Vera - 01.12.1992, Qupperneq 24
útvarpi og klukku heima og
vissum aldrei hvað tímanum leið.
Okkur snjóaði inni svo við gátum
okkur ekki hreyft í marga daga.
Það var yndislegt. Við vöknuðum
þegar birti, borðuðum þegar við
vorum svöng og fórum að sofa
þegar við vorum orðin syfjuð.
En hvernig undirbýrðu ferðina í
bústaðinn? Ertu búin að baka og
elda heima og tekurðu allt með
eða eyðið þið dijúgum tíma í
eldhúsinu ?
- Undanfarin ár höfum við
fengið leyfi til að skjóta rjúpur í
nágrenninu. Þegar ijúpnatím-
anum lýkur skjótum við endur,
en oft höfum við jólamatinn með
til vonar og vara. Það fer hins-
vegar lítið fyrir jólasmákökunum,
því ég vandist því í Ameríku að
baka smákökur allt árið. Ég reyni
að hafa þær frekar hollar en þær
eru samt góðar eins og einn vinur
strákanna sagði um daginn. Mér
íinnst sú tilfinning svo þægileg að
„þurfa“ ekki að gera neitt íyrir
jólin. Fólk miðar allt við jólin,
standsetja húsið, sauma glugga-
tjöld og þrífa allt húsið í svartasta
skammdeginu! Það ræður þvi
hver og einn hvernig hann hefur
það, en menn sogast með. Ég
vandist þvi t.d. ekki sem barn að
skórinn væri settur út í glugga.
Eldri strákarnir gerðu það aldrei
en sá yngsti varð voðalega sár
þegar hann var sá eini í leikskól-
anum sem fékk ekkert i skóinn
þannig að hann fær eitthvað
smávegis þótt hinir hafi aldrei
fengið neitt. Jólaundirbúning-
urinn er kominn út í öfgar hjá allt
of mörgum. Það er staglast á þvi
að jólin séu hátíð íjölskyldunnar
en svo upplifa flestir jólaboðin
sem kvöð. Þetta er gerviímynd
sem má alveg hrófla við.D
RV og KK
HAFRAMJÖLSKÖKUR
JÓHÖNNU:
1 b smjör
2 b púðursykur
1 tsk vanilla
1 tsk salt
3 b haframjöl (eða 1 b
haframjöl, 1 b hveitiklíð og 1 b
kókosmjöl)
2 egg
1 1 /2 b heilhveiti (eða
grahamsmjöl)
1 tsk matarsódi
1 /2 b pecanhnetur (eða
heslihnetur)
Mjög gott að bæta
súkkulaðibitum í.
Hrært í hrærivél, sett með
teskeið á plötu, bakað við
meðalhita í 15 mínútur.
VERULEGA
GOTT í SKÓINN
Hver kannast ekki við að
vakna upp með andfælum og
neyðast til að setja manda-
rínu í skóinn þriðja kvöldið í
röð? Látum ekki þann
skemmtilega sið að setja í
skóinn breytast í martröð!
Hafið samráð við nágranna-
jólasveinana, það getur verið
erfitt fyrir litlu skinnin að
skilja hvers vegna einn fær
snjóþotu en annar smáköku.
Kaupið allt í einni ferð og
munið að hóf er best í öllu.
Jólasveinarnir koma 13 nótt-
um fyrirjól eins ogvenjulega.
Glansmyndir
Hárspennur
Jólaföndur
Jólalímmiðar
Jólasveina tannbursta
Kerti
Leir
Litabók
Litir
Mandarínur
Miði á Dýrin í Hálsaskógi
Nærföt með mynd
Skemmtilegt skóladót
Skraut á jólatréð
Smákökur
Sparisokka
24