Vera - 01.02.1991, Page 13

Vera - 01.02.1991, Page 13
GRUNNSKÓUNN ER ÞRÍHÖFÐA ÞURS Grunnskólinn er þríhöfða þurs. Eitt höfuðið á að uppfræða, annað ala upp og hið þriðja á að hafa auga með ungviðinu á meðan mömmur og pabbar draga björg í bú. Kröfurnar sem gerðar eru til skólans aukast stöðugt. Skólinn á að kenna allt sem kenna þarf. Auk þess að búa börnin undir atvinnu- lífið á hann að gera úr þeim hamingjusama, tillitssama og skapandi einstaklinga og kenna þeirn mannasiði . „Hvað læra börnin eiginlega í þessurn skóla, fyrst þau læra ekki að borða með hníf og gaffli?", er sagt að for- viða faðir hafi látið út úr sér við matarborðið. Skólinn hefur löngum sætt gagnrýni úr öllum áttum. Og auðvitað er ýmislegt gagn- rýnisvert og umdeilanlegt, hvort sem það er menntastefnan í heild, gildi ákveðins náms- efnis og kennsluhátta eða ágæti einstakra kennara og kennslubóka. Víða á landinu er kennaraskortur tilfinnanlegur og húsnæði bágborið. Bekkirnir eru það stórir að ekki er hægt að sinna sérþörfum nemenda, hvorki þeirra afburðagreindu né þeirra sem eiga erfitt með nám af einhverjum ástæðum. Stjórnvöld hafa heldur ekki fylgst nægilega vel með þeirri samfélagsþróun, að heimilin eru núorðið ómönnuð meiri hluta dags. Stuttir og ósamfelldir skóladagar og löng frí gera útivinnandi foreldrum - einkum mæðr- um - erfitt fyrir. Börnin fá lykil um hálsinn og eru send á beit í sjoppurnar á meðan margir foreldrar borða niðurgreiddan há- degismat á vinnustöðum sínum. Umfjöllun um það sem miður fer í skólakerfinu gæti fyllt síður VERU fram á vor. En vitandi um þau uppeldisfræðilegu sannindi að jákvæð orð örvi jákvætt atferli, ákvað ritnefnd VERU að benda heldur á ýmislegt sem vel er gert í skólastarfi og tilraunir sem okkur finnst athyglisverðar.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.