Vera - 01.12.1992, Side 11
beinbrotum og verkjum í kjölfar
beinþynningar. Hinsvegar eiga
alls ekki allar konur á hættu að
beinbrotna. Talað er um konur
innan og utan áhættuhóps. Kon-
um í áhættuhópi er ráðlagt að
taka hormónalyf til að seinka
beinþynningu og koma í veg fyrir
beinbrot. í áhættuhópi eru konur
sem hafa reykt. haft mörg börn á
brjósti, hafa búið við lélegt matar-
æði um langan tíma, sérstaklega
hvað varðar kalkinntöku og D-
vítamín og þær sem eiga ná-
komna ættingja sem hafa fengið
beinþynningu. Því miður kemur
hormónalyfjameðferð ekki í veg
fyrir beinþynninguna. Meðferðin
tefur ferli beinþynningar og
slæmum beinbrotum fækkar.
Hvað geta konur gert sjálfar?
Svarið er einfalt: Lifað heilbrigðu
lífi. Svo einfalt er nú það. Alls
staðar dynja á okkur predikanir
um gildi þess að borða hollan og
góðan mat í hæfilegu magni,
hreyfa sig reglulega dag hvern,
forðast eiturefni eins og tóbak og
áfengi, sofa reglulega, hætta að
leggja ofurkapp á efnisleg gæði og
innantóma hluti en huga betur að
því að rækta okkur sjálf, um-
hverfið og börnin okkar. Þessar
predikanir eru allar réttar og við
ættum að fylgja þeim. Það er trú
mín og fjölmargra annarra, að
margir kvillar sem hrjá vestur-
landabúa hyrfu ef við breyttum
lifnaðarháttum okkar. Flestum
konum á tíðahvörfum gagnast
þessi ráð. Til eru þó konur sem
verða illa haldnar (þrátt fyrir mjög
hollt og gott líferni (!), því
líkaminn er ekki óskeikull) og
fyrir þær konur er sjálfsagt að
taka hormón. Það er gott ef tekist
hefur að framleiða fyf sem slær á
einkenni og hefur ekki slæmar
aukaverkanir í för með sér. Við
eigum að nýta okkur þær fram-
farir sem orðið hafa í lækna-
vísindum. Svo notuð sé gömul
klisja, þá eigum við að nýta okkur
tæknina á okkar forsendum og ég
held hreinlega að konur séu ekki
tilbúnar til að taka undir það
sjónarmið að stærsti hluti þeirra
þarfnist meðhöndlunar vegna
eðlilegra líkamsbreytinga. Ég get
ekki sungið með Önnu Inger
Eydal að „hormónarnir lengi liiið"
(haft eftir henni í fyrrnefndri
blaðagrein). Tiðahvörfin drepa
nefnilega engan, mér vitanlega.
Hinsvegar geta hormónar eílaust
bætt gæði lífsins í nokkur ár hjá
sumum konum.
Þegar við göngum í gegnum
tíðahvörfin erum við upp á okkar
besta. Ég hlakka til að lesa bækur
og blaðagreinar sem bera titla
eins og „Líf mitt eftir tíðahvörf';
„Hún lauk doktorsprófi eftir tíða-
hvörf' eða „Maraþonhlaup eftir
tíðahvörf'. □
Teikning: Margrét Laxness.
Þess má geta aö bókin Á besta
aldri eftir Jóhönnu Sveinsdóttur og
Þuríði Pálsdóttur, sem gefin var út
árið 1987, stendur enn fyrir sínu og
þar eru gefín mörg dœmi um
hvernig konur eigi að takast á við
breytingaskeiðið.
Hollráð
Ætlar þú að veita
veðleyfi í þinni íbúð ?
Hafðu þá í huga, að veðleyfi jafngildir í raun ábyrgð á viðkomandi láni. Ef lántakandinn
greiðir ekki af láninu, þá þarft þú að gera það. Getir þú það ekki, gæti svo farið
að þú misstir þína íbúð á nauðungaruppboð, því standi skuldari ekki í skilum
^ er andvirði íbúðar þinnar notað til að greiða lánið.
GETUR ÞÚ GREITT AF LÁNINU EF LÁNTAKANDINN GETUR ÞAÐ EKKI ?
Við leggjum til að þú fylgir þeirri reglu að veita aldrei öðrum veðleyfi í íbúð þinni fyrir
láni sem þú getur ekki sjálíur greitt af, nema þú sért viss um
að lántakandinn muni standa í skilum.
FÓLK HEFUR MISST ALEIGU SÍNA VEGNA VINARGREIÐA
C^l HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS