Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 26

Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 26
ALNÆMI Alnæmi var lengi vel karlasjúk- dómur. Stærslu hópar smitaðra voru samkynhneigðir (hommar), eiturlyfjaneytendur og blóðþegar, en í þessum hópum eru karl- menn í meirihluta. Á síðustu árum hefur HlV-smituðum kon- um fjölgað ört. Hér á landi er vitað um 11 konur sem hafa smitast, en alls hafa 76 ein- staklingar greinst með HIV- veiruna frá upphafi. Af þessum 11 konum hafa 3 greinst með alnæmi sem er lokastig sjúk- dómsins. Flestar eru konurnar yngri 30 ára. Það er því mikilvægt að konur taki sig á og verði meðvitaðar um fyrirbyggjandi aðgerðir. Af HIV smituðum konum á íslandi hafa 5 smitast við sam- farir, 4 við blóðgjöf og 2 með óhreinum nálum eða sprautum. í upphafi var útbreiðsla HlV-smit- unar aðallega meðal samkyn- hneigðra karlmanna, en með tvikynhneigðum karlmönnum hefur veiran borist til kvenna. Vændiskonur eru í mestri hættu, en þær eru oft einnig eiturlyfja- neytendur. HlV-smitaðar vænd- iskonur eru vaxandi vandamál í flestum löndum heims. Frá þeim bera síðan viðskiptavinirnir veiruna með sér til eiginkvenna sinna og vinkvenna. ÁHÆTTA VID ÞUNGUN Ffestar konur sem smitast af HlV-veirunni eru ungar að árum og eiga barneignir sínar eftir. Margar erfiðar spurningar vakna við slíkar kringumstæður. Sjúk- dómurinn er ólæknandi í dag og talið er líklegt að álagið sem verður á líkamann við þungun geti hraðað sjúkdómsferlinu. Það alvarlegasta er þó, að fóstrin geta smitast í móðurkviði og þau börn sem fæðast smituð eiga erfiða ævi fyrir höndum og deyja ung. Ekki er vitað hve áhættan er mikil. Rannsóknir hafa gefið tölur mifli 30-70%. Áhættan er talin mest skömmu eftir smitun móður, áður en mótefni hafa myndast og síðan á alnæmisstiginu. Ekki er unnt að vera viss um að barn hafi í upphafi var útbreiðsla HlV-smitunar aðallega meðal samkynhneiaðra karlmanna, en með tvíkynhneigðum karlmönnum hefur veiran borist til kvenna. sloppið við smitun fyrr en við tveggja ára aldur. Fyrir þann tíma geta mótefni frá móður ruglað prófsvörin, en þau fær barnið yfir í blóðrás sína gegnum fylgjuna. HlV-veiran skilst út í móðurmjólk og hefur HlV-smituðum konum verið ráðlagt að gefa börnum sínum ekki brjóst. Þó ekki sé fullsannað að barn geti smitast með móðurmjólkinni, er ekki þorandi að taka áhættuna. Vegna alls þessa er HIV-smituðum konum ráðlagt að verða ekki ófrískar og nota öruggar getnaðarvarnir. Verði þær hinsvegar þungaðar er þeim ráðlögð fóstureyðing. Velji konan samt að ganga með barn sitt er hún undir góðu eftirliti og veittur allur stuðningur. Ein HlV-smituð kona hefur fætt barn hér á landi og reyndist það heilbrigt. SÝNUM ADGÁT Fyllsta ástæða er fyrir konur sem karla að vanda vel val sitt á rekkjunaut - þvi fleiri rekkjunautar, því meiri smithætta. Ef um nýjan bólfélaga er að ræða, er þörf á að nota ekki aðeins getn- aðarvarnir heldur einnig smitvarnir, þ.e. verjur helst með sæðisdrepandi kremi, sem inniheldur efnið nonoxynol-9 sem drepur HlV-veiruna. Með notkun veija er einnig hægt að koma í veg fyrir aðra kynsjúkdóma, svo sem lekanda, clamydia, herpes og vörtur. Þar sem mótefni eiga að hafa komið fram í blóði sex mánuðum eftir smitun ættu þau pör sem vilja vera alveg örugg að nota verjur í sex mánuði frá þvi þau byrja að sofa saman ef möguleiki á smiti er fyrir hendi. Fara síðan í HlV-mótefnapróf til að fá úr þvi skorið hvort annað eða bæði eru sýkt. Allur er varinn góður, al- næmi er ólæknandi í dag og enn eru engin teikn á lofti um að það takist að lækna það í náinni framtíð. Notum smokka. □ Anna M. Helgadóttir Kvensjúkdómalœknir Jákvæði hópurinn Jákvæði hópurinn er sjálfs- styrktarhópur fyrir fólk sem hefur greinst með HlV-veiruna. Markmið hópsins er: Að gefa HlV-jákvæðu fólki kost á að hittast á eigin forsendum í öruggu umhverfi. Veita félögum tækifæri til að taka afstöðu til eigin aðstæðna með félagslegu samneyti og þátttöku i ýmsum vinnuhópum. Að taka þátt í því að bæta aðstæður HlV-jákvæðra félagslega, heílsufarslega og stjórnmálalega séð. Að breiða út raunhæfar upplýsingar um HIV- smit og alnæmi ásamt upp- lýsingum um hagi HIV-já- kvæðra. Þeir sem hafa áhuga á að ger- ast félagar geta haft samband við Jákvæða hópinn með því að hringja í síma 28586 á fimmtu- dagskvöldum milli kl. 21-23. Eða með þvi að skrifa bréf og senda á heimilisfang hópsins: Pósthólf 5049, 125 Reykjavik. Hópurinn hittist svo einu sinni í viku og öllum HlV-já- kvæðuin er að sjálfsögðu vel- komið að mæta. Fýllsta trún- aðar er gætt í hvívetna. □

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.