Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 28

Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 28
NAUÐGUNARMÁL IÐIN ER ERFIÐUST Sigrún opnar brúnan sönnunar- gagnapokann sem hún var að fá til baka frá rannsóknarlögregl- unni og tekur upp úr honum fötin. Þau eru rifin og tætt eftir mikil átök og líta út eins og henni hafi verið velt upp úr skítnum. Svartar stretsbuxurnar eru rifnar í kloflnu, hvít rúllukragapeysan er brún af drullu. Nærbuxurnar eru eins, og það eru blóðblettir á þeim. Nýi jakkinn er ekki rifinn en það var ekki hægt að hreinsa alla blettina úr honum, hvað sem konurnar í hreinsuninni reyndu. Svörtu lágbotna leðurstígvélin er hún búin að láta laga og sóla upp á nýtt og hún ætlar að halda þeim en fötunum verður hún að henda. Sigrún er ekki hennar rétta nafn þvi hún hefur óskað nafnleyndar en mál hennar hefur verið í blöðunum undanfarið þar sem hún kærði mann fyrir nauðgun í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík 9. október síðastliðinn Sigrún er í ljónsmerkinu, sterk- byggð og hefur mikla trú á sjálfri sér. Hún barðist við árásar- manninn og líkami hennar ber þess merki, kúlur á höfði og marblettir um allt. Hún hljóp um allan kirkjugarðinn og reyndi að fela sig bak við leiðin en hann náði henni alltaf aftur og tókst að rifa eitthvað af fötunum utan af henni í hvert skipti. „Það var blaðburðarkona sem heyrði ópin í mér og hringdi á lögregluna sem kom á vettvang. Lögreglan kom að mér þar sem ég lá allsber í hnipri á litlum gras- bala örvingluð af hræðslu og árásarmaðurinn stóð yfir mér „með allt úti“, brjálaður af reiði,“ segir Sigrún. Þegar viðtalið er tekið er hún að bíða eftir að rannsókninni ljúki. Málið er búið að vera í einn og hálfan mánuð hjá Rannsókn- arlögreglunni og ekki er komin niðurstaða ennþá. Rannsóknar- lögreglan sendir málið áfram til Ríkissaksóknara sem ákveður hvort málið fari fyrir dóm eða verði fellt niður. Sigrún segir að sér flnnist biðin erfið og hún hefur enga hugmynd um hversu marga mánuði hún þarf að bíða, en hún veit að þetta tekur langan tíma. Hún hefur farið til Stígamóta og fékk þar mikinn stuðning. Hún segir að hún kviði langmest að fara í réttarsalinn og „láta verjandann hakka mig i sig. Ég hef heyrt frá öðrum konum að þeir geti verið ansi ósvíínir." Þó svo hún bíði eftir því að málið mjakist í gegnum kerflð reynir hún að lifa eðlilegu lífl. „Þessi atburður hefur ekki yflr- bugað mig ennþá en ég veit um aðrar konur sem lifa við stöðugan „Lögreglan kom að mér þar sem ég ló allsber í hnipri á litlum grasbala örvingluð af hræðslu oa árásarmaðurinn stóð yfir mér „með allt úti", brjálaður af reiði." ótta. Þær þora ekki út úr húsi af ótta við að mæta árásarmann- inum á götunni, hrökkva við þegar dyrabjöllunni er hringt, fara inn í skáp eða undir borð og falla í þunglyndi. Ég reyni ekki að hugsa um það hvort ég gæti mætt manninum niðri í bæ, ég ýti svo- leiðis hugsun frá mér,“ segir Sigrún. Árásarmanninum var sleppt eftir þijá daga. Hún segir að alls staðar hafi hún mætt velvilja af hendi fólksins í kerfinu. „Fólkið á slysa- varðstofunni var mjög almenni- legt og hvatti mig, peppaði mig upp. Ég var líka heppin með lögreglumann sem tók skýrsluna, hann var mjög indæll og tillits- samur. Það eina sem fékk á mig var þegar hann sagði að ég hlyti að hafa verið dauðadrukkin fyrst ég var að berjast við manninn allan þennan tíma. En mér tókst nú að sannfæra hann um að svo hafi ekki verið heldur var ég eins og hundelt villibráð sem veiði- maður er að elta og hugsaði um það eitt að fela mig og halda lífi,“ segir Sigrún. Konur sem hafa orðið fyrir nauðgun og ákveða að kæra segja að það sé ekki nóg með að þær þurfi að bíða marga mánuði eftir réttarhöldum heldur tekur allt í sambandi við þetta langan tíma. „Lögreglan fann mig um klukkan hálf sjö að morgni. Hún fór með mig á slysavarðstofuna til að kanna áverka og gera að flngur- broti. Svo fór ég til Rannsókn- arlögreglunnar í Kópavogi og var þar í nokkra tíma í yfirheyrslu. Síðan þurfti ég að fara upp á kvennadeild Landspítalans og fara í kvensjúkdómaskoðun. Ég var ekki komin heim fyrr en um miðjan daginn og alveg búin að vera,“ segir Sigrún. Sigrún telur sig heppna, íjöl- skyldan styður hana og hún er mjög þakklát fyrir að vinkona hennar hvatti hana til að kæra málið í staðinn fyrir að fara bara heim af sfysavarðstofunni eins og hún hafði hugsað sér. í ljós kom að margar konur í fjölskyldu mannsins hafa orðið fyrir barðinu á honum og þær styðja Sigrúnu af heilum hug. Hún getur þurft að bíða 8 til 9 mánuði eftir að málið verði tekið fyrir. Algengustu refsingar fyrir nauðgun eru frá níu upp í 18 mánuði og mismunandi háar Ijarsektir. □ ÞB Teikningar: Sigurborg Stefánsdóttir 28

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.