Vera - 01.02.1991, Page 22

Vera - 01.02.1991, Page 22
slíkt námskeið réðst hún í rann- sóknina. Fjórir kennaranna tóku virkan þátt í rannsókninni með því að leyfa þremur uppeldis- fræðinemum sem aðstoðuðu Sig- rúnu að fylgjast með samskiptum barnanna inni í bekknum og taka viðtal við hvert barn einslega. Fyrirkomulag rannsóknarinn- ar var þetta: 96 átta og ellefu ára börn - jafnmörg af hvoru kyni og valin af handahófi úr átta bekkjardeildum - tóku þátt í rannsókninni. Börn úr fjórum bekkjardeildanna fengu þjálfun; þau voru hvött til að fjalla um ýmislegt sem kemur fyrir í samskiptum, en börnin úr hinum fjórum bekkjardeildunum fengu ekki sérstaka þjálfun. Haustið 1989 var tekið viðtal við hvert barn. Lagðar voru fyrir það nokkrar sögur um samskipta- örðugleika í skólastarfi og barnið beðið um að skilgreina vandann, tjá sig um líðan sögupersóna, huga að ýmsum leiðum til að bregðast við vandanum, finna bestu leiðina til að leysa vandann og meta þá lausn. Einnig var hegðun hvers barns í bekknum athuguð, bæði af kennara barns- ins og aðstoðarkonum Sigrúnar. Sigrún lagði fyrir kennarana nokkrar hugmyndir um við- fangsefni sem þeir prófuðu síðan með nemendum sínum og út- færðu. Þessi viðfangsefni voru um vináttu, samskipti í frímín- útum, samskipti í skólastofunni og samskipti barna og foreldra. Kennararnir notuðu síðan ákveð- ið kerfi spurninga til að leiða umræðuna með nemendum um þessi viðfangsefni og til að leysa úr samskiptavandamálum sem upp komu í bekknum þennan vetur. Börnin fengu því þjálfun í að ræða um ýmsar hliðar sam- skipta og leysa vanda í samskipt- um. Einnig hvöttu kennararnir börnin til að tjá sig leikrænt, myndrænt og skriflega með frá- sögnum og ljóðum um viðfangs- efnin. - Kennararnir sem tóku þátt í námskeiðunum voru afar áhuga- samir og fannst mikilvægt að tak- ast á við vandkvæði í samskipt- um barnanna af festu. Verkefnin sem unnið var að í skólastofunum voru mörg frábærlega vel útfærð og skemmtileg. Við sáum líka svo vel hve efnið er brýnt. A flestum fundum okkar var talað um erfiðleika sem einhver kenn- aranna hafði lent í. Við ræddum „Listin er að koma krökkunum ekki í vörn. Það er erfitt fyrir börnin að setja sig í hvers annars spor og skoða málin frá ólíkum hliðum ef þau eru í vamarstööu.11 málin og reyndum að aðstoða hvert annað. Þetta var mjög gefandi og þakklátt starf, segir Sigrún. Um vorið voru sömu spurn- ingar í rannsókninni lagðar fyrir börnin og fyrr um haustið. Jafn- framt var hegðun þeirra athuguð aftur til að sjá hvort kennslan hefði haft áhrif á félagsþroska nemenda. - Eg þorði ekki að vera of bjartsýn um niðurstöðurnar, þar sem hér var um að ræða aðeins eins vetrar starf kennaranna með börnunum, segir Sigrún. En niðurstaðan var afar jákvæð og ætti að vera kennurum hvatning til að taka á ýmsum þáttum sam- skipta með nemendum sínum. Úr grunnskóla Austur-Eyjafjallahrepps. Mynd: Svanhvít Magnúsdóttir. „Samskiptamál eru oft sögð höfða meira til stelpna en stráka og því setti Sigrún fram þá tilgátu að stúlkunum fœri meira fram en drengjunum." I stuttu og ófræðilegu máli eru niðurstöðurnar þessar: Börnin sem tóku þátt í verkefninu sýndu meiri framfarir við að leysa úr deilumálum en börn í saman- burðarhópi, sem ekki fengu sérstaka þjálfun í að glíma við vanda í samskiptum. Þau sýndu meiri framfarir í hugsun (sbr. viðtölin) við að leysa ágreinings- efni bæði við bekkjarfélaga og kennara. En framfarir í hegðun kom aðeins fram gagnvart félög- um (jafningjum) en ekki kennara (valdhafa), kannski vegna þess að þau eru frjálsari og óþvingaðri gagnvart bekkjarfélögum en kennara. Samskiptamál eru oft sögð höfða meira til stelpna en stráka og því setti Sigrún fram þá tilgátu að stúlkunum færi meira fram en drengjunum. Sú tilgáta stóðst hins vegar ekki alveg, þar sem framfarir drengja og stúlkna sem tóku þátt í verkefninu voru jafnmiklar þegar á heildina er litið. Þessar framfarir þýða að börnin sem tóku þátt í verkefninu virtust m.a. oftar spyrja í stað þess að skipa, og ræða í stað þess að rífast, heldur en börnin í sam- anburðarhópnum - með öðrum orðum þau taka oftar til greina sjónarmið beggja í samskiptum í stað aðeins annars aðilans. Við- brögð kennaranna voru einnig afar jákvæð. Þeim þótti góður andi hafa skapast í bekknum, börnin væru opnari og einlægari og auk þess tillitssamari og ekki eins dómhörð í garð hvers annars. Sjálfsagt finnst sumum að ekki þurfi að gera rannsóknir til að sjá að samskipti batna ef að þeim er hlúð, hugsaði VERA þegar hún var að setja saman þetta viðtal. En rannsóknir eru kennurunum sem taka starf sitt alvarlega nauð- synlegar. Þær vekja þá til um- hugsunar um ýmsa þætti starfs síns og benda þeim á leiðir til að takast á við og leysa vandamál sem óhjákvæmilega skapast í þessu starfi. Með öðrum orðum - rannsóknir á sviði uppeldismála geta bæði verið menntandi og mannbætandi fyrir kennara sem skilar sér vonandi til barnanna sem erfa jörðina. Sigrún Aðalbjarnardóttir vinnur nú ásamt Arnýju Elías- dóttur kennara að gerð kennslu- efnis sem byggir á rannsóknun- um og því efni sem kennararnir prófuðu í kennslu sinni. Þar er rík áhersla lögð á samstarf heimila og skóla við að örva samskipta- hæfni barnanna og hlúa að bætt- um samskiptum. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér rannsóknir Sigrúnar betur er bent á eftirtald- ar greinar, sem hún hefur skrifað. BÁ Hlúð að tillitssemi skólabarna í samskiptum. (Grein sem bíður birtingar, 1991) Hug- myndir barna um viðbrógð þeirra við gagn- rýni kennara og bekkjarfélaga (Sálfræðiritið 1990) Æskan er eins og tré (I Heimir Pálsson ofl (ritstj.) Yrkja-. Afmælisrit til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur 1990) Hlustað eftir röddum nemenda (Ný menntamál 1 1989) Kenning Kohlbergs um siðgæðisþroska (í Þuríður Kristjánsdóttir (ritstj.): Gefið og þegið. (Afmælisrit til heiðurs Brodda Jóhannessyni sjötugum. Rvk. Iðunn 1987). Stuðlað að vináttutengslum skólabarna (Ný menntamál 3 1985). 22

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.