Vera - 01.02.1991, Page 30

Vera - 01.02.1991, Page 30
Norðurlandameistari kvenna í karate er lágvaxin, kraftaleg kona með einbeitingarsvipinn greypt- an í andlitið. Hún heitir Inger Oja og er 26 ára Svíi. Afskipti hennar af íþróttahreyfingunni og lestur íþróttasögunnar urðu til þess að hún fór að læra kvennasögu við háskólann í heimaborg sinni, Luleá. Og í fyllingu tímans ætlar hún að stofna karateskóla sem kennir karate að hætti kvenna. - Karateíþróttin styrkir sjálfs- traustið og er því góð fyrir konur, segir hún. Þegar hún var að læra uppeldis- og kennslufræði íþrótta tók hún eftir því að allar íþróttagreinar eru sniðnar að hæfileikum og áhugamálum karla. Það eru ekki til neinar íþróttir sem upphaflega eru ætlaðar konum, nema ef vera skyldi fimleikar og skautahlaup. Og ýmiss konar leikfimi sem núna höfðar til kvenna. - En í líkamsrækt og leikfimi lærir maður svo lítið og þroskast ekkert. Þar eru sömu hreyfing- arnar sífellt endurteknar. Þess vegna vaknaði hjá mér sú hug- mynd að tengja líkamsrækt og karate, til að gera karate-íþróttina aðgengilegri fyrir konur. Sleppa japönsku nöfnunum, en þjálfa sjálfstraust og innri styrkleika. Stelpur hætta oft í karate því að þeim finnst þetta hrottalegt. En það er minna um meiðsli í karate en í öðrum íþróttum. Oft er manni þó illt í sálinni. Þá vill maður gefast upp, en verður að halda áfram hvort sem manni líkar það betur eða verr. Það er nauðsynlegt að nota rétta tækni, fylgja hreyfingum sínum vel eftir og nota styrk vöðvanna á réttan hátt. Og að vera sífellt meðvit- aður um sínar veiku hliðar og takast á við þær. hœtta oft í því aö þeim þetta hrotta- legt. En þaö er um meiösli í en í öörum Ofter manni þó illtí sálinni." AÐ HÆTTI KVENNA ] 30

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.