Vera - 01.11.1990, Blaðsíða 15

Vera - 01.11.1990, Blaðsíða 15
LJÓÐ Mynd: Björg Árnadóttir STJORNMAL, LISTIR OG GÚLLASSÚPA Hitinn á ungversku háslétt- unni var nær óbærilegur í hádeginu þann 18. ágúst 1988, þegar þessi mynd var tekin. Umræðan var einnig heit undir borðum á þessum umrótstímum í landinu sem er miðja vegu milli austurs og vestur, bæði í landfræði- legum og hugmyndafræði- legum skilningi. Bæld óánægja var um það bil að bylta stjórnkerfinu. Við erum stödd á heimili Bényi hjónanna. Þau búa í listamannanýlendu í borg- inni Debrecen. Þar standa í einum hnapp átta lítil hús, þar sem vinnustofan er hjarta heimilisins. Béla Göyngy, lögfræðingur á eftirlaunum er túlkur okkar. Enskan hans er ófullkomin og oft gleymir hann sér í löngum samræðum við gest- gjafana. Þá skulum við bara sitja og njóta vínsins. Það er framleitt á heimilinu úr vín- berjum frá Tokaj, helsta vín- yrkjuhéraði Ungverjalands. Við virðum fyrir okkur vinnustofuna. Litadýrð nið- ursoðinna ávaxta í gler- krukkum keppa um athygli augans við skærlit mál- verkin. Þau eru máluð með snöggum, lifandi dráttum - mörg eru af uppkomnum syni þeirra hjóna að leika á selló. Málarinn Árpád Bényi segir okkur frá fangelsisvist í rússnesku fangelsi fyrir þrjá- tíu árum. Hinum nýju stjórn- arherrum hafði ekki líkað plakat sem hann málaði. Lenke Bényi er menntaskóla- kennari. Hún býr til heimsins bestu gúllassúpu. í Ungverjalandi er gúllas oftast súpa. Hér kemur upp- skrift að ungverskri gúllas- súpu. Uppskriftin er aðlöguð íslensku eldhúsi með ís- lenskum hráefnum og önn- um kafinni húsmóður. Gúllassúpa: 500 g. nautagúllas 4 sneiðar beikon 2 stórir laukar 2 hvítlauksrif 2 grænar og 1 rauð paprika 1 dl. ólífuolía 5 kartöflur 3 tómatar 1 1. vatn 1 msk. kjötkraftur 3 tsk. paprikukrydd 1 tsk. kúmen salt og pipar Skerið beikon, lauk og hvít- lauk í litla bita og brúnið í olíunni. Bætið kjötbitunum við og látið krauma nokkra stund. Kryddið með salti, pipar, kúmeni og papriku. Bætið í vatni og kjötkrafti og látið sjóða í hálftíma. Bætið síðan paprikunni við og sjóð- ið í ca. fimmtán mínútur. Setjið að lokum kartöflur og tómata í litlum bitum útí og látið sjóða í hálftíma. Barnlaus móðir Hrópað er barnsröddu mamma.. . mamma endurminning eða eitthvað svo sjálfsagt að heyra . . . finna að eitthvað brestur innra og veröldin hrynur langþyrst augun sjá fyrir sér rauðbrúna lokka og sægræn augu eftirsjá lítilla handa samviskubit einhver ófögnuður gegndarlaus minn söknuður ég fyllist heift ég hef átt - hef misst nú hata ég, ásaka, fyrirlít og fordæmi barbaríska efasjúka burgeisa fjölskylduupplausn er afleiðing tilfinningar og hugsanir tortímast og ekkert verður eftir nema þrælslundin sem loróast í vinnuógleði a . . . aaa . . . AA . . . AAAAAAA AFLEIÐING að ég er barnlaus móðir Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir 15

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.