Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 18

Vera - 01.12.1992, Blaðsíða 18
Ljósm. Anna Fjóla Þessa dagana standa yfír stífar æfingar hjá Kórskóla Margrétar Pálmadóttur í Kramhúsinu því Kórskólinn ætlar að halda jóla- tónleika í Kristskirkju 10. desember og æfingartíminn er vel notaður. Lagavalið er fjöl- breytt og með því leitumst við við að færa frið og helgi jóla- hátíðarinnar inn í hjörtu tón- leikagesta. En þetta verða væntalega síðustu tónleikarnir sem þessi hópur stendur að undir merki Kórskólans þvi um áramót stendur mikið til, þá ætlum við að stofna formlega Kvennakór Reykjavíkur. Það hefur lengi verið draumur kórstjórans okk- ar Margrétar Pálmadóttur að stofna kvennakór hér í Reykja- vik og síðasta vor stóð Kór- skólinn fyrir miklum tónleikum í Langholtskirkju til stuðnings Stígamótum. Þá fengum við til liðs við okkur stúlkur úr Flens- borgarkórnum í Hafnariirði og einnig Barnakór Grensáskirkju en þetta eru hvort tveggja kórar sem Margrét stjórnar og úr þessu varð einn heljar stór og glæsilegur kór. Þegar Karlakór Reykjavíkur frétti af þessu framtaki okkar sem við kölluð- um „Konur syngja fyrir konur“, þá sendu þeir okkur kveðju og buðust til að koma og vera gestasöngvarar hjá okkur og sýna þannig hug sinn í verki. Þið getið nærri hvort við urðum ekki glaðar! Tónleikarnir gerðu okkur kleift að færa Stiga- mótum álitlega fjárhæð sem við erum mjög stoltar af. Það var svo í framhaldi af þessu að hug- myndin um að stofna Kvenna- kór Reykjavíkur kom upp og það var auðvitað sjálfsögð kurt- eisi að spyrja herramennina í Karlakórnum hvað þeim þætti um nafngiftina. Á næstu æflngu var okkur sagt að „Karlakór Reykjavikur" sendi „Kvennakór Reykjavíkur" bestu kveðjur, svo þar með var þetta ákveðið. Við höfum notað haustið til undirbúnings og biðjum söng- elskar konur um að hafa nú augu og eyru opin því við munum hafa inntökupróf í kórinn í janúar. Nú leitum við að góðum og þjálfuðum rödd- um til að taka þátt í þessu ævintýri með okkur. Jafnhliða þessu mun Kórskólinn í Kram- húsinu halda áfram að þjálfa konur í söng og þar með til inntökuprófs. Ein konan úr kórnum hafði þetta að segja þegar hún var spurð af hverju hún væri í kórnum: „Það er svo gaman að syngja og að heyra röddina sína hljóma í stórum samhljóm með fjölda annarra radda er alveg stórkostlegt. Ég vil halda því fram að það sé líkamlega hollt að syngja, ég hef ekki orðið veik í einn dag hvað þá meira, síðan ég byrjaði. Ég held að það séu hljóðbylgjurnar sem maður fær yflr sig á æflngum, að ég tali nú ekki um hvað þetta er gott fyrir sálina. Það er líka alveg ótrúlegt hverju hún Margrét fær áorkað með allsendis óvanar konur. Hún hikar ekki við að lesa okkur pistilinn ef við vöndum okkur ekki alveg fram í flngur- góma allan tímann, en það er líka jafngaman að sjá og heyra viðbrögðin hjá henni þegar við stöndum okkur vel. Margrét er mjög vel menntaður músikant og það er svo sannarlega þakk- arvert þegar fólk sem hefur verið í söngnámi erlendis í mörg ár vill koma heim og vinna með okkur sem heima sitjum. Því hún hefði, eins og svo margir aðrir íslendingar, vel getað verið áfram úti þar sem tækifærin bjóðast og listamenn eru metnir að verðleikum. Þess vegna er ég þakklát fyrir tækifærið að fá að taka þátt í þessu.“ Kórskólinn æflr í Kram- húsinu á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 21 til 22:30 og æflngar eru öllum opnar sem vilja koma og hlusta. □ Með kveðju frá kórnum, Dóra Eyvindar 18 REYKJAVIKI

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.