Vera - 01.02.1991, Side 2

Vera - 01.02.1991, Side 2
Daginn sem stríð braust út í beinni útsendingu um allan heim og iður jarðar opnuðust í íslenskum fjölmiðlum, rann skilafrestur á greinum í þessa VERU út. Blaðið fjallar að mestu um uppeldi og skólamál. Það er ekki laust við að þetta efni virðist dálítið hversdagslegt í kviku heimsviðburðanna. En þegar blaðið berst til ykkar verður æsinginn vonandi farið að lægja á sem flestum vígstöðvum og umræðan um skólamál aftur orðin áríðandi. I grunnskólum landsins eyðir um fimmtungur þjóðarinnar dögum sínum við nám, kennslu og önnur störf. Umfjöllun um það sem miður fer í skólakerfinu gæti fyllt síður VERU fram á vor. En vitandi um þau uppeldisfræðilegu sannindi að jákvæð orð styrkja jákvætt atferli ákváðum við að benda frekar á ýmislegt sem vel er gert í skólum landsins og tilraunir sem okkur finnst áhugaverðar. BA LÍNA LANGSOKKUR (f. 1944) Þessi hluti VERU er jafnan helgaður konu sem eitthvað hefur afrekað í þágu kvenkynsins. I þetta skipti varð fyrir valinu kvenpersóna sem ekki er af holdi og blóði. En Lína langsokkur er kannski eina stelpa barnabókmenntanna sem strákar á öllum aldri virða og dá og því hefur hún lagt drjúgan skerf til kvennabaráttunnar, þó að mest hafi hún beitt sér í barnarétt- indabaráttunni. Það var Karin, dóttir Astrid Lindgren, sem var hinn eiginlegi skapari Línu, en þær mæðgur styttu sér oft stundir við að búa til sögur um þessa skemmti- legu stelpu. í maí 1944 gaf Astrid dóttur sinni handritið að fyrstu bókinni um Línu í afmælis- gjöf. Hún sendi það líka til útgefenda, en því var hafnað. Ári síðar hlaut Astrid fyrstu verðlaun í barnabókasamkeppni fyrir söguna um Línu. Þessi þriðja bók Astrid Lindgren varð ein vin- sælasta barnabók sem um getur. Kannski voru börn heimsins einmitt að bíða eftir bók um stelpu, sem gat gert hvað sem hún vildi hvenær sem henni datt í hug, lét boð og bönn sem vind um eyru þjóta, þekkti eigin kraft og hæfileika og leiddist aldrei. Auðvitað gæti slíkt barn verið óþolandi. En Lína er skemmtileg og auk þess gætir hún alltaf hagsmuna þeirra sem minna mega sín. Þegar bókin um Línu langsokk kom út var hið svokallaða „frjálsa barnauppeldi" að koma til sögunnar. Sálfræðingar töluðu um rétt barnsins. Margir voru farnir að draga það í efa að rétt væri að þvinga börn og brjóta niður vilja þeirra. Ári eftir að bókin kom út byrjaði að bera á neikvæðum viðbrögðum við henni. Hatrammar ritdeilur upphófust, einkum meðal kennara. Þessi skrif sem upp- haflega fjölluðu um bókina, sner- ust yfir í ádeilur á nýja uppeldis- hætti. Margir kennarar vörðu af hörku rétt sinn til að beita nemendur líkamlegu valdi. í flestum þessara greina var Lína talin vera börnum slæm fyrirmynd og jafnvel hugarfóstur geðsjúkrar manneskju. Bókin var sögð skrifuð á slæmu máli og vera almennt siðspillandi. Róttækir uppeldis- fræðingar sjöunda áratugarins töldu frelsistil- burði Línu hins vegar vera „dæmigert frjáls- og einstaklingshyggju hálfkák". En Lína langsokkur hefur staðið af sér alla gagnrýni og börnum þykir alltaf jafn vænt um hana. Astrid Lindgren, sem sjálf er alin upp við mikið ástríki á stóru sveitaheimili, hefur aðeins einu sinni blandað sér í deilurnar um Línu. Þá skrifaði hún meðal annars þessi orð: „...það ætti að vera hlutverk hinna fullorðnu að skapa litlu barni heim öryggis, hlýju og góðmennsku. En gera þeir það? Alltof sjaldan finnst mér. Þeir hafa sennilega ekki tíma! Þeir eru svo uppteknir af því að ala þetta litla kríli upp. Þeir ala upp frá morgni til kvölds og eru mjög ákafir í að kenna barninu strax frá upphafi að haga sér eins og fullorðinn. Það að vera barn er víst mjög ljótt skapgerðar- einkenni, sem verður með öllum ráðum að losna 1/1991 — 10. árg. VERA Laugavegi 17 101 Reykjavík Útgefendur: Samtök um Kvennalista og Kvennaframboð í Reykjavík. Sími 22188 Forsíða: Þórdís Ágústsdóttir Böm í 2. bekk Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ Ritnefnd: Anna Ólafsdóttir Björnsson Guðrún Ólafsdóttir Hildur Jónsdóttir Hrund Ólafsdóttir Inga Dóra Björnsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kristín Karlsdóttir Laura Valentino Starfskonur Veru: Björg Árnadóttlr Ragnhildur Vigfúsdóttir Vala Valdimarsdóttir Útlit: Harpa Björnsdóttir Teikningar: Ásgerður Helgadóttir Ábyrgö: Björg Árnadóttir Ragnhildur Vigfúsdóttir Textavinnsla og tölvuumbrot: Edda Harðardóttir Filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun og bókband: Frjáls fjölmiðlun Plastpökkun: Vinnuheimilið Bjarkarás l A*» ' ’ • 422480 Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda. 2

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.