra aldrei rúmfötin sín. Hnútur afgreiðslumannsins er eilítið kubbslegri en sá sem Baldur hnýtti. Kubbslegur hnút- ur ber vott um jarðbundna skaphöfn samkvæmt sérfræðing- unum. Stuttur beinn hnútur ber vott um varfærni en getur líka táknað jákvæðni. Hins vegar notar afgreiðslumaðurinn bindis- nælu til að lyfta upp bindinu og gæða það meira lífi. Það sýnir aftur á móti ákveðna dirfsku. Þessu næst finnur Hjalti sér breitt bindi til að hnýta hinn klassíska aristókratíska hnút. Sá er langur, hvorki breiður né mjór og ekki snúinn. - Bindishnúta verður að laga til með'höndunum, forma eins og leir, segir Hjalti og strýkur með æfðum höndum um hnútinn. Hann er sjálfsagt einn þeirra manna sem eru jafnvígir á bindi og slaufu. Halldór Laxness er annað dæmi um slíkan mann. En Hjalti lendir í vandræðum með aristókratíska hnútinn að þessu sinni, því að flibbinn er of lítill. Að sjálfsögðu er stærð og lögun bindis og flibba stór breyta í þessu dæmi, sem og stærð og form jakkahálsmáls. Og bindis- endar eiga að vera jafnlangir. Ekkert er eins kauðalegt og þegar mjórri endinn er lengri en sá breiðari. 13

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.