Vera - 01.02.1991, Side 16

Vera - 01.02.1991, Side 16
DRAUMURINN UM HINN FULLKOMNA SKOLA heilsu kennara, foreldra og barna, sem ástæða er til að draga fram í dagsljósið. Ég skora á lækna að kynna sér innra starf skóla vel, leggja orð í belg um starfshætti skólanna ef þeim þykir ástæða til og styðja þannig áhugafólk um skólamál í leit að úrbótum. Margir kennarar eiga and- vökunætur vegna kvíða fyrir komandi degi. Líðan þeirra kennara sem líður illa í starfi kemur lítið sem ekkert upp á yfirborðið vegna þess hvað starf- ið heggur nærri sjálfsmynd kenn- arans. Kennarar reyna að halda því leyndu ef þeim líður illa í starfi og kenna oftast sjálfum sér um erfiðleika í starfi í stað þess að horfa gagnrýnum augum á það verk sem honum er ætlað að vinna. Kennarastarfið er einangr- að starf. Kennarar vinna mikið einir. Þeir bera einir ábyrgð á stórum hópi nemenda og sitja einir uppi með vandann. Það getur verið mjög slæmt, bæði fyrir nemendur og kennarann. Hvað œtlaröu aö gera ef þér veröur réttur lykill aö fjölmennum skóla á Reykja- víkursvœöinu og þú beöin aö taka við stjórn hans? Það er freisting sem ég vona að ég falli ekki fyrir. Ég veit að ég gæti stjórnað skóla í samvinnu við samstilltan kennarahóp. Ég gæti hins vegar ekki sætt mig við annað en sjá gleði í hverju andliti. Til þess þyrfti ég fleira starfsfólk en ég held að ég fengi, gott mötuneyti og fleira og fleira. En mötuneyti væri algert skilyrði. Svöng börn eða börn sem hlaða sig af sykri eru ekki þægileg í nærveru. Þau eru óróleg, eiga erfitt með að einbeita sér og trufla aðra nemendur, sem vilja vinna í næði. Þú spurðir mig um drauma- skólann. Draumaskólinn leggur áherslu á tilfinningaþroska og setur sér það markmið að allir þori að tjá ljúfar og sárar tilfinn- ingar sínar án þess að nota til þess „Draumaskólinn leggur áherslu á tilfinningaþroska og setur sér það markmið að allir þori að tjá Ijúfar og sárar tilfinningar sínar án þess að nota til þess vímugjafa.“ vímugjafa. Nemendur í til- finningaklemmu geta ekki ein- beitt sér að námi hvaða kennslu- aðferð sem notuð er. Kennarar þurfa að leggja mikið á sig til þess að kynnast hverjum nemanda persónulega og vita sem mest um aðstæður hans. Kennari sem leitar að tilfinningahnútum, finn- ur þá og er tilbúinn að leggja mikið á sig til þess að hjálpa til við að leysa þá, getur unnið krafta- verk. Mikilvægasta námsgreinin erum við sjálf. Við þurfum að þekkja völundarhús tilfinninga okkar til þess að geta lifað í innri sátt við okkur sjálf og náð að mynda heilbrigð tilfinninga- tengsl við aðra. Draumaskólinn eflir siðferðisþroska og tilfinn- ingaþor nemenda sinna. Leið list- arinnar og kærleikans er leiðin að hjartanu, en gæta þarf þess vel að elcki fenni í slóðina áður en lagt er af stað. Það getur reynst erfitt að bræða hjörtun. RV Vilborg G. Guðnadóttir hefur veriö skólahjúkrunarfrœö- ingur í sex 6r og lýkur í vor kennaranómi frá KHÍ. í örstuttu spjalli leyföi hún VERU aö kynnast sinni mynd af skólanum og ýmsu er tengist honum: - Fjölskyldupólitíkin hér í landinu hefur hingað til ekki verið í anda þarfa fjölskyldunnar. I mínum huga eru þessi mál alls ekkert mjúk mál. Ef undirstaðan er ekki mikilvæg, hvað er þá mikilvægt? Ef við ölum upp til- finningalega bæld börn, hvernig verður ástandið þegar þau fara að stjórna landinu? Þetta eru ekki mjúk mál, þetta eru gallhörð mál. Ég er tiltölulega ánægð með skólakerfið. Það er aðdáunarvert hvað sumir kennarar geta og gera við erfið skilyrði og mikið vinnu- álag. En það er margt sem betur má fara. Ég sé samfelldan skóla með skólamáltíðum á viðráðan- legu verði, svo að foreldrar með þrjú börn hafi efni á að láta börnin fá hádegismat í skólanum. Þá er ég ekki endilega að tala um heita máltíð, því ég geri ráð fyrir að fjölskyldan borði saman á 16 kvöldin, en ég vil fá næringar- ríkan mat í skólana og aðstæður til að bera hann fram. Ég vil að allt félagslíf færist inn í skólana og að starfsfólkið annist það, því að það þekkir krakkana og þarfir þeirra og foreldrarnir þekkja skólana. Þetta væri hægt m.a. ef kennarar þyrftu ekki að hafa umsjón með fleiri en einum bekk. í Austurbæjarskól- anum er vísir að félagsmiðstöð og það hefur gefist vel. Ég er hins- vegar á móti dagvistaruppbygg- ingu og því að skólinn sé gæsla fyrir börnin. Ég set hagsmuni barnanna ofar öllu öðru og mér finnst það réttur hvers barns að geta farið heim eftir skóla, þar sem annað foreldrið er heima. Ég vildi að starfsfólk skóla - og þá á ég ekki bara við kennara - væri meðvitaðra um að það er börnunum rnikil fyrirmynd. Mér Úr Æfingaskólanum. Mynd: Þórdís Ágústsdóttir. „Það er aðdáunar- vert hvað sumir kennarar geta og gera við erfið skilyrði og mikið vinnuálag.“ finnst víða skorta á að fólk skilji ábyrgð sína sem manneskjur. Það er ekki nóg að tala um að börnin eigi að vera góð, það þarf líka að vera þeim góð fyrirmynd, því að fordæmið er svo áhrifamikið. Eins og ég sagði áðan vil ég að kennarar hafi bara umsjón með einum bekk og geti gefið hverj- um nemenda tíma. Allir ættu að fá tíma til að ræða málin við kennarann - ekki bara vanda- málin. Mér finnst að kennsla í

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.