Vera - 01.02.1991, Síða 25

Vera - 01.02.1991, Síða 25
LEIKANDI SKÓLASTARF Anna Jeppesen meö nemendur. Mynd: Björg Árnadóttir Skapandi starf er nauðsynlegt í uppeldi barna. Ekki til að gera úr þeim listamenn, heldur til að dýpka skynjun þeirra, víkka sjóndeildar- hringinn, auka sjálfsþekkingu og kenna þeim að njóta sköp- unarverka annarra. Tónmennt og myndmennt hafa lengi verið sjálfstæðar námsgreinar í grunnskólum og bókmenntir eru hluti af móðurmáls- kennslu. En leiklist og dans hafa ekki verið á námsskrám skólanna, þó að alltaf hafi þar eitthvað verið fengist við þessar listgreinar. Anna Jeppesen hefur í rúmlega 20 ár notað leikræna tjáningu sem hjálpartæki í kennslustofunni og er nú í M.A.-námi í breskum háskóla í þeim fræðum. En jafnframt er hún kennari í Æfingaskóla Kennaraháskólans og í Kenn- araháskólanum, þar sem hún /,reynir að læða að verðandi kennurum hvernig vinna má með drama í almennum bekk", eins og hún orðar það. Auk þess aðstoðar hún sam- kennara sína í Æfingaskólan- um í þessum efnum. 1 bekknum sínum notar hún leikræna tjáningu á tvennan hátt. Hún notar hana til að leikgera sögur, bæði sögur nemenda og annarra, og setja á svið fyrir foreldra. En hún notar tjáninguna einn- ig sem vinnuferli, þegar hún kennir aðrar námsgreinar. í íslenskutímum notar hún drama t.d. sem kveikju að rit- un. Hún lætur nemendur lifa sig inn í ákveðnar aðstæður og leika ýmis hlutverk til að skilja afstöðu sögupersóna, áður en þau byrja að skrifa frásagnir. I samfélagsfræðinni er auðvelt að fá börnin til að taka afstöðu ef þau leika að þau séu einhver önnur en þau sjálf og biblíusögurnar setja þau upp í leikrænum stíl. Sem dæmi um hvernig nota má leikræna tjáningu í stærð- fræðikennslu má nefna að stærðfræðikennari við Æfingaskólann lét nemendur sína starfrækja veitingahús í kennslustundum. Anna að- stoðaði við leikræna þáttinn í þessu verkefni, þar sem nem- endur gegndu öllum hlut- verkum í veitingahúsinu og æfðu þannig stærðfræðina. - Það sem mér finnst mest spennandi af því sem ég hef gert er að tengja saman tón- mennt, myndmennt og leik- ræna tjáningu, segir Anna. Eg er t.d. núna að vinna með myndmenntakennara með verkefnið kúbisma og hug- myndin er að persónurnar í myndunum lifni við hjá okk- ur. Auðvitað þarf hver list- grein eigið rými í skólunum og það þarf að kenna þær á eigin forsendum. En listin á líka að tengjast öðrum náms- greinum. List er ekki bara eitthvað sér. Við erum ekki að ala upp listamenn í skólunum. En börnin verða að fá að prófa ýmsar listgreinar, því annars getum við ekki vitað hvað blundar í þeim, segir Anna. Listgreinar eru oft kallaðar aukafög og margir skilja ekki menntunargildi þeirra. Hvernig hafa foreldrar tekið því að Anna eyði svo miklum tíma í tjáningu og sköpun? - Eg er búin að vinna með leiklist í kennslustofunni síð- an fyrir 1970 og ég hef aldrei fengið kvartanir frá foreldrum - viðbrögðin eru frekar í hina áttina, segir Anna Jeppesen. SAFNKENNSLA Æ fleiri söfn bjóða upp á safnkennslu, þ.e. skipulagða heimsókn skólabarna þar sem þau leysa ákveðin verkefni í safninu, oftast í tengslum við námsefnið. Söfnin á höfuð- borgarsvæðinu: Ríkislista- söfnin, Arbæjarsafn og Þjóð- minjasafn, sem hafa boðið UPP á safnkennslu um árabil, fá hvert um sig um 6000 nemendaheimsóknir árlega. Á Listasafninu sýnir safn- kennari nemendum myndir °g segir þeim frá listmálur- unum, bendir þeim á ýmsa þætti í sambandi við litafræði °g myndbyggingu. Reynt er Rakel Pétursdóttir safnkennari með nemendahóp í Listasafni íslands. Mynd: Anna Fjóla Gísladóttir að fá nemendur til að opna sig og tjá sig um myndirnar. Þeir fá síðan verkefni og gera sínar eigin athuganir á myndunum. Minjasöfnin leitast við að glæða áhuga barna á því hvernig fólk lifði og bjó og gefa þeim tilfinningu fyrir því að það var eitthvað til hér á undan okkur. Möguleikarnir til að nýta söfnin eru nær óþrjótandi og eru að hluta til í höndum bekkjarkennarans. Kennarar og nemendur hafa uppgötvað að söfn eru menntastofnanir sem geta gefið nýjar víddir. 25

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.