Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 32

Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 32
NÝJAR BÆKUR Ein af eftirtektarveröari jóla- bókum þessa árs er Leikur hlœgjandi láns eftir kínversk- ameríska rithöfundinn Amy Tan. Bókin sem á frummálinu heitir The Joy Luck Club, er fyrsta skáldsaga höfundar. Hún fékk ótrúlega góöar viö- tökur í Bandarikjunum þegar hún kom út áriö 1989, tvœr milljónir eintaka seldust og hún var útnefnd til National Book Award, en þaö er ekki oft sem fyrsta bók höfundar er tilnefnd til þeirra eftirsóttu verölauna. Rúnar Helgi Vignisson þýöir bókina og útgefandi er Bjartur. Leikur hlœgjandi láns seg- ir frá lífi móöur Amy Tan og fjögurra vinkvenna hennar sem allar fluttust til Banda- ríkjanna frá Kína og sam- bandi þeirra viö dœtur sínar sem ólust upp sem banda- rískir ríkisborgarar. Menning- arlegt hyldýpi ríkir milli móöur og dóttur sem alast upp í mismunandi umhverfi og viö gjörólíkarsiövenjur. Kynslóöa- biliö eitt og sér er leikur einn miöaö viö þau ósköp! Viö grípum niður í bókina í sögu einnar móðurinnar. Hún var aöeins tveggja ára þeg- ar gengið var frá hjónabandi hennar. Eftir veisluna ýttu þessir fáu gestir okkur og hálfpartinn báru upp í litla svefnherbergið okkar á þriðju hæð. Fólk hrópaði spaugsyrði og dró stráklinga undan rúminu. Hjónabandsmiðlarinn hjálp- aði smákrökkunum að finna rauð egg sem höfðu verið falin milli ábreiðanna. Strákarnir, sem voru á aldur við Tyan-yu, létu okkur sitja hlið við hlið á rúminu og svo vorum við látin kyssast til að við yrðum rauð í framan af ástriðu. Púðurkerl- ingar sprungu á gangsvölun- um fyrir utan opinn gluggann hjá okkur og einhver sagði að það væri góð ástæða til að stökkva í fangið á eiginmanninum. Þegar fólkið var farið sátum við þarna hlið við hlið drykklanga stund án þess að mæla orð af munni, enn að hlusta á hlátrasköllin fyrir utan. Þegar um hægðist sagði Tyan-yu: „Þetta er mitt rúm. Þú sefur á sófanum." Hann henti til mín kodda og þunnri ábreiðu. Mikið var ég fegin! Ég beið þangað til hann var sofnaður og fór þá hljóðlega fram úr og út úr herberginu, niður stigann og út á dimmt hlaðið. Lyktin í loftinu benti til að bráðum færi að rigna aftur. Ég var grátandi, gekk berfætt um og fann rakan hitann sem enn var í múrsteinunum. Handan hlaðsins sá ég þjónustustúlku hjóna- bandsmiðlarans í gulum bjarma við opinn glugga. Hún sat við borð, mjög syfjuð að sjá, meðan rauða kertið brann á sínum sérsmíðaða stjaka. Ég settist undir tré til að fylgjast með því þegar örlög min yrðu ráðin. Ég hlýt að hafa sofnað því ég minnist þess að hafa hrokkið upp við þrumu- gný. Þá sá ég þjónustustúlku hjónabandsmiðlarans hlaupa út úr herberginu, álíka hrædda og kjúkling á leið til slátrunar. Svo hún var sof- andi líka, hugsaði ég, og nú heldur hún að þetta séu Japanarnir. Ég hló. Himininn lýstist allur upp og svo kváðu við íleiri þrumur og stúlkan hljóp út af hlaðinu og ofan veginn, svo hratt að ég sá steinvölur þeytast upp á eftir henni. Hvert heldur hún sig vera að hlaupa, hugsaði ég, enn hlægjandi. Og þá sá ég rauða kertið ílökta eilítið í golunni. Ég var ekki að hugsa neitt þegar fæturnir hófu mig á loft og báru mig yíir hlaðið að herberginu með gula bjarm- anum. En ég vonaði - ég bað til Búdda, gyðju miskunn- seminnar og fulla tunglsins - að slokknaði á þessu kerti. Það flökti svolítið og loginn lagðist ílatur, en samt héldu báðir endar áfram að loga skært. Barkinn í mér fylltist svo mikilli von að hann lét að lokum undan og blés á kertis- enda mannsins míns. Á samri stundu fór ótta- skjálfti um mig. Ég hélt það sprytti fram hnífur og risti mig niður. Eða að himnarnir opn- uðust og feyktu mér burt. En ekkert gerðist og þegar bráði af mér gekk ég aftur upp í herbergið mitt hröðum sektarskrefum. Morguninn eftir gaf hjóna- bandsmiðlarinn hreykinn sína yfirlýsingu frammi fyrir Týan-yu, foreldrum hans og mér: „Mínu verki er lokið,“ tilkynnti hún og hellti leifum svartrar öskunnar á rauða klæðið. Ég sá skömmustuna og hryggðina í andliti þjón- ustustúlkunnar. □

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.