Vera - 01.11.1990, Qupperneq 37

Vera - 01.11.1990, Qupperneq 37
KVENNABLAÐIÐ DRAUPNIR Ársritið Draupnir „Safn af skáldsögum og sönnum sög- um o.fl. Frumsamið og þýtt" kom út á árunum 1891-1908. Ritstjóri var Torfhildur Þor- steinsdóttir Holm (1845- 1918). í formála fyrsta tölu- blaðs segir Torflrildur m.a. að hún muni leggja allt kapp á að áframhaldandi rit sín verði góð og nýtileg og batni sem lengra frá líður, „einkanlega ef ráð mitt rífkast svo, að jeg þurfi ekki svo-svo sem hingað til-að hafa ritstörfin í hjáverk- um, því sá maður eða sú kona, sem á að geta unnið vel, verð- ur að geta notið hæfileika sinna afdráttarlaust." Torfhildur var ekki ein- ungis fyrsti íslenski kven- rithöfundurinn, hún var fyrsti íslendingurinn sem gerði rit- störf að ævistarfi. Torfhildur, sem var prestsdóttir úr Skafta- fellssýslu, var ung send til Reykjavíkur þar sem hún lærði tungumál og hannyrðir. Síðar sigldi hún til Kaup- mannahafnar þar sem hún lærði m.a. að mála. Torfhildur varð ekkja á eins árs brúð- kaupsafmæli sínu og var barn- laus. Hún hafði því rýmri tíma til skrifta en margar aðrar. Torfhildur flutti til Kanada, ásamt fleiri íslendingum, 1876 og bjó þar í 13 ár. í formála að Draupni 1903 lýsir Torfhildur ólíkum kringumstæðum sín- um þegar hún skrifaði annars vegar Brynjólf biskup (sem kom út 1882) og hins vegar Jón biskup Arason (sem var gefin út í hlutum í Draupni 1903-8): „En ég hef samið þau undir ólíkum kringumstæðum, og er því viðbúið að verkin beri það með sér. Því þegar ég samdi Brynjólf biskup Sveinsson, þá þurfti eg enga áhyggju að bera fyrir lífs- nauðþurftunum og hafði þar af leiðandi yfir nægum tíma að ráða, sömuleiðis peninga til að gefa hann út í heilu lagi, þá var eg sömuleiðis til- tölulega ung, 35 ára, og andi minn og heilsa lítt lömuð. Svo hafði ég, þá er ég var í annari heimsálfu, ákafa heimþrá. Allt hér heima fannst mér svo göfugt og fagurt, já, og nærri því guðdómlegt. Og með þær hugsjónir fyrir sálaraugunum skrifaði ég upp hjá mér margar af þeim greinum, sem eg seinna fléttaði utan um og hafði í Brynjólfi biskup. Sömuleiðis „Landið mitt", gerði ég áður við líkt tæki- færi, og notaði það svo í hann. En það sem kemur frá hjarta, leitar vanalega að hjarta og finnur það. Þessi skilyrði eru ekki lengur til staðar við Jón bisk- up Arason, því nú verð ég að semja hann í þeim tóm- stundum, sem ég hef afgangs frá „Dvöl" og margvíslegum öðrum önnum, sem fljóta af núverandi lífsstöðu minni. Þar að auki er ég nú fullra 58 ára gömul, og eðlilega hefir margt mætt á anda mínum og heilsu þessi síðustu 23 ár. Landinu mínu ann ég eins heitt og ég gerði þá, en á annan hátt. Nú hef ég það líka fyrir augunum, svo þar kom- ast engar töfrandi hugsjónir að. Þegar þessi skilyrði eru lögð saman, verður mismun- urinn svo mikill, að ólíklegt er að seinasta verkið mitt geti mætt mínu fyrsta. En það er að eins eitt skilyrði, sem er hið sama þá og nú, og það er traustið á Guði. Og það getur riðið baggamuninn." Eftir að heim kom veitti Al- þingi henni rithöfundarstyrk, sem mætti mikilli mótspyrnu bæði innan þings og utan og var seinna lækkaður og kall- aður ekknastyrkur: „Ég var sú fyrsta, sem náttúran dæmdi til þess að uppskera hina beisku ávexti gamalla, rótgróinna hleypidóma gegn litterærum dömum." (Draumur um veru- leika, bls. 28) I fyrstu ritum Draupnis eru ýmsir „smámunir" t.d. ráða- þáttur (mataruppskriftir og húsráð), grein um rétt giftra kvenna í Oregon, og brúð- kaupssiðir í Noregi. Fljótlega einbeitir hún sér þó að frum- sömdum skáldsögum um biskupana Jón Vídalín og Jón Arason og sleppir smælkinu. Leikrit um Gissur Þorvaldsson jarl, eftir mág Torfhildar Eggert O Briem, tók þrjú hefti. I formála að Draupni 1907 ræðir Torflrildur um sögu sína af Jóni biskupi Arasyni sem var orðin „lengri en mér kom til hugar í fyrstunni að hún mundi verða, og hefði eg sjálfsagt ekki lagt út í að semja hana, ef mér hefði dottið það í hug, því tíma mínum og heilsu er svo háttað, að eg er ekki fær um að semja meira í einu en það hefti, sem þá kemur út. Eg vona nú samt fastlega, að Guð lofi mér að lifa svo lengi, þó eg sé komin á 3. ár hins 7. tugar, að eg fái lagt síðustu hönd á þetta mikla og erfiða verk." Torfhildi tókst að ljúka því árið 1908 og í stuttum eftirmála og viðbæti segir hún m.a.: „Og eg hef fylgt sögulegum viðburð- unum svo vel og nákvæmlega sem mér hefur verið auðið, en vel getur samt verið að í einhverju sé of eða van þar sem eg hef orðið að rita söguna í hjáverkum; en söguleg rit- verk eru í raun og veru engin ígripsvinna." A fyrsta ári Draupnis komu út tvö hefti, en síðan kom ritið út annað hvert ár og loks árlega frá 1902. Torfhildur Holm var afkasta- mikill rithöfundur. Soffía Auð- ur Birgisdóttir, bókmennta- fræðingur, skiptir ritstörfum hennar niður í fjóra þætti: Fyrsti og stærsti þátturinn eru fjórar sögulegar skáldsögur. Annar þátturinn eru stuttar skáldsögur og smásögur með samskipti kynjanna og hjóna- bandið að aðalinntaki. 1 þriðja lagi er tímaritaútgáfan og í fjórða lagi þjóðsagnasöfnun meðál íslenskra landnema í Vesturheimi. Auk Draupnis gaf Torf- hildur út ársritið Tíbrá „fyrir börn og eldri" 1892 og '93. í blaðinu, sem er fyrsta blað ætl- að börnum hér á landi, voru aðallega þýddar smásögur fyrir börn, en einnig var ein- staka saga eftir hana. Hún gaf einnig út lítið mánaðarrit (2-6 síður), Dvöl, frá 1901-17, með handavinnu, sögum, greinum og ljóðum (mest þýtt). RV Heimildir: Draupnir, 1891-1908, Björg Einarsdóttir: Fyrsti íslenski kven- rithöfundurinn Ur ævi og starfi íslenskra kvenna I, Rvk 1984 Helga Kress: Draumur um veruleika. Islenskar sögur um og eftir konur. Rvk 1977. Sigrún Sigurðardóttir: lslensk kvcnna- hlöð og tímarit 1891-1985, Skrá með umsögnum Ópr. BA ritgerð í Bókasafnsfræði við HÍ, okt. 1985 Soffía Auður Birgisdóttir: Skyldan og sköpunarþrríin, Sögur íslenskra kvenna 1879-1960, Rvk. 1987 37

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.