Vera - 01.12.1992, Qupperneq 21
full af eplum, skildi ég örvænt-
ingu hennar.
Af því að þetta er nú hin mesta
kjarnakona lét hún að sjálfsögðu
ekki bugast á þessari erfiðu
stundu. Hún settist niður og fletti
í öllum kokkabókum og
slúðurblöðum sem hún fann i leit
að eplauppskriftum. Svo dögum
skipti voru bakaðar bökur, soðið
niður og búin til eplamús. Eitt
mesta snilldarverk hennar eftir
þessi átök var eplakryddsulta,
eða „eplachutney" eins og eldhús-
meistarar mundu kalla það.
Síðan þetta var hefur mikið vatn
runnið til sjávar en ég hef ávallt
framleitt þessa sultu fyrir jólin, til
eigin nota og sem jólaglaðning
fyrir ættingja og vini. Undanfarin
tvö árin hefur framleiðslan aukist
til muna. Kvenfélagið í hreppnum
mínum heldur árlega rómaðan
jólabasar og er sultan að verða
fastur liður þar.
EPLAKRYDDSULTA
1 kg epli
5 dlsykur
2 dl rúsínur
1 msk sinnepsfræ
2 rif hvítlaukur
3 tsk karrý
1 tsk engifer
2 dl eplaedik
1 laukur
Epli og laukur eru skorin í
bita, og hvítlauksrifin press-
uð. Svo er öllu skellt í vænan
pott og látið malla vel og lengi.
Ég fór að sleppa rúsínunum
þegar ég tók eftir því að þær
urðu alltaf eftir þegar var
komið neðarlega í krukkuna,
en það er að sjálfsögðu
smekksatriði. Sultan er orðin
góð eftir 2 vikur á krukkum.
Hún er sérstaklega góð með
kæfum og villibráð.
Það lifrarfrauð eða „paté“, sem
ég hef oftast búið til er ættað frá
vinkonum í marga liði. Einhvern
veginn hefur læðst að mér sá
grunur að frauð þetta sé einnig
sænskættað. Sú ályktun er íyrst
og fremst dregin af þvi að á stöku
stað i uppskriftinni bregður fyrir
erlendum slettum sem fljótt á litið
virðast sænskar. í fyrsta sinn sem
ég bragðaði þetta dásamlega
frauð hjá vinkonu minni var ég
búsett i kaupstað austur á landi.
Ég náði að véla út úr henni
uppskriftina sem hún hafði nælt í
hjá annarri vinkonu sinni. Ekki
er mér hins vegar kunnugt um á
hvern hátt sú kona komst yíir
uppskriftina, en ég hef vonað
heitt og innilega alla tíð, að um
mikla leyndarmáls uppskrift sé
hér að ræða. Vöruúrvalið var
stundum takmarkað í kaup-
staðnum mínum, svo uppskriftin
varð lljótlega vinsamleg búsetu-
21