Vera - 01.11.1990, Side 24

Vera - 01.11.1990, Side 24
11.00-15.00 15.30-16.00 Sf í LÍFI 10.00 9.00 8.15 Vera fylgdi Elínu eftir mið- vikudaginn 5. september s.l. frá kl. hálf átta, þegar Helgi Haukur vakti heimilisfólkið, til kl. hálf tólf um kvöldið, þegar Elín gekk til náða. „Þetta var harla venjulegur dagur, spilaður eftir aðstæðun- um." 8.15 „Mamma, byrjar skólinn í dag?" spyr HH en Elín svarar því neitandi. „Eg reyni að taka dag- inn snemma svo að morguninn gangi áreynslulaust fyrir sig. Ef ég þarf að reka mikið á eftir verður HH ansi öfugsnúinn. Ég verð líka sjálf að hafa tíma til að borða góðan morgunmat svo að ég „funkeri"." 8.45 „Drífa sig út, HH á skóla- dagheimilið og ég í vinnuna, muna að taka bensín í leiðinni." 9.00 Vinnan. „Best að ljúka símhringingunum af áður en hinir fara að hringja í mig." Elín hringdi m.a. í bankann og í við- skiptavin útaf frágangi á verk- efni: „Þetta er ekki spurningin um að vera önug heldur að gera öllum jafn hátt undir höfði. Samvisku minnar vegna get ég ekki fært þinn hæl eftir þinni umsögn. ...jæja það er ágætt. Blessaður." Elín segist eyða allt of miklum tíma í símanum, enda er hún slæm í öxlunum. 9.25 Hringt í barnaskólann, en HH byrjar á morgun. „Sem betur fer er hann í skólanum fyrir hádegi. Þá get ég tekið hann með þegar ég þarf að fara í „langar" Rey kja víkur ferðir." 10.00 Kaffi (Elín drekkur bara te) og rætt um verkefni dagsins. Valgerður og Andrés mætt, svo og Páll verkfræðingur, en í dag þarf að setja út sumarbústaða- land. Græjurnar athugaðar, keypt nesti og farið heim í hlýrri föt. 11.00 Komið á vettvang. Elín er þegar búin að skoða landið og gera hæðalínukort. Einnig skoð- aði hún loftmyndir. „Þó að landið sé einsleitt hér þarf að gera flókna undirbúningsvinnu og skipulag í samvinnu við ýmsa aðila. Að því loknu eru settir út hælar sem sýna lóðamörk, vegi og legu húsa, það þarf svo að senda ýmsum nefnd- um til samþykkis áður en hægt er að byrja að byggja." Elín leggur mikla áherslu á að sumarbústaðir verði að falla inn í landslagið. „Mér finnst þetta eitt af því skemmtilegasta við starfið enda er ég úti og geng mikið. (Verra er þó að það skuli rigna og það svona mikið.) Vinnan fyrir Nátt- úruverndarráð er líka skemmti- leg að þessu leyti." 12.50-13.10 matarhlé, V. fór 24

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.