Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 30

Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 30
NAUÐGUNARMÁL SÖNNUNARBYRÐIN ERFIÐ Nauðgun er glæpur og í lang- flestum tilfellum eru aðeins tveir einstaklingar til frásagnar um atburðinn. En til að nauðg- unarmál fari fyrir dóm þurfa að liggja fyrir nægjanlegar sannanir. Sannanir svo sem líkamsáverkar, rifin föt, sæði úr manninum og fólk sem getur stutt frásögn konunnar á einn eða annan hátt eða sá atburðinn. Þessi sönnun- arbyrði flnnst mörgum óheyrilega þung í ljósi þess að sjaldan eru vitni að glæpnum. En sönnun- arbyrðin er ekki aðeins erfið í nauðgunarmálum hér á landi heldur alls staðar. Réttarhaldið fer þannig fram að fyrir hlut- lausum dómara sækir saksókn- ari málið fyrir ríkið, en verjand- inn ver hagsmuni skjólstæðings síns. Konan fær engan aðila til að undirbúa hana undir réttar- haldið því hún er þarna sem vitni. Saksóknari reynir að sann- færa dómara um sekt mannsins og krefst viðeigandi refsingar. Veijandinn reynir svo að draga fram öll vafaatriði sem honum flnnst eigi að milda dóminn. Sama kerfi er viðhaft ef um auðgunarbrot er að ræða, manndráp eða líkamsmeiðingar. LESA UM DÓMANA í BLODUNUM „Ég vissi ekkert um það áður en ég mætti fyrir rétti að ég var bara vitni í opinberu máli, mér farmst þetta náttúrulega vera mitt mál, ekki ríkisins," segir Anna. „Mér var nauðgað, ekki ríkinu. Öiygg- isleysi mitt jókst um helming þegar enginn var í réttarsalnum til að styðja mig,“ segir Anna. Réttarhöldin standa ofL yfir í nokkra daga og að þeim loknum geta liðið fáeinir dagar þar til dómari kveður upp dóminn. Þegar það er gert eru aðeins viðstaddir veijandi hins ákærða og ákærði sjálfur og stundum saksóknarinn en konurnar ekki. Konur hafa margofL lent í því að Teikning: Margrét Laxness Anna hefur aldrei fengið krónu af þeim bótum sem henni voru dæmdar. lesa um dóminn í blöðunum þvi þeim var ekki tilkynnt um niðurstöðuna. BÆTURNAR EKKI GREIDDAR Anna var að eigin sögn með sterkt mál. Maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir nauðgun, hún var með hrikalega likamsáverka og vitni komu að verknaðinum. Nauðgarinn var dæmdur í 2 1 /2 ár í undirrétti og henni voru dæmdar 300,000 krónur í bætur. í fjótu bragði finnst manni að réttlætinu hafl verið framfylgt. En það er ekki alveg svo. Anna hefur aldrei fengið krónu af þeim bótum sem henni voru dæmdar. Maðurinn var ekki borg- unarmaður fyrir þeim og gerði sig gjaldþrota þegar hann fór í fangelsi. í fæstum tilfellum fá konurnar þær bætur sem þeim eru dæmdar því mennirnir borga ekki. Ef þær ætla að ganga eftir bótunum þá verða þær að fá sér lögfræðing á eigin kostnað en það er þó engin vissa fyrir því að bæturnar verði borgaðar. ER RÉTTLÆTINU FULLNÆGT? Dómskerfið hefur þjónað tilgangi sínum. Lögin voru brotin og það sá til þess að sakborningnum væri refsað. Það nægir kerfinu og málið er frágengið. En konurnar sitja eftir með sárt ennið. Þær upplifa sjálfa sig sem aðskotahlut og að þær hafi aðeins verið peð á skákborði ríkisins til að það gæti framfylgt lögunum. Margar kon- ur hafa spurt sig þeirrar spurn- inga eftir að hafa gengið í gegnum þetta hvort réttlætinu hafl verið fullnægt. Þær hafa gengið í gegn- um skelfilega reynslu sem hefur breytt sýn þeirra á lífið og til- veruna. Þær lifa með þessar minningar ævilangt, líkamleg ör hverfa en örin á sálinni hverfa aldrei. Þær þurfa að læra að treysta fólki aftur og læra að trúa á hið góða í lífinu en það reynist mörgum margra ára vinna. Og kerfið skiptir sér ekki af því. Anna segir að það hefði hjálp- að sér í gegnum þetta ef einhver hefði búið hana undir það sem beið hennar í réttarsalnum, einhver hefði séð um málið fyrir hana, séð um að bæturnar sem henni voru dæmdar yrðu inn- heimtar. „Þá hefði mér liðið miklu betur og ekki upplifað allt á eins niðurlægjandi hátt,“ segir Anna. Nauðgunarmálanefndin sem sett var á laggirnar af Alþingi 1984 skilaði áliti árið 1988. Á meðal þess sem hún lagði til var að ríkið gengi í ábyrgð fyrir bótunum og sæi svo sjálft um að innheimta þær. Þessi tillaga varð að frumvarpi á Alþingi en hefur aldrei fengist samþykkt. Nefndin lagði einnig til að konum yrði skipaður réttargæslumaður og sú tillaga varð líka að frumvarpi á Alþingi en hefur heldur aldrei fengist samþykkt. □ ÞB

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.